Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Blaðsíða 18
F
ólk hefur innan við mánuð til
að átta sig á breytingunum en
fyrstu greiðslurnar eru óyfir-
stíganlegar fyrir marga, seg-
ir Sigurður Jónas Eggertsson
sem stendur fyrir undirskriftasöfn-
un gegn breytingum á greiðslu-
þátttökukerfi Sjúkratrygginga Ís-
lands. Yfir 1.500 manns hafa skrifað
nafn sitt á listann og þar með skor-
að á velferðarráðherra að fresta eða
hætta við fyrirhugaðar breytingar.
Sigurður bendir á að fjölmargir hafi
skrifað sögu sína á síðuna eða greint
frá því í hvaða stöðu þeir verða eftir
breytingar. Það sé átakanleg lesning.
Of seint að kynna þetta núna
Sigurður er ósáttur við ýmislegt í
nýja kerfinu en þó helst hve seint
reglugerðin kom fram. „Þetta hef-
ur dregist og það er allt of seint að
kynna þetta núna, innan við mánuði
áður en hún á að taka gildi.“ Hann
vonast til að ráðherra beiti sér fyr-
ir að gildistökunni verði frestað og
helst að hætt verði við breytingarn-
ar. „Fólk þarf tíma til að skoða þetta
og búa sig undir breytingarnar. Ég er
búinn að heyra í svo mörgum sem
telja sig munu fara illa út úr þessu.
Það er mikið af öryrkjum og ellilíf-
eyrisþegum sem ég held að þetta
bitni illa á,“ segir hann.
Sent til umboðsmanns Alþingis
Fyrir nokkrum árum voru gerð-
ar breytingar á námslánakerfinu og
fengu námsmenn tveggja mánaða
fyrirvara um þær. Umboðsmaður Al-
þingis gerði athugasemdir við þetta
og sagði þetta ekki vandaða stjórn-
sýslu. „Ég sendi bréf á umboðsmann
Alþingis sem hefur nú stofnað mál
vegna breytinganna sem eiga að taka
gildi í byrjun maí. Það hlýtur að þurfa
að vera einhver lágmarkskynningar-
tími á máli sem hefur svona verulega
íþyngjandi fjárhagsleg áhrif á fólk
sem fékk áður niðurgreidd lyf. Svona
breytingu þarf að kynna með að
minnsta kosti sex mánaða fyrirvara
svo fólk hafi tækifæri til að bregðast
við. Margir munu þurfa að safna fyr-
ir fyrstu greiðslunni sem er langerf-
iðust.“
Hann segir að þeir sem eru illa
staddir og hafi ekki efni á fyrstu
greiðslunni komist aldrei inn í
kerfið.
Það ætti að vera auðvelt fyrir ríkið
að reikna út lyfjakostnað þeirra sem
nota lyf daglega og dreifa greiðslun-
um. „Það er hægt að gera þetta við-
ráðanlegra og ríkið munar ekkert
um það.“
Gott kerfi
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðar-
maður velferðarráðherra, bendir á að
breytingarnar hafi verið samþykkt-
ar sem lög á Alþingi og ráðherra geti
því ekki breytt því. „Í raun mun hann
ekki vilja breyta því þar sem kerfið er
mjög gott. Það eru þeir sem hafa búið
við mestan lyfjakostnað, svo sem ör-
yrkjar og aldraðir, sem munu hagnast
á nýja kerfinu,“ segir hún og bætir við
að framlag ríkisins muni ekki breytast
á neinn hátt og upphæðin sem ríkið
leggur til verði áfram sú sama. Ríkið
spari ekkert á breytingunum.
Verði yfirstíganlegt
Þegar það er borið undir Önnu Sig-
rúnu að margir hafi áhyggjur af
fyrstu greiðslunni segir hún ráðu-
neytið hafa fullan skilning á því.
„Við erum að finna leið til að breyta
því á þann hátt að það verði yfir-
stíganlegt fyrir alla að ná í lyfin sín.
Þetta á ekki að breyta neinu fyr-
ir einstaklinginn. Sú úrvinnsla er í
gangi þessa dagana. Hámarkslyf-
jakostnaður á nú að verða í mesta
lagi 5.000 krónur á mánuði en áður
voru sumir að greiða jafnvel tvö til
þrjú hundruð þúsund á ári. Fyr-
ir breytingu var ekkert þak og við
erum að koma í veg fyrir það með
þessu.“
Hnökrar sem leyst verði úr
Hún segir að það séu vissulega
hnökrar á þessu sem úr verði leyst.
