Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Síða 17
Fimm börn á sjö árum 18 Lífsstíll 4. mars 2013 Mánudagur Hjónin sigurlaug Hauksdóttir og Finnlaugur Pétur Helgason höfðu staðið í baráttu við ófrjósemi í tíu ár áður en þau eignuðust fyrsta barnið. Í dag eiga þau fimm börn og að sögn Sigurlaugar eru þau ekkert endilega hætt. Þ eim kemur vel saman og þau deila herbergjum. Það hef­ ur aldrei verið neitt vanda­ mál. Vanalega eru þau mjög hjálpleg og góð hvert við ann­ að en að sjálfsögðu, eins og með öll systkini, getur alltaf eitthvað komið upp á, sem þó sjaldan ristir djúpt. Það segir sig sjálft að þegar það eru fimm börn á heimilinu þá eru ekki alltaf allir sáttir. En sem betur fer á vanalega aðeins eitt barn slæman dag í einu,“ segir Sigurlaug Hauksdóttir en hún og eigin maður hennar, Finnlaugur Pétur Helgason, eiga fimm börn sem fædd­ ust á sjö ára tímabili. Tíu ára ófrjósemi Hjónin höfðu lengi reynt að eignast barn áður en fyrsta barnið fæddist. „Það tók okkur næstum tíu ár frá því að við ákváðum að reyna að eignast barn og þar til það fæddist. Næstum því upp á mánuð. Við bjuggum á Akureyri á þessum tíma og árin liðu án þess að ég yrði ófrísk. Ég var ekki skoðuð almennilega fyrr en við fluttum suður og þá kom í ljós að ég var með legslímuflakk.“ Sigurlaug fékk viðeigandi meðferð við sjúkdómnum og tókst að verða ófrísk en gleðin var skammvinn. „Ég missti fóstur sjö sinnum, misjafnlega langt gengin. Við vorum búin að prófa tæknifrjóvgun og alls kyns aðferðir án árangurs og enduðum í glasafrjóvg­ un sem tókst í fyrstu tilraun. Fyrsta barnið, strákur, fæddist svo í janúar 2004.“ Naut meðgöngunnar Sigurlaug segir að þrátt fyrir allt hafi henni tekist að njóta meðgöngunnar, sem vegna fyrri sögu, var flokkuð sem áhættumeðganga, líkt og næstu tvær. „Það var mjög erfitt að geta ekki eign­ ast barn og tók mikið á, en við vorum dugleg að tala saman. Við höfðum rætt okkar á milli af hverju við vild­ um verða foreldrar og hvað það þýddi ef það tækist ekki. Myndum við hætta saman? Okkur fannst við verða að gera okkur alveg ljóst hvernig líf okkar yrði ef þetta gengi ekki. Þegar ég varð ófrísk ákvað ég að njóta meðgöngunnar. Auðvitað var ég skíthrædd til að byrja með en hugs­ aði sem svo að ef ég myndi missa þá myndi ég taka á því þegar þar að kæmi. Mér fannst ekki sanngjarnt gagnvart barninu að vera ekki glöð og ánægð ef allt gengi síðan vel. Þetta tókst og ég naut mín í botn.“ Sigurlaug og Finnlaugur Pétur bjuggust við að þurfa að gangast und­ ir aðra glasameðferð til að eignast annað barn en öllum að óvörum varð Sigurlaug ófrísk aftur, án inn­ grips, og annar strákur fæddist árið 2006. Þriðja barnið kom í heiminn 2007, það fjórða 2009 og fimmta 2011. „Okkur datt ekki annað í hug en að við yrðum að fara aftur í glasafrjóvgun. Glasafrjóvgun er dýr og við höfðum hugsað okkur að safna pening fyrir næsta skipti. Við urðum náttúrulega alsæl þegar í ljós kom að ég var orðin ófrísk og höfum orðið það í hvert einasta skipti síðan – alveg rosalega ánægð. Líka núna síðast, þótt fimmta barnið hafi ekki verið planað,“ segir Sigur­ laug en yngstu börnin tvö komu í heiminn þrátt fyrir að Sigurlaug hafi verið á getnaðarvarnarpillunni. „Kvensjúkdómalæknirinn minn hef­ ur hlegið að okkur og gerir góðlátlegt grín að því að lykkjan muni ekki held­ ur virka fyrir mig,“ segir hún brosandi. Alls ekki fyrir alla Það er mikið að gera á stóru heimili en Sigurlaug kvartar ekki. „Þetta er bara verkefnið okkar núna. Uppeldi er þannig að þú tekur þér ekkert frí frá því. Ég er alltaf að og alltaf með eitthvert barn í einhvers konar prógrammi; eitt er að hætta með snuð, annað að hætta með bleiu og svo framvegis. Svo er það þvotturinn, tiltekt og skutl út um allt. Þetta er brjáluð vinna og maður þarf að vera skipulagður og við hjón­ in samhent til að þetta gangi. Sem betur fer eru þær stundir fáar sem ég er alveg uppgefin. Þær gleymast líka fljótt. Þetta er skemmtileg og gefandi starf en þetta er samt alls ekki fyrir alla. Margir eru í vandræðum með eitt barn.