Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 17. apríl 2013 Miðvikudagur Aðeins VG er á móti staðgöngumæðrun M eirihluti þeirra sem tek- ið hafa Alþingispróf DV er á því að heimila eigi staðgöngumæðrun á Ís- landi. Aðeins um 18 pró- sent segjast annaðhvort frekar and- víg eða mjög andvíg því að heimila staðgöngumæðrun á meðan 59 prósent segjast frekar hlynnt eða mjög hlynnt. Tuttugu prósent segj- ast hlutlaus og tvö prósent vilja ekki svara. Tölurnar byggja á svör- um þeirra 43.870 sem höfðu svar- að Alþingisprófinu á DV.is á mánu- dagskvöld. Afstaða frambjóðenda er nokkuð svipuð. Meirihluti þeirra 207 frambjóðenda sem höfðu svar- að prófinu á sama tíma er hlynntur staðgöngumæðrun. 26 prósent frambjóðendanna segjast vera mjög andvíg eða frekar andvíg á meðan 51 prósent segist mjög hlynnt eða frekar hlynnt. Átján prósent fram- bjóðenda segjast hlutlaus og fimm prósent vilja ekki svara. Tveir hlutlausir og einn á móti Ef frambjóðendur hvers flokks fyrir sig eru skoðaðir kemur í ljós að að- eins þrír af þeim tíu flokkum sem tekið höfðu þátt í Alþingisprófinu á mánudag eru ekki hlynntir heimilun staðgöngumæðrunar. Tveir flokk- anna eru hlutlausir í málinu. Það eru Dögun og Regnboginn. Samkvæmt svörum frambjóðendanna eru Björt framtíð, Framsóknarflokkurinn, Hægri grænir, Lýðræðisvaktin, Pírat- ar, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk- urinn hlynntir staðgöngumæðrun á Íslandi. Vinstri grænir er eini flokk- urinn sem mælist andvígur. Frambjóðendur Vinstri grænna eru þó ekki alveg sammála í afstöðu sinni þó að meirihlutinn sé andvíg- ur staðgöngumæðrun. Átta fram- bjóðendur segjast frekar andvígir og fjórtán segjast mjög andvígir en tveir segjast frekar hlynntir. Þá eru fimm frambjóðendur hlutlausir og einn vill ekki svara spurningunni. Rétt er að taka fram að enginn flokk- ur er algjörlega sammála innan sinna raða um hvort heimila eigi staðgöngumæðrun eða ekki. Umræða í þinginu Algengasta tegund staðgöngumæðr- unar er þegar kona fer í glasafrjóvgun þar sem notaðir eru fósturvísar sem eru líffræðilega ekki hennar. Þá eru egg og sæði frá þeim einstaklingum sem koma til með að verða foreldr- ar barnsins notaðir í glasafrjóvgun- inni. Lagaramminn á Íslandi heimil- ar ekki slíkt í dag en dæmi eru um að Íslendingar hafi fengið erlendar stað- göngumæður til að ganga með börn- in sín. Ferlið er umdeilt hér á landi. Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hefur nokkrum sinnum verið rætt um staðgöngumæðrun. Alþingi fól Guð- bjarti Hannessyni velferðarráðherra að setja á fót starfshóp til að undir- búa löggjöf um staðgöngumæðrun hér á landi. Í svari sínu við fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þing- manns Sjálfstæðisflokksins, á þingi í mars sagði Guðbjartur að málið hefði tekið lengri tíma en reiknað var með í ráðuneytinu. Ekkert varð af því að frumvarp um staðgöngumæðr- un yrði lagt fram á þinginu og bíður það nýs þings eftir kosningar að taka ákvörðun um hvort slíkt frumvarp verði lagt fram. Miðað við skoðana- kannanir og svör frambjóðenda í Al- þingisprófinu verður það að teljast líklegt. n n Alþingisvefur DV sýnir að fleiri kjósendur eru hlynntir en frambjóðendur Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að heimila staðgöngumæðrun á Íslandi? 5% vilja ekki svara2% vilja ekki svara 26% Andvígir 51% Hlynntir 18% Hlutlausir 59% Hlynntir 18% Andvígir20% Hlutlausir n Kjósendur n Frambjóðendur Umdeilt Stað- göngumæðrun er umdeild á Íslandi en starfshópur á vegum velferðarráðuneytisins vinnur nú að löggjöf um málið. Mynd PhoTos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.