Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Qupperneq 12
12 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Heimagert jólaskraut
n Piparkökuform og fjölskyldumyndir
Þ
að er hægt að búa til fallegt
og persónulegt jólaskraut
með piparkökuformum,
auk þess sem það er fljót
legra að búa það til en að baka
pipar kökurnar. Fjallað er um þetta
á síðu Mörthu Stewart en þar má
finna fjöldann allan af sniðugu
heimagerðu jólaskrauti.
Það sem þarf er ódýr álpipar
kökuform og mynstraður papp
ír eða jafnvel myndir af fjöl
skyldumeðlimum og öðrum
ástvinum. Klippið pappírinn eða
myndirnar eftir útlínum kökufor
manna og setjið lím á endana. Ýtið
pappírnum á réttan stað og leyfið
líminu að þorna. Þræðið borða
eða þráð í gegnum kökuformið og
bindið slaufu.
Jólasýning Árbæjarsafns:
Gömlu jólin
beint í æð
Jólasýning Árbæjarsafns hefur
notið mikilla vinsælda undan
farin ár og hlotið fastan sess í
menningarlífi höfuðborgarinnar
á aðventunni. Sýningin verður
opnuð sunnudaginn 2. desem
ber og verður dagskrá frá klukk
an 13–17. Henni verður síðan
haldið áfram sunnudaginn 9.
desember og sunnudaginn 16.
desember og stendur dagskráin
þá einnig frá klukkan 13–17.
Ungir sem aldnir geta haft
gaman af að rölta milli húsanna
og fylgjast með undirbúningi
jólanna eins og hann var í gamla
daga. Hrekkjóttir jólasveinar
gægjast á glugga og kíkja í potta,
börn og fullorðnir fá að föndra,
syngja jólalög og ferðast um á
hestvagni.
Í Árbænum sitja fullorðnir og
börn með vasahnífa og skera út
laufabrauð en uppi á baðstofu
lofti er spunnið og prjónað. Þar
er einnig jólatré vafið lyngi. Í
Kornhúsinu fá börn og full
orðnir að föndra, búa til músa
stiga, jólapoka og sitthvað fleira.
Í Garðastræti er sýnt hvernig
fólk bjó til tólgarkerti og kónga
kerti í gamla daga. Í Hábæ verð
ur hangikjötið komið í pottinn
og gestum boðið að bragða á
nýsoðnu keti en í stofunni er
sýndur útskurður. Í Efstabæ er
jólaundirbúningurinn kominn
á fullan skrið og skatan komin
í pottinn. Jólahald heldra fólks
við upphaf síðustu aldar er sýnt
í Suðurgötu 7. Í Listmunahorn
inu verður sýnt þjóðlegt hand
verk og Krambúðin verður með
kramarhús, konfekt og ýmsan
jólavarning til sölu. Dillonshús
býður upp á ljúffengar veitingar,
heitt súkkulaði og jólalegt með
læti. Dansað er í kringum jóla
tréð á torginu kl. 15 og eru gestir
hvattir til að taka þátt. Jólasvein
ar, þessir gömlu íslensku, verða
á vappi um safnsvæðið hrekkj
óttir og stríðnir að vanda og taka
þeir þátt í dansi kringum jóla
tréð.
Bestu jólamyndirnar
n Góðar myndir gera jólin betri n Tíu bestu jólamyndir Rotten Tomatoes
Miracle on 34th Street (1947)
Aðalhlutverk: Maureen O‘Hara, Edmund Gwenn, John
Payne. Jólasveinninn þarf að sanna tilvist sína þegar markaðsmenn
fá gervijólasvein til starfa inni í verslunarmiðstöð. Hugljúf og æðisleg
mynd sem fær alla til að fella tár. Þeir sem vilja ekki horfa á svarthvít-
ar myndir geta leigt endurgerð frá árinu 1997. Einkunn: 97%
Stalag 17 (1953)
Aðalhlutverk: William Holden, Don Taylor,
Otto Preminger. Líklega sú jólamynd sem fæstir
hafa séð og vita að sé til enda orðin vel yfir hálfrar
aldar gömul. Þessi svarta kómedía gerist í þýskum
fangabúðum í seinni heimsstyrjöldinni og fjallar um
hóp af mönnum sem eru svo sannarlega engar hetjur.
