Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Blaðsíða 2
Vikublað 21.–23. janúar 20142 Fréttir Kýldi fyrrverandi sambýliskonu Lögreglan á Selfossi var kölluð til á fimmtudaginn í síðustu viku þegar maður veittist að fyrrverandi sambýliskonu sinni. Konan hringdi sjálf á lög- regluna þegar hún komst að því að maðurinn var á leiðinni heim til hennar. Þegar lög- reglu bar að garði var maður- inn í óleyfi á heimili konunnar. Hann hafði að auki beitt hana ofbeldi, slegið til hennar svo það kvarnaðist úr tönn henn- ar. Lögregla handtók manninn. Konan hefur farið fram á nálg- unarbann á hendur honum og mun Héraðsdómur Suður- lands fá málið til afgreiðslu fljótlega. Málið er rannsakað sem meiriháttar líkamsárás. Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af fjölmörgum líkams- árásum í vikunni sem leið. Sama kvöld lagði karlmaður fram kæru vegna líkamsárásar sem átti sér stað fyrr í janúar. Viðkomandi hafði verið kýldur í heimahúsi, og missti tönn við höggið. Árásarmaður hafði bankað upp á heima hjá honum og kýldi hann um leið og hann svaraði. Að svo búnu flúði við- komandi af vettvangi. Lögregla fékk að auki upplýsingar um þrjár aðrar líkamsárásir, sem munu allar vera minniháttar. Vilborg reynir aftur Pólfarinn Vilborg Arna Giss- urardóttir, ásamt íslensku föru- neyti, reyndi að ganga á tind Aconcagua, hæsta fjalls Suður- Ameríku um helgina. Það gekk hins vegar ekki sem skyldi og í morgunútvarpi Rásar 2 á mánu- dag var greint frá því að háfjalla- veiki og óveður hefðu sett strik í reikninginn. Því urðu þau frá að hverfa. Fjallið Aconcagua er um 7.000 metra hátt. Stefnt var að því að ná á toppinn í gær, en þá veiktist einn úr hópnum af háfjallaveiki. Óveður varð svo til þess að ekki var hægt að fara lengra. Ekki verður hægt að ganga aftur fyrr en um næstu helgi og mun hluti hópsins ætla að reyna þá að nýju. Þorsteinn Jakobsson var í hópi göngu- manna. Hann segir frá því á Facebook að hópurinn hafi sof- ið í 5.600 metra hæð síðustu þrjá sólarhringa í aðlögun. Spá- in næstu daga var aftur á móti svo slæm að hópurinn ákvað að fara niður, enda gat enginn toppað á sunnudag vegna snjó- flóðahættu. Í minnisblaði innanríkisráðu- neytisins um Tony Omos er ung íslensk kona nafngreind þótt hún tengist ekki hælisum- sókn Tony Omos með neinum hætti. Hún er furðu lostin yfir því að persónuupplýsingum um hana hafi verið lekið út úr ráðuneytinu og hef- ur óskað eftir afriti af upplýsingun- um sem birtust í minnisblaðinu og afhentar voru fjölmiðlum. DV hefur ekki fengið svör við því hvort ráðu- neytið muni verða við þeirra beiðni. Umrætt minnisblað ber öll merki þess að það hafi verið samið fyrir einhvern sem ekki þekkir mál Tony Omos til hlítar. DV hefur borið minnisblaðið undir fólk sem starf- að hefur innan stjórnsýslunnar og stjórnarráðsins og ber þeim saman um að hér sé ekki um hefðbundið minnisblað að ræða. „Þetta er ekki hefðbundið minnisblað heldur er hér um að ræða dæmigerða óform- lega samantekt,“ segir einn viðmæl- enda blaðsins. Minnisblaðið byggir á almenn- um punktum um hælisumsókn- ir hælisleitendanna Tony Omos og Evelyn Glory Joseph, ætlaðri barnsmóður hans. Vitnað er í rök- stuðning innanríkisráðuneytis- ins og stiklað á stóru í málsmeð- ferðinni. Þá er farið yfir kvennamál Tony, sem er sagður hafa átt kær- ustu í Kanada fyrir tveimur árum og er hún nafngreind í skjalinu. „Þá er rétt að benda á …“ Eins og DV hefur rakið ítarlega síð- ustu vikur er ekkert sem bendir til annars en að skjalið hafi verið útbú- ið í innanríkisráðuneytinu og hafi farið þaðan á fjölmiðla. Hefði það verið til meðferðar hjá öðrum stofn- unum væri það skráð á málaskrá en sú er ekki raunin. Engu að síður hefur Hanna Birna Kristjánsdótt- ir innan ríkisráðherra margoft gef- ið í skyn að lögreglan, