Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Blaðsíða 3
Ö
nnu Kristínar Ólafsdóttur hefur
nú verið leitað í tæpa viku, en
síðast er vitað um ferðir henn-
ar um áttaleytið á fimmtudags-
kvöld í Vesturbænum í Reykja-
vík. Skipulögð leit hófst að Önnu
Kristínu strax morguninn eftir og hef-
ur staðið yfir síðan.
Talið er að hún hafi farið af heim-
ili sínu í Vesturbænum og gengið það-
an niður í fjöru. Samkvæmt heimild-
um DV fundust utanyfirflíkur, skór og
veski í eigu Önnu Kristínar í fjörunni
við Ægisíðuna, skömmu eftir að leit
hófst.
Hefur leitin því aðallega beinst að
strandlengjunni í Vesturbænum, við
Ægisíðuna og út á Seltjarnarnes. Leit-
arsvæðið hefur þó náð alveg frá Gróttu
og út í Straumsvík. Leitað hefur verið
bæði á sjó og úr lofti, fjörur hafa ver-
ið gengnar, kafarar hafa leitað neðan-
sjávar og einnig hefur verið notast við
svokallaðan sónarkafbát.
Hvarf einnig í nóvember
Leitin hefur ekki verið eins umfangs-
mikil síðustu daga og hún var í fyrstu,
en á mánudag var búið að fara ítarlega
yfir allar ábendingar sem höfðu borist
um ferðir Önnu Kristínar og leita sam-
kvæmt þeim. Formlegri leit verður
haldið áfram en ekki verður farið í jafn
umfangsmikla leit að nýju fyrr en frek-
ari upplýsingar berast.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leit-
að er að Önnu í Kristínu, en í nóvem-
ber síðastliðnum var lýst eftir henni í
fjölmiðlum. Þá fannst hún heil á húfi
skömmu eftir að leit hófst.
Lögreglan hefur notið aðstoðar
björgunarsveitarmanna, Landhelgis-
gæslunnar, Slökkviliðsins á höfuð-
borgarsvæðinu og sérsveitar ríkislög-
reglustjóra við leitina.
Kærði ráðningu í
forsætisráðuneytinu
Anna Kristín er 57 ára gömul, er stjórn-
sýslufræðingur að mennt og starfar
sem sérfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun. Árið 2010 sótti hún um starf
skrifstofustjóra skrifstofu stjórnsýslu-
og samfélagsþróunar í forsætisráðu-
neytinu. Alls sótti 41 um starfið og 21
umsækjandi var tekinn í viðtal. Fimm
þeirra voru boðaðir í síðara viðtal og
var Anna Kristín ein þeirra.
Þann 1. júní skipaði Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra Arnar
Þór Másson í starfið til fimm ára. Anna
Kristín var ósátt við ráðninguna, fór
fram á rökstuðning og óskaði eft-
ir öllum gögnum málsins. Hún kærði
niðurstöðuna til kærunefndar jafn-
réttismála sem úrskurðaði að ráða
hefði átt Önnu Kristínu þar sem hún
hefði verið jafn hæf hið minnsta og
Arnar. Í úrskurðinum sagði jafnframt
að ekki hefði verið sýnt fram á að aðr-
ar ástæður en kynferði hefðu ráðið því
að Arnar var ráðinn í starfið. Með því
að ráða hann hefði forsætisráðuneytið
brotið lög um jafna stöðu kvenna og
karla.
Hálf milljón í miskabætur
Málið fór fyrir Héraðsdóm Reykja-
víkur sem staðfesti að úrskurður
kærunefndar væri bindandi. Anna
Kristín fór fram á skaðabætur upp á
tæpar 15 milljónir króna vegna ráðn-
ingarinnar. Þeirri kröfu var hafnað á
þeim forsendum að ekki hefði tek-
ist að sanna að hún hefði átt starfið
skilið umfram þá umsækjendur sem
raðað var fyrir framan hana í hæfnis-
matinu. Forsætisráðuneytinu var hins
vegar gert að greiða henni 500 þúsund
krónur í miskabætur vegna tilkynn-
ingar sem ráðuneytið sendi út um að
Anna Kristín hefði verið metin fimmta
hæfust í starfið. Var það talið geta bitn-
að á orðspori hennar.
Anna Kristín var sátt við niðurstöðu
dómsins og sagði meðal annars í sam-
tali við Vísi að hann væri „sigur fyr-
ir konur“. Auk miskabóta var íslenska
ríkið dæmt til að greiða henni rúma
milljón króna í málskostnað. n
Fréttir 3Miðvikudagur 17. apríl 2013
Arnór áfram í
Seðlabankanum
Arnór Sighvatsson hefur verið
skipaður á ný í starf aðstoðar-
seðlabankastjóra en skipunin
gildir til næstu fimm ára. Arn-
ór hefur verið aðstoðarseðla-
bankastjóri frá því í lok febrúar
2009 þegar hann var skipaður til
bráðabirgða. Hann er með dokt-
orspróf í hagfræði frá Northern
Illinois-háskóla en hann hefur
unnið í Seðlabankanum allt frá
því hann lauk doktorsnáminu,
árið 1990. Það var Katrín Júlí-
usdóttir, fjármála- og efnahags-
ráðherra, sem skipaði Arnór í
embættið á ný með bréfi þann
12. apríl síðastliðinn.Fundu Föt og
veski í Fjörunni
n Önnu Kristínar leitað í tæpa viku n Ráðuneyti greiddi henni bætur
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Fjörur gengnar Leitin
hefur aðallega beinst að
strandlengjunni í Vestur-
bænum, við Ægisíðuna
og út á Seltjarnarnes.
PressPHotos.biz
enn saknað Ekkert hefur spurst til Önnu
Kristínar frá því síðastliðið fimmtudagskvöld.
Bjarni Benediktsson
Fimmtudag kl. 13:00
Formaður Sjálfstæðisflokksins svarar spurningum þínum á DV.is
Tugþúsundir
hafa svarað
Rúmlega 46 þúsund hafa tekið Al-
þingispróf DV. Um það bil 73 pró-
sent frambjóðenda í efstu fimm
sætum flokkanna sem kynnt hafa
framboðslista sína hafa svarað.
Með Alþingisprófinu geta kjósend-
ur fundið út með hvaða frambjóð-
anda og stjórnmálaflokki þeir eiga
mesta málefnasamleið. Afstaða
flokkanna er reiknuð út frá svörum
frambjóðanda viðkomandi flokks.
Prófið verður opið áfram og geta
frambjóðendur sem ekki eru bún-
ir að svara enn svarað. Til viðbótar
við prófið eru frambjóðendur farn-
ir að birta greinar á Kosningavef
DV. Þá hafa þeir líka færi á að svara
óhefðbundnum spurningum og
geta því leyft kjósendum að kynn-
ast persónulegri hliðum á sér. Þegar
hafa margir frambjóðendur svarað
spurningunum. Greinar og spurn-
ingarnar má sjá á síðu viðkomandi
frambjóðanda sem hægt er að nálg-
ast undir „Framboð“ á Kosninga-
vefnum. Kosið verður til Alþingis
laugardaginn 27. apríl næstkom-
andi en þau framboð sem uppfylla
skilyrði fyrir því að bjóða fram verða
kynnt í dag, miðvikudag.