Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Blaðsíða 12
Blóðugur harmleikur í Boston
12 Erlent 17. apríl 2013 Miðvikudagur
Maraþonsprengingarnar
Á þessu götukorti má sjá hvar sprengingarnar urðu á hlaupaleiðinni. Vitanlega var mest af
fólki við marklínuna svo staðsetningin virðist hafa verið úthugsuð.
„Á mínum 25
árum í þessu
starfi hef ég aldrei
séð annað eins
V
ið munum komast að því
hver gerði þetta og þeir
verða látnir svara til saka,“
sagði Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, bein-
skeyttur eftir að ljóst var að þrír
einstaklingar hefðu látið lífið og 144
væru særðir eftir hryðjuverkaárás á
Boylston-stræti í Boston á mánudag.
Greint hefur verið frá því að með-
al hinna látnu sé hinn 8 ára gamli
Martin Richard. Að minnsta kosti 17
eru lífshættulega slasaðir, 25 alvar-
lega slasaðir og að minnsta kosti 8
hinna slösuðu eru börn.
„Það flaug fótleggur yfir höfuð-
ið á mér,“ hafði The Boston Her-
ald eftir John Ross sem varð vitni að
sprengingunum. Hann kveðst hafa
lánað beltið sitt til að stöðva blæð-
ingu en talið er að 10 manns hafi
misst útlim í árásinni.
Sprengingarnar voru tvær og urðu
með skömmu millibili í námunda við
marklínu Boston-maraþonsins laust
fyrir klukkan þrjú að staðartíma á
mánudag. Fyrst um sinn var talið að
þriðja sprengjan hefði sprungið við
John F. Kennedy bókasafnið í Boston
en lögreglustjórinn í borginni hefur
dregið úr þeirri yfirlýsingu sinni og
er talið að um eldsvoða hafi verið að
ræða þar.
Úr Hvíta húsinu berast fregn-
ir af því að bandarísk stjórnvöld fari
með málið sem hryðjuverkaárás þó
að Obama hafi forðast að nota það
orð yfir ódæðið þegar hann ávarpaði
þjóð sína á mánudagskvöld.
Fjölmiðlar töluðu upphaflega af
varkárni um sprengjur og hryðju-
verk þar sem ekki var hægt að útiloka
að um hræðilegt slys væri að ræða.
Var þá helst talað um að hugsanlega
gæti þetta hafa verið gassprenging í
holræsakerfinu en síðan tóku málin
að skýrast. Þetta var árás og hver sá
sem stóð að baki henni ætlaði sér að
valda manntjóni.
Tímasetningin var þaulhugsuð
enda er Boston-maraþonið eitt það
vinsælasta í heimi og þúsundir gera
sér ferð til borgarinnar, víðs vegar að
úr heiminum, til að taka þátt. Þar á
meðal á fimmta tug Íslendinga eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum.
Þá var á mánudag haldinn hátíð-
legur í Massachusetts og Maine svo-
kallaður Patriots Day sem er eins
konar þjóðhátíðardagur í fylkjunum.
Þar er haldið upp á og minnst bar-
daganna um Lexington og Concord
árið 1775. Hátíðardaginn ber upp
árlega á þriðja mánudegi í apríl og
voru því margir Boston-búar í fríi frá
vinnu.
Enn hefur enginn lýst sprengju-
árásinni á hendur sér en lögregluyf-
irvöld – alríkis-, staðar- og ríkislög-
reglumenn – munu hafa framkvæmt
húsleit í íbúð á fimmtu hæð íbúðar-
húsnæðis í einu úthverfa Boston í
tengslum við rannsóknina. Yfirvöld
virðast því komin á einhverja slóð
og staðfestir Edward Davis, lögreglu-
stjórinn í Boston, að aðilar hafi verið
yfirheyrðir vegna málsins en enginn
sé þó með stöðu grunaðs.
Mikið af sögusögnum eru í gangi
þar sem meðal annars hefur ver-
ið reynt að tengja tvítugan meintan
pakistanskan talíbana við árásirn-
ar en hann stundar nám á svæðinu.
Heimildir herma að húsleitin hafi
verið gerð á heimili hans í Revere.
Allt er þetta óstaðfest að svo stöddu.
„Á mínum 25 árum í þessu starfi
hef ég aldrei séð annað eins. Ann-
að eins blóðbað meðal almennings.
Þetta er eins og eitthvað sem maður
býst við að sjá í stríði,“ segir Alasdair
Conn, yfirmaður bráðamóttöku
Massachusetts General Hospital í
samtali við bandaríska fjölmiðla. n
Íslendingar í Boston
„Rúðurnar nötruðu“
„Við vorum mjög ná-
lægt markinu og þyrlur
flugu yfir, lögreglubílar,
sjúkrabílar þutu hjá og
fólk var hlaupandi út um
allt. Maður er ekki van-
ur svona ástandi. Auð-
vitað var þetta óþægi-
legt,“ segir Pétur Smári
Sigurgeirsson, sem tók
þátt í Boston-maraþon-
inu en hann er stadd-
ur í borginni ásamt eig-
inkonu sinni Jóhönnu
Soffíu Birgisdóttur. Hann
hefur hlaupið sjö mara-
þon, hafði lengi látið sig
dreyma um að taka þátt
í þessu tiltekna hlaupi
og hafði æft sig vel síðan
hann skráði sig til leiks í
september síðastliðnum.
Hann gat þó ekki gert
sér í hugarlund hversu
örlagarík þessi för yrði.
