Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Blaðsíða 12
Erlent 13Mánudagur 4. mars 2013 Elísabet flutt á sjúkrahús n Veirusýking gerir drottningu lífið leitt E lísabet Bretlandsdrottning var flutt sárþjáð á King Edward- sjúkrahúsið í Lundúnum á sunnudag eftir að veirusýking í meltingarvegi, sem hefur hrjáð hana undanfarna daga, varð svæsin. Þetta er í fyrsta skipti í áratug sem hin 86 ára drottning er flutt á sjúkrahús til að leggjast þar inn. Veikindin þýða að drottningin hefur neyðst til að afboða sig í öllum verkefnum vikunnar sem að venju eru ótalmörg enda drottningin upp- tekin kona. Breska pressan hefur eftir heim- ildum að drottningin sé þrátt fyrir sjúkrahúsinnlögnina almennt hraust og hress þá sé ljóst að mikið hafi þurft til að hún samþykkti að láta leggja sig inn. Það var á föstu- dag sem fregnir bárust af því að Bretlandsdrottning glímdi við veik- indi en fæstir reiknuðu þó með að drottningin endaði á sjúkrahúsi. „Ekki ósvipað og eiginmaður hennar þá er drottningin afar stolt af góðri heilsu sinni og lætur ekki svo glatt leggja sig inn,“ hefur Daily Mail eftir heimildarmanni. Breska pressan hefur nokkuð fylgst með líðan og framvindu veik- inda drottningarinnar um helgina en þar hefur meðal annars kom- ið fram í máli lækna sem rætt hefur verið við að ákjósanlegt sé að með- höndla veirusýkingar í meltingar- vegi heima fyrir þar sem þær geta verið smitandi. En talið er líklegt að það hafi verið metið sem svo að sökum aldurs drottningarinnar hafi verið best að fylgjast með líð- an hennar á sjúkrahúsi og geta þá gefið henni vökva í æð til að forðast ofþornun. Ekki er búist við að drottningin verði á sjúkrahúsi í meira en tvo daga eða svo. Drottningin heldur upp á 87 ára afmæli sitt í næsta mánuði. n n Kraftur vígahnattarins í Rússlandi á við 30 kjarnorkusprengingar Þ úsundir kvenna deyja af völdum heimilisofbeldis í Rússlandi á hverju ári sam- kvæmt áætluðum tölum. Þó svo að samtök sem berjast gegn heimilisofbeldi hafi náð eyrum stjórnvalda í auknum mæli á undan- förnum árum er víða pottur brot- inn í rússneska réttarkerfinu og eru afar fá úrræði í boði fyrir konur sem vilja leita skjóls frá ofbeldisfullum eiginmönnum. Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallaði ítarlega um stöðu þessara mála í Rússlandi á dögunum. Í um- fjölluninni kemur fram að hvorki fleiri né færri en sex hundruð þúsund kon- ur verði fyrir heimilisofbeldi, andlegu og líkamlegu, á hverju ári – og af þeim deyja fjórtán þúsund á ári. Aðgerðaleysi lögreglu „Þetta hefur verið martröð,“ segir ung einstæð tveggja barna móðir, Anya að nafni, í samtali við Oleg Boldyrev, fréttaritara BBC í Rússlandi, en hann heimsótti kvennaathvarf í Moskvu fyrir skemmstu. Anya var gift í sjö erfið ár og varð hún oft fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns. Hún lifði í ótta og vissi ekki hvernig hún ætti að bera sig að við að leita hjálpar. Að lokum fékk hún þó nóg og hafði sam- band við lögreglu fyrir margt löngu til að tilkynna ofbeldið. Skilaboðin frá lögreglunni, að hennar sögn, voru þau að hún gæti í raun og veru lítið gert þar sem ofbeldið ætti sér stað á „heimili eiginmannsins“. Hún ákvað að þrauka og bíða eftir að börn þeirra hjóna væru orðin nógu gömul til að geta vitnað gegn föður sínum. Síðan ákvað hún að taka ofbeldið upp á filmu en það kom ekki að neinum notum. „Lögreglan gerði ekkert. Lögreglukona kom á staðinn eftir að hann beitti mig ofbeldi og spurði af hverju ég færi ekki bara burt eins og hún hefði gert.