Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Blaðsíða 16
16 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
E
lín Guðný Hlöðvers-
dóttir hefur alltaf
verið mikið jólabarn,
enda er hún alin
upp í fjölskyldu sem legg-
ur mikið upp úr jólahaldi.
Elín segir að móðir sín
hafi iðulega verið búin að
skreyta í byrjun nóvem-
ber og lagt mikið upp úr
því að gera jólin sérstök og
sjálf hefur hún haldið í fjöl-
skylduhefðirnar.
Elín málar postulín í hverri viku,
en mamma hennar heldur postu-
línsnámskeið. Amma Elínar lærði
að mála á postulín í Danmörku og
kenndi svo listina heima á Íslandi í
fjölda mörg ár. Mamma Elínar tók
svo við fyrir um 13 árum. Elín úti-
lokar ekki að hún muni svo taka við
af móður sinni þegar sá tími kemur,
enda virðist listin renna í blóðinu.
Elín málar jólamyndir á postu-
lín allt árið um kring og á nú tólf
manna matar- og kaffistell ásamt
könnum, skálum, fötum, plöttum
og fleiru. Er þetta annað jólamatar-
stellið sem hún hefur málað en hið
fyrra gaf hún tengdamóður sinni.
Jólapostulín fyrir baðherbergið
Henni þykir mjög vænt um jóla-
postulínið sitt og heldur mikið upp
á það, mikið af því hefur hún málað
sjálf en annað fengið í gjöf frá móð-
ur sinni og ömmu.
Elín er núna að mála jólapostu-
lín fyrir baðherbergið og segist geta
bætt endalaust við, hún taki bara
eitt herbergi fyrir í einu, svo fer líka
mikið af postulíninu sem hún málar
í jólagjafir.
Fyrir utan postulínið er heimil-
ið mikið og fallega skreytt alls kyns
jólaskrauti og jólaljósin skína inn
um gluggana. Sæmundur, maður-
inn hennar, tekur virkan þátt í jó-
laundirbúningnum með henni og
þykir gaman að, hann segist þó hafa
vanist því að jólaundirbúningur sé
bundinn við desember.
Stórtækur Sörubakstur
Elín er einnig liðtæk í eldhúsinu,
enda rekur hún veisluþjónustuna
Fröken Elín, og hitti hún postulíns-
hópinn sinn í eldhúsi veisluþjón-
ustunnar eina helgina fyrir jól.
Saman bakaði hópurinn 3.000 Sörur
fyrir jólin og skipti á milli sín.
Atvinnumaður
í jólaskreytingu
n Búin að skreyta og kaupa jólagjafir
H
anna Heiður Bjarnadóttir
hefur einstaklega gaman
af jólaundirbúningnum.
Þegar DV kíkti í heimsókn
um miðjan nóvember var heim-
ilið þegar skreytt með ljósum,
greni, styttum og fleiru. Þá var
jólatréð komið í fullan hátíðar-
skrúða inni í stofu og jólasokkar
héngu við arininn.
„Ég nenni ekki að standa í
einhverju stressi um jólin. Ég vil
miklu frekar byrjar snemma og
dunda mér við jólaundirbún-
inginn í rólegheitum.“ Hanna
segist til dæmis vera búin að
kaupa allar jólagjafirnar í ár en
að hún ætli ekki að pakka þeim
öllum inn í einum rykk, heldur
dunda sér við að pakka inn einni
og einni gjöf.
Foreldrarnir uppteknir um jólin
Hanna segist alltaf hafa verið svona
mikið jólabarn. Þar sem foreldrar
hennar voru í verslunarrekstri
þegar hún var ung voru þau mjög
upptekin fyrir jólin og kom það í
hlut Hönnu sem barn og ungling-
ur að skreyta heimilið. Hún segist
reyndar enn sjá um að skreyta fyrir
jólin hjá mömmu sinni.