Eftir hlaupið hitti
hann eiginkonu sína á veitingahúsi í um 200 metra fjarlægð frá
marklínunni. Þar sátu þau þegar sprengja sprakk klukkutíma síðar.
„Rúðurnar nötruðu og það varð algjört skelfingarástand hérna. Það var
fullt af fólki í brautinni ennþá og ættingjar biðu þeirra við marklínuna.
Það nötraði allt og það var mikil panikk og mikil skelfing í gangi og fólk
hljóp út um allt.“
Það var þó ekki auðsótt fyrir Pétur og eiginkonu hans að komast
aftur upp á hótel. Þau eru á hóteli rétt utan við miðbæinn og þurftu
að ganga alla leið. „Við þurftum að ganga í þrjá klukkutíma til þess að
komast aftur á hótelið. Það voru náttúrulega engir leigubílar á ferðinni
og samgöngur lágu allar niðri. Það liggur við að ég hafi hlaupið tvö
maraþon. En við berum okkur vel, enda er allt í lagi með okkur.“
Hjónin áttu bókað far heim á þriðjudagskvöld.
asta@dv.is og ingibjorg@dv.is
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
n Þrír látnir eftir sprengjuárás n 8 ára drengur þar á meðal n Tíu misstu útlimi
Eiginkonan nýkomin í mark
„Það er skelfilegt að vera hérna. Það er erfitt að ímynda sér þetta. Þetta
er bara ömurlegt að lenda í þessu,“ sagði Stefán Stefánsson, fararstjóri
íslenska Fjölnis-hlaupahópsins sem fór út til að taka þátt í Boston-
maraþoninu. Hann kvaðst geta fullyrt að allir Íslendingarnir væru ör-
uggir. Hann var sjálfur talsvert frá sprengingunum en eiginkona hans,
Erla Gunnarsdóttir, var nýkomin í mark og varð vör við þær fyrir aft-
an sig. Þau voru komin á hótelherbergi sitt í Boston þegar DV náði tali
af Stefáni en það er aðeins nokkrum kílómetrum frá marklínunni þar
sem sprengjurnar sprungu. Hann sagði atburðina hafa tekið mjög á alla
í hópnum og sagði mikilvægt fyrir þau að hittast öll eftir þetta. Hann
sagði hópinn ekki hafa fengið áfallahjálp og þá hafi hann afþakkað að-
komu utanríkisráðuneytisins þar sem hópurinn stæði vel saman.
„Ég dáist að fólkinu sem tekur þessu af miklu æðruleysi, stillingu og
jákvæðni,“ sagði hann í samtali við DV.is á mánudagskvöld.
„Allur tilfinningaskalinn fer af stað,“ sagði hann um atburði dagsins.
„Veistu, þegar maður lendir í svona, það er ekki hægt að lýsa því,“ sagði
Stefán. „Þegar maður er heima og sér þetta í fréttunum þá er maður svo
öruggur. Svo allt í einu er maður kominn út í heim – við hliðina á þessu.
Þetta er svo óhugnanlegt. Maður þakkar guði fyrir að allt okkar fólk skuli
hafa skilað sér og enginn er slasaður. Við þökkum bara forlögunum fyrir.
Við erum svo hamingjusöm að það eru allir heilir á húfi,“ sagði hann.
Beið eftir
pabba sínum
Það sem átti að vera skemmtileg
samverustund Richard-fjölskyldunnar
í Boston á mánudag endaði sem harm-
leikur og algjör martröð. Fjölskyldan
hafði gert sér ferð frá Dorchester-
hverfinu í Boston til að fylgja föðurnum
og hvetja hann til dáða þar sem hann
hugðist hlaupa í hinu víðfræga Boston-
maraþoni. Alla þá sem fylgst höfðu með
sprengingunum í Boston setti hljóða
þegar fregnir tóku að berast af því að
einn þriggja sem staðfest var að látið
hefðu lífið væri 8 ára drengur. Það var
Martin Richard. Það eru erfiðir tímar
fram undan hjá Richard-fjölskyldunni
því ekki aðeins misstu þau Martin litla
heldur missti sex ára systir hans fótlegg
í sprengingunni, ein margra sem urðu
fyrir því. Móðir þeirra slasaðist einnig en
hún hlaut alvarlega áverka á höfði.
Boston Globe skrifar um atvikið
andartökum fyrir sprenginguna í
smáatriðum. Martin mun hafa farið út á
hlaupabrautina til að faðma föður sinn
að hlaupinu loknu. Faðir hans hélt síðan
áfram en Martin snéri aftur til móður
sinnar og systur. Á því augnabliki sprakk
sprengjan sem varð honum að bana og
örkumlaði þær.
Íbúar í Dorchester-hverfis komu
saman og heiðruðu minningu Martins
litla og báðu fyrir honum og fjölskyldu
hans á mánudagskvöldið. Fyrir utan
heimili Martin-fjölskyldunnar mátti
sjá eitt kerti sem logaði fyrir þau og á
gangstéttina fyrir framan hafði verið
skrifað „Peace“.
Boyls
ton S
t.
Clarendon St.
Berkeley St.
Dartm
outh St.
Ring Rd.
Com
mon
weal
th Av
enue
Cople
y
torgi
ð
Fyrri sprengjan
Síðari
sprengjan
Sam
kom
usta
ður
Boston Athletic
Association
MARK-
LÍNAN
Áhor
fend
a
stúk
a