“ Hún skildi loks við eiginmann sinn fyrir tveim- ur árum en vegna fjárskorts bjó hún áfram á heimilinu. Um miðjan janúar síðastliðinn var hún lamin illa og fékk hún þá nóg og leitaði í kvennaathvarf í Moskvu – eina athvarfið á vegum yfir- valda í borginni sem telur 12 milljón- ir íbúa. Í athvarfinu eru aðeins 35 her- bergi. Engar opinberar tölur Í umfjöllun BBC kemur fram að enginn viti með vissu hversu margar konur þurfi á athvarfi sem þessu að halda. Heimilisofbeldi er í raun ekki flokkað sem glæpur og engin opin- ber gögn eru til um fjölda kvenna sem verða fyrir heimilisofbeldi. Því eru að- eins til áætlaðar tölur sem benda til þess að að lágmarki 600 þúsund konur verði fyrir heimilisofbeldi á hverju ári. Sem fyrr segir látast fjórtán þúsund konur á hverju ári, eða tæplega 40 á dag að meðaltali. Miðað við þessar töl- ur er ljóst að framboðið á athvörfum annar ekki eftirspurninni heldur þvert á móti. Í athvarfinu, sem er í útjaðri Moskvuborgar, geta konur komið og dvalið tvo mánuði í senn. Konurnar sem í athvarfið leita þurfa því að geta staðið á eigin fótum að þessum tveim- ur mánuðum liðnum og reynist það mörgum erfitt. Þegar dyrnar lokast Konur sem verða fyrir heimilisof- beldi þurfa að sýna fram á það með óyggjandi hætti svo eitthvað sé gert. Sönnunarbyrðin er öll þeirra megin og jafnvel þótt þær geti sýnt fram á að þær hafi orðið fyrir ofbeldi eru til dæmi þess að lögregla bregðist seint og illa við, líkt og í tilviki Anyu. Er það samdóma álit fjölmargra fórnarlamba að lögregla þrýsti á að þau bíði með að tilkynna ofbeldið og dragi þannig úr þeim kjark. Andrei Levchuk, lög- reglufulltrúi í Moskvu, segir að lög- regla fylgi þó í einu og öllu settum lögum. Í langflestum tilfellum geti lög- regla einungis veitt meintum ofbeldis- manni áminningu enda séu í flest- um tilfellum engin vitni að glæpnum, annar en brotaþoli. „Þær biðja okkur oft um að hræða maka sína svo þeir beiti þær ekki ofbeldi aftur. En það er ekki okkar hlutverk. Við getum sagt meintum ofbeldis manni að hann geti verið í slæmum málum ef hann endurtekur leikinn. En Guð einn veit hvað gerist þegar dyrunum er lokað.“ Vonast eftir breytingum Á tímum Sovétríkjanna voru lög í gildi sem gerðu yfirvöldum kleift að taka meintan ofbeldismann af heimilinu í allt að tvær vikur ef minnsti grunur vaknaði um heimilisofbeldi. Þau lög eru hins vegar ekki í gildi lengur en það er mat Levchuk að upptaka þeirra laga gæti haft fyrirbyggjandi áhrif. Eins og staðan er í dag verður heim- ilisofbeldi ekki að sakamáli nema brotaþolar hafi orðið fyrir alvarleg- um meiðslum eða hreinlega látið lífið. Það er hins vegar mat Marinu Piskla- kovu, stofnanda frjálsra félagasam- taka, ANNA, sem reka nokkur kvenna- athvörf, að viðhorf séu að breytast til hins betra. „Fyrir tuttugu árum, þegar þessi mál voru rædd á opinberum vettvangi, til dæmis í spjallþáttum, þá var ávallt spurt hvað þessar konur hefðu gert til að réttlæta þessar bar- smíðar. Nú hefur