Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Page 21
Sport 21Miðvikudagur 23. janúar 2013
var við stjórnvölinn, en hann var
sendur aftur til City í janúar 2012
vegna meiðsla.
Meiðslin virðast hafa haft mik-
il sálræn áhrif á Johnson því á síð-
asta ári var hann tvisvar sakfelld-
ur fyrir ölvunarakstur og gert að
greiða eina milljón króna í sekt.
Eftir að hann var leystur undan
samningi hjá City hefur Johnson
opinberað sig og greint frá sál-
rænum kvillum sem hann hefur
glímt við. Hann sagðist hafa dval-
ið á meðferðarstofnunum vegna
áfengisfíknar en biðlaði þó til fjöl-
miðlamanna og almennings að
leyfa sér að fá frið. Hamann segir í
samtali við BBC að hann hafi reynt
að ná tali af gamla lærisveini sín-
um en án árangurs. Hamann er
sannfærður um að meiðsli séu að
stórum hluta rót allra erfiðleika
Johnson í einkalífinu.
„Ég veit hversu erfitt það er að
meiðast strax aftur eftir að hafa
verið lengi á sjúkralistanum. Það
er einmanalegt að vera á hliðar-
línunni og geta ekki gert það sem
manni finnst skemmtilegast að
gera. Síðan spilar það inni í að
hafa ekki getað staðið undir þeim
gríðarlegu væntingum sem til hans
voru gerðar.“
Hamann vonar þó enn að John-
son geti snúið við blaðinu enda er
hann aðeins 24 ára. „Það er aldrei
að vita, ef hann kemur sér á rétta
braut gæti hann átt ágætan fer-
il sem knattspyrnumaður. Hann
er aðeins 24 ára og er svo ótrú-
lega hæfileikaríkur. Mig hryllir við
þeirri tilhugsun að sjá hann ekki
spila aftur.“ n
n Var álitinn efnilegasti leikmaður Englands n Ekki of seint að byrja aftur, segir fyrrverandi liðsfélagi
n Einar Jónsson, handknattleiksþjálfari Fram, hrósar Aroni Kristjánssyni
M
iðað við það sem maður
bjóst við þá var þetta á
pari,“ segir Einar Jónsson,
handknattleiksþjálfari
karlaliðs Fram, um
frammistöðu Íslands á HM í hand-
bolta. Liðið lauk keppni á sunnu-
dag þegar það féll úr leik eftir harða
rimmu við ógnarsterkt lið Frakklands
í 16 liða úrslitum.
Einar segir að auðvitað hafi ver-
ið óskandi að komast í 8 liða úrslit
en bendir á að liðið hafi verið mjög
óheppið með mótherja. „Leikurinn
gegn Rússum [fyrsti leikurinn, innsk.
blm.] var að einhverju leyti klúður,“
segir hann en tekur þó fram að mið-
að við mannskap hafi liðið átt jafna
möguleika á sigri. „Svo gerðist það í
hinum riðlinum að úrslitin voru ekki
samkvæmt bókinni – sem gerði það
að verkum að við mættum Frökkum.“
Einar segir aðspurður að þrátt fyrir
að liðið hafi átt í fullu tré við Frakka
hefðu möguleikarnir líklega verið
meiri gegn Þjóðverjum eða hinum
liðunum í A-riðli sem komust í 16
liða úrslit.
Óheppnir með mótherja
Ef Íslendingar hefðu lagt Frakka
að velli hefðu Króatar orðið and-
stæðingarnir í 8 liða úrslitum.
Króatar eru með eitt allra besta lið
í heimi og hafa reynst okkur erfið-
ir í gegnum tíðina. Ef Ísland hefði
hins vegar náð öðru sætinu í riðlin-
um hefði leiðin orðið miklu greiðari.
Liðið hefði þá mætt Brasilíu í 16 liða
úrslitum og Slóvenum í 8 liða úr-
slitum. „Það hefði verið ákjósanlegt
að fá Brasilíu í 16 liða úrslitum en
Slóvenar eru með frábært lið. Ég sæi
okkur ekki labba í gegnum það verk-
efni. Það kæmi mér ekki á óvart að
Slóvenar færu langt á mótinu, þeir
eru með frábært sóknarlið,“ segir
Einar.
Aron Kristjánsson þjálfari stýrði
Íslandi í fyrsta sinn á stórmóti að
þessu sinni. Einar er ánægður með
hvernig hann spilaði úr þeirri stöðu
sem hann var í. „Mér fannst hann
rótera dálítið mikið á móti Rússum en
að öðru leyti er ekkert hægt að gagn-
rýna varðandi hann lagði þetta upp.
Hann renndi dálítið blint í sjóinn –
maður sá það í fyrsta leik við Rússa
að hann var ekki alveg búinn að finna
réttu blönduna. Ólafur Guðmunds-
son var fyrsti leikmaðurinn sem kom
inn á og hann var svo sendur heim.“
Einar segir að mjög erfitt geti verið að
vita fyrirfram hverjir spjari sig á stóra
sviðinu. Ólafur Gústafsson hafi nýtt
sínar mínútur mjög vel, bæði í vörn
og sókn, en næstu tvö ár munu að
líkindum skera úr um hvort Ólafur
Guðmundsson komist í lands-
liðsklassa, eins og Einar orðar það.
Aron Pálmars í sérflokki
Aron Pálmarsson átti frábært mót.
