Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Qupperneq 15
Sjóvá neitar
að borga
Nú er ég
bara stopp
Tennur í dóttur Valdísar Láru Thorarensen brotnuðu þegar leið yfir hana á gamlárskvöld. – DVÁsa Atladóttir hjá Landlæknisembættinu vill kenna almenningi að meðhöndla lúsasmit. – DV Írisi Dröfn Kristjánsdóttur er neitað um fyrirgreiðslu námslána. – DV
Næsta ríkisstjórn?
Spurningin
„Ömurlega! Ég er mjög reið
og sjokkeruð yfir framkomu
Útlendingaeftirlits gagnvart
hælisleitendum í samfélagi sem
á að heita menntað og upplýst.“
Kristín Þorláksdóttir
20 ára þjónn
„Mér finnst bara málefni hælis
leitenda vera í skelfilegu fari.“
Guðmundur Óskar
32 ára leigubílstjóri
„Ég hef litla skoðun á því en mér
finnst hins vegar vera þörf á því
að innflytjendur læri íslensku.“
Gísli Björnsson
21 árs flugnemi
„Ég hef bara ekki myndað mér
skoðun á málinu.“
Magnús Oddur Kristjánsson
58 ára byggingamaður
„Ég hef bara aðeins fylgst með
þessu en mér finnst að ferlið
mætti ganga aðeins fljótar fyrir
sig. Það er svolítið eins og það
vanti fleiri í starfið.“
Alexandra Baldursdóttir
23 ára nemi
Hvernig finnst þér
komið fram við
hælis leitendur?
1 Hætt komnir í veiðiferð Bræðurnir Greg og Garry Cherry lentu í
ógöngum á vélarvana bát þegar þá rak
að Barren Forkstíflunni í McMinnville í
Tennessee í Bandaríkjunum.
2 Fjórtán ára bjargaði konu Ungur drengur í Bandaríkjunum sýndi
snarræði og bjargaði konu undan
manni sem ætlaði að myrða hana.
3 Bresk amma dæmd til dauða 56 ára bresk amma hefur verið dæmd
til dauða í Indónesíu fyrir að smygla
tæpum fimm kílóum af kókaíni til
landsins í maí á síðasta ári.
4 Eigandi Rex vill leysa vandann Eigandi labradorhundsins Rex sem geltir
stundum við Hótel Brú í Hvalfjarðarsveit,
vill sættast við hóteleigandann.
5 Ættleiddu dóttur Sjónvarpskonan Rosie O´Donnell og eiginkona hennar,
Michelle Rounds, hafa eignast sitt fyrsta
barn saman, dótturina Dakotu, sem þær
stöllur ættleiddu í byrjun janúar.
6 Milljarðaafskriftir vegna gjaldþrots BNT Engar eignir fund
ust í þrotabúi EM 13 ehf. sem áður hét
BNT og var móðurfélag olíufélagsins
N1. Afskrifa þarf því 4,3 milljarða króna.
Mest lesið á DV.is
L
íti maður á niðurstöður nýjustu
skoðanakannana virðist næsta
ríkisstjórn liggja fyrir. Eina mögu
lega ríkisstjórnin sem myndi
ekki innihalda Sjálfstæðisflokkinn er
stjórn allra hinna fjögurra flokkanna
sem komast á blað. Það væri vissulega
áhugaverð tilraun ef svo færi, en hætta
á að sú stjórn yrði varla langlíf. Hinn
möguleikinn er þá ríkisstjórn Sjálf
stæðisflokks og – hverra?
Augljósasti kosturinn væri Fram
sóknarflokkurinn, enda er þjóðin
orðin vön að sjá þá Bjarna og Sig
mund sitja hlið við hlið. Þetta yrði
þó að mörgu leyti vandræðastjórn. Í
fyrsta lagi eru allar líkur á því að hún
yrði með afar nauman meirihluta ef
hann næðist, kannski ekki nema einn
mann. Hægristjórnin yrði því í sama
vanda og vinstristjórnin nú, þó vissu
lega sé flokksaginn mun meiri í flokk
um þeim sem kenna sig við einstak
lingshyggju en þeim sem kenna sig
við félagshyggju. Þeir ættu erfitt með
að ná sínum málum í gegn. Ofan á
bætist að Framsóknarflokkurinn hef
ur verið með tilburði í að staðsetja sig
hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn
og myndi svo hrein hægristjórn eiga
mjög háværa andstæðinga, rétt eins og
vinstristjórnin nú. Þar að auki muna
margir enn tvíræði þeirra Halldórs og
Davíðs sem skiptu bönkunum á milli
sín, og myndi slík stjórn vekja upp
óheppilegar minningar.
Sjálfstæðismenn og VG eða BF?
Aðrir möguleikar eru fljótlega af
greiddir. Ef Björt framtíð legðist í sæng
með Sjálfstæðismönnum myndi sú
stjórn einnig hafa veikan meirihluta,
ef hann næðist. Erfitt er þar að auki
að sjá hver myndi hagnast á slíku. BF
myndi missa sinn helsta styrk, sem er
að standa utan við gamla valdakerfið,
á meðan Sjálfstæðismönnum fyndist
líklegast fyrir neðan sína virðingu,
sem hefðbundinn valdaflokkur lands
ins, að eiga samneyti við skemmti
krafta og nýgræðinga.
Þriðji möguleikinn, Sjálfstæðis
flokkur og VG, virðist óhugsandi. Allt
síðan Ísland gekk í NATO árið 1949
hefur samstarf ystu flokka litrófsins
ekki komið til greina, og myndi þar
að auki varla ná meirihluta. Á hinn
bóginn er ekkert ómögulegt, og ef
svo fer að Evrópumálin verða helsta
þrætuepli kosninganna er þar kom
inn samstarfsgrundvöllur. Áhugavert
var t.d. í Silfri Egils um helgina að sjá
Evrópuflokkana BF og Samfylkingu
sitja einum megin við Egil og Evrópu
andstæðingana VG og sjalla hinum
megin.
Viðreisnarstjórn hin fjórða
Sem skilur eftir líklegasta kostinn,
Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk. Til
mikils er að vinna fyrir Sjálfstæðis
menn. Þeir myndu fá öruggan
meirihluta, og þar að auki takast að
fá stuðning (eða þegjandi samþykki)
miðju og miðjuvinstrifólks, sem yrði
mun erfiðara við að eiga ef þeir ynnu
með Framsóknarmönnum.
Erfiðara er að sjá hvað Samfylk
ingin myndi græða á slíku samstarfi.
Margir sjá viðreisnarstjórnina enn í
hillingum, en staðreyndin er sú að
æ síðan hefur sósíaldemókrötum
gagnast illa að vinna með Sjálfstæð
ismönnum. Þegar Alþýðuflokkurinn
reyndi það árið 1991 hætti hann í
kjölfarið að vera til, og sú atburðarás
var sett af stað sem seinna leiddi til
hrunsins.
Hrunstjórn hin seinni
Sú ákvörðun Samfylkingar að ganga í
ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum
árið 2007 hlýtur svo að teljast með
verstu pólitísku mistökum síðari ára.
Samfylkingin axlaði þar með ábyrgð á
hruninu án þess endilega að geta haft
mikil áhrif á atburðarásina, og hefur
sú arfleifð veikt flokkinn og vinstri
stjórnina æ síðan. En því er ekki að
neita að ráðherrastólar heilla, og eft
ir erfiðleika með samstarfið við VG
eru líklega margir, svo sem Árni Páll,
sem líta svo á að betra sé að vinna
með samhentum Sjálfstæðismönnum
(þó þeir stefni í vitlausa átt) heldur
en flokk sem klofnar í hvert sinn sem
ákvörðun skal taka.
Augljósasti gallinn við slíka ríkis
stjórn er Evrópumálin, en það er varla
óyfirstíganlegt. Sjálfstæðismenn gætu
hæglega samþykkt, eins og VG gerði,
að láta málið í þjóðaratkvæðagreiðslu,
þar sem því yrði líklega hafnað. Hitt
vandamálið felst í því að hér myndi
hrunstjórnin aftur vera mætt til leiks,
en sú arfleifð öll myndi hvort eð er há
samstarfi með Framsókn og fáir aðrir
kostir í boði. Því má líklegast segja:
Velkominn aftur til 2007.
En hitt ber að hafa í huga, að enn
eru nokkrir mánuðir til kosninga, og
margt getur breyst í millitíðinni.
Mænum á Jesú Myndlistarkonan Hulda Halldór opnaði á þriðjudag myndlistarsýningu í galleríi við gatnamót Lönguhlíðar og Miklubrautar. Hún kom einu verkanna fyrir utan
dyra við það tækifæri. Verkin á sýningunni hafa trúarlegar skírskotanir. MYND SIGTRYGGUR ARIMyndin
Aðsent
Valur
Gunnarsson
Umræða 15Miðvikudagur 23. janúar 2013
Hann var litríkur
karakter
Rósa Björk Guðjónsdóttir komst að því fyrir tilviljun að pabbi hennar hafði orðið fyrir líkamsrárás. – DV
„Sú ákvörðun Samfylkingar
að ganga í ríkisstjórn með
Sjálfstæðismönnum árið 2007
hlýtur svo að teljast með verstu
pólitísku mistökum síðari ára