Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2013, Qupperneq 23
H
ann fæddist mjög fljótt. Það
var varla búið að klippa
á milli þegar ég tók hann
í fangið, setti hann á kné
mér, hossaði honum og söng fyrir
hann Ríðum heim til Hóla, pabba
kné er klárinn minn. Það er alltaf það
fyrsta sem ég geri fyrir börnin mín en
pabbi gerði þetta við mig. Hann bara
brosti og skríkti um leið, segir Hrafn
Gunnlaugsson um fæðingu sonar síns,
og sjötta barns, Antons Ariels Hrafns-
sonar Duribe. Fyrir á hann börnin
Kristján Þórð, 45 ára, Tinnu, 37 ára,
Sól, 32 ára, Örk, 21 árs, og Aron Dan-
íel, 9 ára.
Eins og ský í buxum
Anton Ariel kom í heiminn á föstu-
daginn klukkan 13.30 og þegar DV
talaði við Hrafn rúmlega tveimur tím-
um síðar var hann nýkominn heim af
fæðingadeildinni og var á leið upp eft-
ir aftur með Aron Daníel stóra bróð-
ur. DV fékk að kíkja með þeim feðgum
upp á fæðingadeild þegar Aron Dan-
íel sá litla bróður sinn í fyrsta sinn en
hann hafði beðið komu hans af mikilli
eftirvæntingu. Þeir feðgar voru að von-
um í skýjunum með nýjustu viðbótina
í fjölskylduna. „Ég er eins og ský í bux-
um, hvert barn er guðs blessun,“ segir
Hrafn glaður.
Sá stutti var 13 merkur og 52 senti-
metrar þegar hann kom í heiminn og
fæðingin gekk hratt og vel fyrir sig.
„Hann smælaði strax framan í heim-
inn enda gekk fæðingin fljótt og vel
fyrir sig. Ef þú smælar framan í heim-
inn, smælar heimurinn framan í þig,
sagði Megas og ég vona að þessi vís-
Fólk 23Mánudagur 6. maí 2013
Nakin í
garðinum
Eins og DV fjallaði um fyrir helgi
þá var alþjóðlegur garðyrkju-
dagur nakta mannsins á laugar-
daginn. Nokkuð kalt var í veðri á
Íslandi þann daginn þannig að
ólíklegt verður að teljast að mjög
margir hafi tekið þátt í þessum
merkisdegi sem vakti þó athygli
margra. Sóley Kristjánsdóttir,
betur þekkt sem DJ Sóley, gant-
aðist með það á Facebook-síðu
sinni að hún hefði tekið þátt í
deginum. Hún birti mynd af sér
þar sem skein í bert bak hennar
þar sem hún hugaði að blómun-
um í garðinum. Fyrir vikið upp-
skar hún mikla kátínu vina sinna.
Í Saturday
Night Live
Hljómsveitin Of Monsters and
Men kom fram á laugardag í
skemmtiþættinum Saturday
Night Live. Þar tók hljómsveitin
tvö lög, Little Talks og Mounta-
in Sound, af plötunni My Head
is an Animal. Þáttastjórnandi var
leikarinn Zach Galifianakis sem
er þekktastur fyrir hlutverk sitt
í myndinni Hangover. Hljóm-
sveitin hefur heldur betur slegið
í gegn undanfarið en hún hefur
verið á tónleikaferðalagi um
Bandaríkin undanfarið og mun
halda tónleikaferðinni áfram og
spila nánast um allan heim fram
í september.
Á von á barni
Frétta- og sjónvarpskonan geð-
þekka Helga Arnardóttir og mat-
reiðslumaðurinn Reynir Örn
Þrastarson eiga von á sínu fyrsta
barni í lok október. Helga hlaut ís-
lensku blaðamannaverðlaunin í
fyrra fyrir umfjöllun sína um Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið. Ásamt
því að hafa staðið fréttavaktina fyr-
ir fréttastofu Stöðvar 2 gerði Helga
einnig þættina Mannshvörf sem
sýndir voru á sömu stöð í vetur en
í þeim var fjallað um mannshvörf
á Íslandi og þóttu þættirnir afar
vandaðir og vel gerðir.
„Smælaði strax
framan í heiminn“
n Hrafn Gunnlaugsson eignast sitt sjötta barn n Anton Ariel kominn í heiminn
Feðgarnir Hrafn er að vonum í skýjunum með sjötta barnið.
„Það var varla
búið að klippa á
milli þegar ég tók hann
í fangið, setti hann á
kné mér, hossaði honum
og söng fyrir hann Ríðum
heim til Hóla, pabba
kné er klárinn minn.
Stolt móðir Hér er Yaira með syni sínum, Antoni Ariel, stuttu eftir fæðinguna sem gekk
hratt og vel fyrir sig. Myndir prESSphotoS
„Hann bara brosti
og skríkti um leið
Fjölskyldan Hér er fjölskyldan
saman í Hreiðrinu aðeins nokkrum
örfáum klukkustundum eftir að
Anton Ariel kom í heiminn.
dómsorð Megasar reynist rétt í hans
tilfelli,“ segir Hrafn glaður.
Mektarmaður á ferðinni
Anton Ariel er sjötta barn Hrafns sem
verður 65 ára í sumar en móðir Antons
Ariels og sambýliskona Hrafns heitir
Yaira Villaneuva.
Anton lét aðeins bíða eftir sér en
hann átti að koma í heiminn í enda
apríl. „Hann lét aðeins bíða eftir sér.
Hann var með stóíska ró yfir þessu öllu
saman og lét menn vita að hér væri
mektarmaður á ferðinni,“ segir Hrafn.
Forréttindi og mikil hamingja
Í samtali við DV í apríl sagði Hrafn það
vera mikil forréttindi að eignast barn
á þessum aldri. „Mér finnst þetta vera
forréttindi og mikil hamingja. Þetta
nærir lífsglóðina ef ég gerist svolítið
skáldlegur. Að fá að njóta nærveru
svona ungra einstaklinga. Fjallar lífið
um nokkuð annað. Ef það er einhver
tilgangur í lífinu þá er það að viðhalda
lífinu. Það er kannski það sem lífið
gengur út á. Mér finnst þetta vera
mikil forréttindi og það er mikil gleði
að fá þennan unga mann í heiminn,“
sagði hann í samtali við DV. n
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is