Fjölskylda hennar var lengi
með túristabúð og sá Hanna um
að kaupa inn jólavörurnar sem
seldar voru í henni. „Það var
engin áhersla lögð á jólavörur í
búðinni en ég fékk að kaupa inn
alls kyns jólahluti. Svo á endan-
um var þetta orðið svo fyndið, að
desembermánuður var orðinn
mesti sölumánuðurinn hjá okkur
í stað sumarmánaðanna eins og
venjan er með túristabúðir.“
McDonald‘s á aðfangadag
Hanna segist ekki vera mjög föst
í hefðum fyrir jólin fyrir utan
ákveðnar venjur eins og aðventu-
kransagerð og heimsókn í kirkju-
garðinn. Hefur hún líka haldið jól
í Noregi, Bandaríkjunum og einu
sinni í Trínidad og Tóbagó, þar
sem þeim bauðst að eyða jólum
hjá skólabróður mannsins henn-
ar. Þá fékk hún McDonald‘s-mál-
tíð á aðfangadag sem hún segir
að hafi verið mjög skrýtið, en að
öðru leyti hafi jólahaldið þar verið
mjög flott þótt það væri ólíkt ís-
lenskum venjum.
„Það verður svo
mikill samhug-
ur í öllum og það er svo
æðislegt.
80.000 perlur í
einu jólaskrauti
n Hilmar perlaði risavaxinn jólasvein
M
argrét Hrönn
Ægisdóttir er
mjög dugleg
við að gera
heimagert jólaskraut.
Notast hún mikið við
gömlu góðu plast-
perlurnar til að töfra
fram jólafígúrur og
margt fleira. Margrét
segir að smáperlur séu
í miklu uppáhaldi hjá
sér þessa dagana og
úr þeim geri hún ofur-
smáa og skemmti-
lega jólakaraktera til
að hengja á grein-
ar. En það er ekki allt
jólaskrautið smátt í
sniðum á heimilinu
því Margrét perlaði
heilt jólaþorp fyrir
nokkrum árum, sem
hún er enn að vinna
í að bæta og stækka.
Margrét segist nota
föndrið til þess að
slaka á og dund-
ar sér við að perla
þegar hún á lausa
stund, því henni
finnst það svo
róandi.
Vakti lukku
Hilmar, maður-
inn hennar, er að
sama skapi stór-
tækur þegar
kemur að
jólaföndrinu
en hann perl-
aði risavax-
inn jólasvein
sem hangir við
innganginn
hjá þeim. Að
sögn Mar-
grétar byrj-
aði þetta allt
í fyrra, þegar
Hilmar perl-
aði höfuðið
af Coca Cola-
jólasveinin-
um og hengdi
fram. Hann vakti svo mikla lukku hjá
nágrönnunum að þeir fóru að sýna
gestum sínum verkið. Hilmar ákvað
því að gera enn betur í ár og perlaði
jólasvein sem er um 160 sentimetrar
á hæð. Í hann fóru um 80.000 perlur.
Þó er ekki allt jólaskrautið á
heimilinu úr perlum, Margrét er
einstaklega mikil föndurkona og
hefur gert lampaskerma, heimagert
baðsalt, ilmandi jólakrukkur og
fleira, sumt fyrir heimilið og ann-
að til að gefa um jólin. Þá finnst
henni skemmtilegast í jólaundir-
búningnum að pakka
inn gjöfunum og gerir
stóra drottningarpakka
eins og hún kallar þá.
Stundum býr hún til heil-
ar skreytingar á pakkana
og sankar hún að sér
pakkaskrauti, blómum og
þess háttar allt árið fyrir
jólaskreytingarnar.
Föndra saman
Margrét segist alltaf hafa
verið mikið jólabarn en
að hún hafi ekki föndrað
svona mikið fyrir jólin eins og hún
gerir í dag, það hafi aukist eftir að
hún kynntist Hilmari og segir hún
að hann sé jafn mikill föndrari í sér
og hún.
Margrét hefur haldið jól bæði á
Spáni og í Bandaríkjunum og er á
því að hún vilji halda jól á Íslandi,
það sé best. Draumurinn er að fara
eitthvert árið upp í sumarbústað
svona tíu dögum fyrir jól, með góð-
an skammt af föndurdóti og eyða
jólunum þar í afslöppun og koma
ekki heim fyrr en í janúar.
Málar jólamyndir
á postulín allt árið
n 3.000 Sörur bakaðar fyrir jólin
Heimagert Margréti og Hilmari finnst
skemmtilegt að föndra eigið jólaskraut.
Þau hjónin hafa gaman af því að perla.
Gaman að
jólaundir-
búningnum
Jólatréð komið í
hátíðarskrúðann.
Hanna Heiður er
mikið jólabarn.
MynDir SiGtryGGur ari
Sterkar hefðir Elín Guðný er alin upp við sterkar jólahefðir og leggur mikið upp úr því að halda þær hátíðlegar. MynDir eyþór árnaSon