„Ég vil líka benda á svokallaða fall-
hlíf, sem er reglugerð sem segir til
um sérstaka endurgreiðslu á um-
talsverðum kostnaði við læknis-
hjálp, lyf og þjálfun fyrir þá tekju-
lægstu. Við erum að vinna í því
með apótekunum hvernig hægt
sé að dreifa fyrstu greiðslunni eða
breyta henni.“ Í frétt ráðuneytisins
segir að reglugerðin heimili einnig
að tekið sé tillit til aðstæðna fólks
verði það fyrir verulegri tekjulækk-
un, svo sem vegna alvarlegra veik-
inda eða atvinnumissis. Eins muni
fleiri geta sótt um endurgreiðslu frá
Tryggingastofnun.
Samkvæmt breytingunum eru
börn núna 21 árs og yngri en mið-
að er við framhaldsskólaaldurinn.
„Öll börn undir 21 árs á heimili eru
talin sem eitt barn og nú falla einnig
sýklalyf barna undir greiðsluþátt-
tökuna. Það var ekki áður og þetta
er því mikil búbót fyrir barnafjöl-
skyldur,“ segir hún.
Vildu lengri tíma
Anna Sigrún er sammála því að
aðlögunartíminn hafi verið alltof
stuttur og segir að ráðuneytið hafi
farið fram á lengri tíma en það hafi
ekki fengist. „Lögin voru samþykkt í
september í fyrra svo þetta eru ekki
glæný lög en við vissum að þetta
tæki tíma og vildum fá lengri tíma,
eða til 1. júlí.“ Hún bendir á að drög
að reglugerðinni hafi komið á sama
tíma og lögin voru samþykkt en í
hana hafi vantað allar lokatölur. n
Algengt verð 238,7 kr. 236,9 kr.
Algengt verð 238,5 kr. 236,7 kr.
Höfuðborgarsv. 238,4 kr. 236,6 kr.
Algengt verð 238,7 kr. 236,9 kr.
Algengt verð 243,9 kr. 239,9 kr.
Melabraut 238,5 kr. 236,7 kr.
Eldsneytisverð 16. apríl
BenSín DíSilOlíA
Flott viðbrögð
n Geysisstofa fær lofið að þessu
sinni. „Við fórum tvær vinkonur að
snæða á Geysissvæðinu á dögun-
um. Við komum þangað gagn-
gert til að borða en vorum ekkert
að skoða okkur um. Við ákváð-
um að kaupa okkur pítsu í aðal-
veitingasalnum. Starfsfólkið var
mjög elskulegt og allt af vilja gert
til að aðstoða okkur. Þegar pítsan
kom var hún hins vegar hálfköld og
ekki neitt sérstaklega girnileg. Við
ákváðum samt að láta okkur hafa
þetta. Þegar við rákumst á hár vor-
um við ekki eins kátar og kölluð-
um til starfsstúlku sem brást hár-
rétt við og bauð okkur hvað sem er
af matseðlinum. Við vorum báðar
orðnar frekar lystarlausar en báð-
um um að fá að hinkra í smá-
stund og hugsa málið. Á
útleiðinni spurðum við
hvort við gætum fengið
ís í staðinn og það var
ekkert mál. Fyrir
vikið fórum við
sáttari út. Þetta
voru virkilega
flott viðbrögð.“
Sex mánaða
uppsagnar-
frestur
n „Líkamsræktarstöðin World
Class bregður á það fólskuráð í
ótímabundnum samningum sín-
um við viðskiptavini að vera með
sex mánaða upp-
sagnarfrest á þeim.
Einstaklingur sem
þarf að segja
upp samningn-
um með skömm-
um fyrirvara, til
dæmis vegna veikinda
eða flutninga, þarf því að
borga meira en sex þús-
und krónur á mánuði til
World Class þrátt fyrir að
hann nýti sér ekki þjónustu líkams-
ræktarstöðvarinnar á þeim tíma.
Þetta eru blóðpeningar; upphæðin
sem fer í vaskinn getur numið um
30 þúsund krónum,“ segir óánægð-
ur viðskiptavinur.
Björn Leifsson, framkvæmdastjóri
World Class, bendir á í svari við
lastinu að það sé tekið fram í verð-
skrá að binditími ótímabundinna
samninga sé eitt ár og að upp-
sagnarfresturinn sé sex mánuðir.
Hann tekur þó fram að tillit sé tekið
til ef um veikindi eða flutninga sé
að ræða og það skoðað sérstaklega.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
18 Neytendur 17. apríl 2013 Miðvikudagur
Allt of stuttur
AðlögunArtími
n Skorað á ráðherra að draga breytingar til baka n Margir í vanda
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
lyfjakostnaður Margir
eru uggandi yfir að með
nýju kerfi hækki lyfja-
kostnaður. MynD: PHOtOS.cOM
Sigurður Jónas eggertsson Stofnaði
undirskriftavefsíðu gegn breytingum á
nýju greiðsluþátttökukerfi.
„Það er hægt að
gera þetta viðráð-
anlegra og ríkið munar
ekkert um það.