Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Side 8
8 Fréttir 17. apríl 2013 Miðvikudagur
Aðeins VG er á móti
staðgöngumæðrun
M
eirihluti þeirra sem tek-
ið hafa Alþingispróf DV
er á því að heimila eigi
staðgöngumæðrun á Ís-
landi. Aðeins um 18 pró-
sent segjast annaðhvort frekar and-
víg eða mjög andvíg því að heimila
staðgöngumæðrun á meðan 59
prósent segjast frekar hlynnt eða
mjög hlynnt. Tuttugu prósent segj-
ast hlutlaus og tvö prósent vilja
ekki svara. Tölurnar byggja á svör-
um þeirra 43.870 sem höfðu svar-
að Alþingisprófinu á DV.is á mánu-
dagskvöld. Afstaða frambjóðenda
er nokkuð svipuð. Meirihluti þeirra
207 frambjóðenda sem höfðu svar-
að prófinu á sama tíma er hlynntur
staðgöngumæðrun. 26 prósent
frambjóðendanna segjast vera mjög
andvíg eða frekar andvíg á meðan
51 prósent segist mjög hlynnt eða
frekar hlynnt. Átján prósent fram-
bjóðenda segjast hlutlaus og fimm
prósent vilja ekki svara.
Tveir hlutlausir og einn á móti
Ef frambjóðendur hvers flokks fyrir
sig eru skoðaðir kemur í ljós að að-
eins þrír af þeim tíu flokkum sem
tekið höfðu þátt í Alþingisprófinu á
mánudag eru ekki hlynntir heimilun
staðgöngumæðrunar. Tveir flokk-
anna eru hlutlausir í málinu. Það eru
Dögun og Regnboginn. Samkvæmt
svörum frambjóðendanna eru Björt
framtíð, Framsóknarflokkurinn,
Hægri grænir, Lýðræðisvaktin, Pírat-
ar, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk-
urinn hlynntir staðgöngumæðrun á
Íslandi. Vinstri grænir er eini flokk-
urinn sem mælist andvígur.
Frambjóðendur Vinstri grænna
eru þó ekki alveg sammála í afstöðu
sinni þó að meirihlutinn sé andvíg-
ur staðgöngumæðrun. Átta fram-
bjóðendur segjast frekar andvígir
og fjórtán segjast mjög andvígir en
tveir segjast frekar hlynntir. Þá eru
fimm frambjóðendur hlutlausir og
einn vill ekki svara spurningunni.
Rétt er að taka fram að enginn flokk-
ur er algjörlega sammála innan
sinna raða um hvort heimila eigi
staðgöngumæðrun eða ekki.
Umræða í þinginu
Algengasta tegund staðgöngumæðr-
unar er þegar kona fer í glasafrjóvgun
þar sem notaðir eru fósturvísar sem
eru líffræðilega ekki hennar. Þá eru
egg og sæði frá þeim einstaklingum
sem koma til með að verða foreldr-
ar barnsins notaðir í glasafrjóvgun-
inni. Lagaramminn á Íslandi heimil-
ar ekki slíkt í dag en dæmi eru um að
Íslendingar hafi fengið erlendar stað-
göngumæður til að ganga með börn-
in sín. Ferlið er umdeilt hér á landi.
Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka
hefur nokkrum sinnum verið rætt um
staðgöngumæðrun. Alþingi fól Guð-
bjarti Hannessyni velferðarráðherra
að setja á fót starfshóp til að undir-
búa löggjöf um staðgöngumæðrun
hér á landi. Í svari sínu við fyrirspurn
Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, á þingi
í mars sagði Guðbjartur að málið
hefði tekið lengri tíma en reiknað var
með í ráðuneytinu. Ekkert varð af því
að frumvarp um staðgöngumæðr-
un yrði lagt fram á þinginu og bíður
það nýs þings eftir kosningar að taka
ákvörðun um hvort slíkt frumvarp
verði lagt fram. Miðað við skoðana-
kannanir og svör frambjóðenda í Al-
þingisprófinu verður það að teljast
líklegt. n
n Alþingisvefur DV sýnir að fleiri kjósendur eru hlynntir en frambjóðendur
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því
að heimila staðgöngumæðrun á Íslandi?
5% vilja ekki svara2% vilja ekki svara
26%
Andvígir
51%
Hlynntir
18%
Hlutlausir
59%
Hlynntir
18%
Andvígir20%
Hlutlausir
n Kjósendur n Frambjóðendur
Umdeilt Stað-
göngumæðrun er
umdeild á Íslandi en
starfshópur á vegum
velferðarráðuneytisins
vinnur nú að löggjöf
um málið. Mynd PhoTos