Mynd sem kemur á óvart. Einkunn: 96%
Die Hard (1988)
Aðalhlutverk: Bruce Willis, Bonnie Bedelia,
Alan Rickman. Einhver albesta jólamyndin, alla
vega fyrir strákana. Fyrsta myndin um lögreglumann-
inn John McClane sem tekst alltaf að vera á röngum
stað á röngum tíma en bjargar auðvitað málunum.
Hans Gruber og hryðjuverkafélagar hans eiga ekki séns
í Nakatomi-turninum þessi jól frekar en nokkur önnur.
Einkunn: 94%
It‘s a Wonderful Life
(1946)
Aðalhlutverk: James Stewart, Donna Reed,
Lionel Barrymore. Gullfalleg hátíðamynd sem
kemur öllum í gírinn. Vissulega fjallar hún í grunninn
um góðhjartaðan mann sem ætlar sér að fremja
sjálfsvíg en þá kemur elskulegi jólaengillinn og sýnir
honum hvernig heimurinn væri án mannsins. Sannar-
lega frábært líf. Einkunn: 92%
Trading Places (1983)
Aðalhlutverk: Dan Aykroyd, Eddie Murphy,
Ralph Bellamy. Ótrúlega fyndin mynd og Eddie
Murphy í dúndurstuði. Fyrir þá sem ekki vita fjallar
myndin um snobbaðan fjárfesti og blekkingameistara
af götunni sem þurfa að skipta um hlutverk vegna
veðmáls tveggja milljarðamæringa. Vægast sagt
fyndin ræma. Einkunn: 91%
Lethal Weapon (1987)
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Gary Busey
Önnur fyrir strákana. Fyrsta myndin um félagana Riggs og Murtaugh
og að margra mati sú besta. Gjörsamlega geðveik hasarlöggumynd af
gamla skólanum sem enginn verður svikinn af. Svo er alltaf hægt að
taka maraþon milli jóla og nýárs og horfa á allar fjórar myndirnar.
Einkunn: 90%
A Christmas Tale (2008)
Aðalhlutverk: Catherine Deneuve, Mathieu Amalric,
Melvil Poupaud. Áhugavert en nokkuð alvarlegt fjölskyldudrama
með góðu leikaraliði. Þessi jólin þarf Vuillard-fjölskyldan sem er
nokkuð sérstök að hittast um jólin þegar pabbinn þarf á líffæragjöf að
halda. Í jólapakkanum þessi jólin eru vandamál sem opnuð eru hægt
og rólega. Einkunn: 89%
A Christmas Story
(1984)
Aðalhlutverk: Peter Billingsley, Darren
McGavin, Melinda Dillon. Þessi mynd er hugljúf og
hlý en á sama tíma með svörtum húmor. Myndin fjallar
um níu ára dreng, Ralphie, sem vill ekkert annað en
rauða Ryder-byssu í jólagjöf og stofnar til herferðar svo
foreldrarnir gefi honum eina slíka. Einkunn: 88%
While You Were
Sleeping (1995)
Aðalhlutverk: Sandra Bullock, Bill Pullman, Peter Gallagher.
Lucy Moderatz á enga að en einn daginn munar minnstu að fjallmyndar-
legur maður láti lífið á lestarteinum á brautarstöðinni þar sem hún vinnur.
Hann fellur í dá og á meðan hann er í dái asnast hún til að segja fjölskyldu
mannsins að hún sé unnusta hans. Hugljúf mynd með frábæru leikaraliði.
Einkunn: 85%
The Nightmare Before
Christmas (1993)
Aðalhlutverk: Danny Elfman, Chris Saran
don, Catherine O‘Hara. Það á auðvitað ekki að
tengja martraðir við jólahátíðina en þessi klassíska
mynd hefur fyrir löngu sannað sig sem ómissandi hluti
af jólunum. Þetta árið kemur hún endurgerð í þrívídd
þannig að hægt er að njóta hennar alveg upp á nýtt.
Einkunn: 97%