“ Hún segir þau hjónin sjaldnast fara út saman en að þau eigi sinn tíma með börnunum og eftir háttatíma þeirra. „Börnin fara snemma að sofa, það tekur ekki nema korter að koma liðinu niður. Ég hef samt ekki mikinn tíma fyrir sjálfa mig og er heppin ef ég fæ að fara ein á klósettið. Frítími fyrir mér er korter. Og það að fá að fara ein í Bónus er algjör lúxustími.“ Fæddi á 20 mínútum Sigurlaugu líkar vel að vera ófrísk en viðurkennir að hafa verið komin með smá leiða síðast. „En oftast nær líður mér mjög vel á meðgöngu. Þá finnst mér ég blómstra. Ég fæ að vísu slæma morgunógleði fyrstu þrjá mánuðina og hef fengið slæma grindargliðnun. Ætli ég hafi ekki fengið að prófa þetta flest. Fæðingarnar hafa alltaf gengið eins og í sögu. Síðast liðu 20 mín­ útur frá fyrstu hríðum þar til barnið var komið í heiminn. Ég er orðin svo „prófessjonal“ í þessu. Þetta er ekkert vandmál. Enda ætti ég varla fimm börn ef ég hefði slæma reynslu af fæðingum,“ segir hún brosandi en Sigurlaug hefur farið í gegnum allar fæðingarnar án verkjalyfja. Aðspurð segir hún tilhlökkunina alveg jafn mikla fyrir fyrsta barni og því fimmta. „Spenningurinn er alltaf jafn mikill, en með fyrsta barn var maður meira hræddur. Þá vissi ég ekkert hvað væri að fara gerast og hafði heyrt margar ljótar sögur. Svo hefur verið stutt á milli hjá mér og því man ég þetta allt og kem alltaf reynslunni ríkari í næstu fæðingu. Síðast vissi ég upp á hár að þegar næsta hríð kæmi, færi ég að remb­ ast og þá myndi barnið fæðast strax. Og það gerðist. Þetta er bara eitthvað sem gerist. Ég fæ hríðir, fæ barnið, stend upp og fer heim. Bara eins og fara í læknisskoðun – voðalega lítið mál eitthvað.“ Ekkert endilega hætt Hún viðurkennir að hafa verið haldin ákveðinni þráhyggju þegar þau tók­ ust á við ófrjósemina. „En að sama skapi vorum við mikið að hugsa um af hverju þessi þráhyggja stafaði. Hvort okkur langaði að verða foreldrar út af þessari samfélagslegu pressu að eign­ ast barn? Þegar fyrsta barnið er komið eru konur spurðar hvort þær ætli ekki að koma með annað. Í stað þess að spyrja; langar þig í annað? Það er eins og það sé gengið út frá því að hjón eigi að eiga tvö eða þrjú börn. Núna erum við hins vegar spurð hvort við séum ekki örugglega hætt. Við erum komin yfir línuna í hina áttina,“ segir hún og bætir aðspurð við að það sé ekkert endilega þannig. „Maðurinn minn suðar allavega enn­ þá um fleiri og ef það gerðist tækj­ um við bara á því. Allavega myndum við ekki fara í fóstureyðingu. Ég gæti vel hugsað mér að eignast fleiri börn en þá þyrfti ég að eiga meiri peninga. Þetta er dýrt, það er það erfiðasta. Þegar maður er búinn að fara fimm sinnum í fæðingarorlof á svona stutt­ um tíma á maður ekki krónu með gati. Maður safnar ekkert á meðan. Svo efast ég um að maður sé vinsælasti starfskrafturinn, verandi með fimm börn,“ segir Sigurlaug sem er kennari en tók sér árs frí frá vinnu. „Ég var far­ in að vinna eftir síðasta fæðingar orlof en kennaralaunin dugðu ekki fyrir kostnaði. Að vera með barn hjá dag­ mömmu, tvö í leikskóla og tvö í skóla­ gæslu klárar kennaralaunin.“ Þakklát fyrir börnin Sigurlaug viðurkennir að baráttan við ófrjósemina hafi tekið á. „Ég man að ég gat alltaf samglaðst þeim konum sem voru glaðar og ánægðar þegar þær urðu ófrískar en að sama skapi átti ég erfitt með umgangast kon­ ur sem voru óánægðar með ólétt­ una og bölvuðu kúlunni. Það fannst mér gremjulegt; hvernig kona sem vildi ekki verða ófrísk gæti orðið það á meðan ég gæti það ekki. Það er skrítið að vera komin hérna megin við borðið; mun auðveldara andlega, þótt það sé oft mikið að gera. Við erum svo þakklát fyrir börnin okkar og ég hef vanið mig á að kíkja alltaf á þau áður en ég fer að sofa til að breiða yfir þau og kyssa. Og í raun og veru þakka fyrir hvað ég er heppin.“ n „Það fannst mér gremjulegt; hvernig kona sem vildi ekki verða ófrísk gæti orðið það á meðan ég gæti það ekki. indíana ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal Stór fjölskylda Sigurlaug og Finnlaugur Pétur ásamt Helga Fannari, Pétri Snæ, Dagbjörtu Maríu, Óskari Jökli og Sólrúnu Ástu. MyNd PrESSPhoToS.biz

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.