dæmið snúist við og fólk spyr hvað sé hægt að gera til að breyta þessu,“ segir hún. Enn sem komið er hefur barátta samtaka á borð við ANNA ekki skilað miklu og njóta ofbeldismennirnir frekar verndar en fórnarlömbin því lagaumhverfið er þannig. Drög að lagabreytingum liggja fyrir í Dúmunni, neðri deild rúss- neska þingsins, en þær hafa ekki verið kláraðar. Segist Pisklakova vonast til að árið 2013 verði árið sem hlutirnir taka breytingum – fórnar lömbum heimilis- ofbeldis til hagsbóta. n n Heimilisofbeldi er alvarlegt vandamál í Rússlandi n Fá úrræði í boði Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Enn óttast um heilsu Chavez Hugo Chavez heyr baráttu upp á líf og dauða vegna krabbameins sem hann glímir við. Þetta segir staðgengill hans í embætti for- seta Venesúela, Nicolas Maduro. Chavez hefur dvalið á Kúbu undanfarnar vikur en þar gekkst hann undir aðgerð vegna krabba- meins. Hann dvelur nú á sjúkra- húsi í Venesúela en breska ríkis- útvarpið, BBC, greinir frá því að Chavez þjáist af erfiðri öndunar- færasýkingu og óttast sé um heilsu hans. Chavez hefur gegnt embætti forseta Venesúela undanfarin 14 ár og var endurkjörinn í embættið í október síðastliðnum. Maduro, sem þykir líklegur arftaki Chavez, segir að Chavez hafi ekki hugsað nógu vel um heilsuna á undan- förnum árum enda hafi hann haft öðrum og brýnni erindum að sinna. Óeirðir vegna dauðadóms Fleiri tugir hafa látist í miklum óeirðum í Bangladess vegna dauðadóms sem kveðinn var upp yfir íslamistanum Delwar Hossain Sayedee í síðustu viku. Sayedee var sakfelldur fyrir fjöldamorð, nauðganir og þjófn- aði í sjálfstæðisstríði Bangladess gegn Pakistan árið 1971. Talið er að allt að þrjár milljónir manna hafi fallið í stríðinu. Sayedee var varaforseti Jama- at-e-Islami-flokksins og vakti dómurinn hörð viðbrögð. Segja stuðningsmenn Sayedee að með dómnum sé ríkjandi stjórn að reyna að koma höggi á pólitískan andstæðing sinn. Sayedee er annar meðlimur Jamaat-e- Islami-flokksins á tiltölulega stuttum tíma sem dæmdur er fyrir stríðsglæpi. Barnungur leigumorðingi fannst látinn Jorge Armando Moreno, 13 ára Mexíkói sem viðurkenndi að hafa starfað sem leigumorðingi fyrir al- ræmd glæpasamtök, fannst látinn á dögunum skammt frá borginni Morelos í miðhluta Mexíkó. Lík Jorges var illa útleikið og af um- merkjum að dæma hafði hann verið pyntaður. Hann var hand- tekinn í febrúar og við yfirheyrslur viðurkenndi hann að hafa orðið að minnsta kosti 10 manns að bana. Honum var sleppt úr haldi vegna ungs aldurs og fannst látinn nokkrum dögum síðar. Pilturinn starfaði fyrir Los Zetas-gengið en auk hans fundust lík þriggja annarra við hlið hans. Eitt þeirra er talið vera af móður hans. Heimilisofbeldi kostar 14.000 líf „Guð einn veit hvað gerist þegar dyrunum er lokað Alvarlegt vandamál Sex hundruð þúsund konur verða fyrir heimilisofbeldi í Rússlandi á ári hverju. Af þeim deyja fjórtán þúsund samkvæmt áætluðum tölum. Baráttukona Marina Pisklakova stofnaði samtökin ANNA fyrir margt löngu. Hún er ötull talsmaður gegn heimilisofbeldi. Hörð af sér Bretlandsdrottning lætur ekki leggja sig inn á sjúkrahús svo glatt. Því er talið að sýkingin hafi verið orðin ansi svæsin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.