Hann skoraði 24 mörk, mörg úr mjög
erfiðri stöðu, og var potturinn og
pannan í sóknarleik liðsins. Hann
lagði upp hvorki fleiri né færri en
35 mörk fyrir félaga sína, eða tæp-
lega 6 mörk í leik. Markahæsti maður
mótsins, Makedóníumaðurinn Kiril
Lazarov, kemst næst honum með
22 stoðsendingar, eða 3,5 í leik. Ein-
ar tekur undir það að Aron sé frábær
leikmaður. „Sá síðasti sem ég man
eftir jafn góðum á þessum aldri heitir
Nikola Karabatic. Einar bendir á að
Aron hafi iðulega verið sá leikmað-
ur í sóknarleik liðsins sem tekið hafi
af skarið þegar í öngstræti var komið.
Ekki sé því sanngjarnt að horfa bara á
skotnýtinguna, sem var rétt undir 50
prósentum.
Sérfræðingar höfðu nokkrar
áhyggjur af hægri vængnum í sókn-
inni, í fjarveru Ólafs Stefánssonar,
Alexanders Petersson og Rúnars
Kárasonar. Ásgeir Örn Hallgrímsson
var eina örvhenta skyttan í hóp
Arons Kristjánssonar. „Sóknarlega
var Ásgeir ekki nógu góður. Hann er
frábær „rotation player“ [leikmaður
til að koma inn á, innsk.blm.] en ég
held hann hafi ekki getuna í að leysa
þetta einn síns liðs.“
Þjálfari með lausnir
Leikurinn við Frakka var líklega sá
leikur í keppninni sem liðið spil-
aði best, bæði í vörn og sókn. Liðið
fékk, þrátt fyrir líkamlega yfirburði
Frakka, aðeins tvær brottvísanir og
spilaði sig í færi í flestum sóknum.
Í síðari hálfleik, þegar Frakkar settu
Aron Pálmarsson í aukna gæslu,
setti Aron þjálfari nafna sinn í
vinstri skyttustöðuna. Einari fannst
það klókt af kollega sínum, sérstak-
lega í ljósi þess að Ásgeir Örn fann
sig ekki vel í sókninni. „Hann var
með alls kyns kerfi í kringum það
tilbúin og mér fannst mjög flott
hvernig hann leysti það þegar Aron
var tekinn úr umferð,“ segir Einar
sem fannst Aron Kristjáns gera fína
hluti á mótinu. En hverjir sigra á
mótinu? „Danirnir líta alveg svaka-
lega vel út en ég spáði Frökkum
sigri fyrir mótið. Ég held mig við þá
spá,“ segir Einar léttur í bragði.
Einar segir aðspurður að fram-
tíðin sé björt í íslenskum hand-
bolta. Það hafi til dæmis sýnt sig
á þessu móti. Margir efnilegir
leikmenn séu auk þess spilandi í
deildinni hér heima og aðrir séu
komnir að hjá liðum í stærri deild-
um. Hann segir fyrirsjáanlegt að
eftir fáein ár verði tveir eða þrír
leikmenn sem muni berjast um
byrjunarliðsstöðurnar í lands-
liðinu. „Breiddin er að aukast og
margir strákar, sem eru að nálgast
tvítugt, munu banka á landsliðs-
dyrnar á næstu árum.“
Í helgarblaði DV rýnir Einar,
stöðu fyrir stöðu, í þá leikmenn
sem líklegt er að muni berjast um
sæti í landsliðinu eftir fáein ár. n
„Ekkert hægt
að gagnrýna“
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Tölfræði leikmanna íslenska liðsins
Útileikmenn Íslands Mörk Skotnýting Stoðsendingar Tæknimistök Stolnir boltar Varin skot Brottvísanir Mínútur
Guðjón Valur Sigurðsson 41 59 10 5 3 0 0 307
Ásgeir Örn Hallgrímsson 10 40 10 12 7 0 5 285
Aron Pálmarsson 24 46 35 11 4 3 0 277
Vignir Svavarsson 11 73 7 4 3 2 5 189
Þórir Ólafsson 27 73 0 3 3 0 1 184
Sverre Jakobsson 0 0 0 0 9 3 4 181
Arnór Þór Gunnarsson 13 76 3 2 5 0 1 160
Snorri Steinn Guðjónsson 16 48 3 4 0 0 0 136
Kári Kristján Kristjánsson 16 73 3 8 4 0 0 118
Ólafur Gústafsson 8 47 1 8 1 1 0 75
Stefán Rafn Sigurmannsson 5 71 1 1 1 0 2 51
Ólafur Guðmundsson 4 57 5 2 1 1 3 37
Ernir Arnarson 2 50 1 4 0 1 2 35
Fannar Þór Friðgeirsson 3 100 1 0 0 0 2 25
Róbert Gunnarsson 1 33 0 1 0 0 0 14
Alls/meðaltal 181 56,4 80 65 41 11 25 2.074
„Sá síðasti sem ég
man eftir jafn góð-
um á þessum aldri heitir
Nikola Karabatic.
Brosað gegn um tárin Fáir njóta þess meira að spila á
HM en jaxlinn Sverre Jakobsson. Hér stappar hann stálinu í
sína menn eftir leikinn við Frakka. MYND FRÉTTABLAÐIÐ
RAUNIR OG SORGIR
MICHAEL JOHNSON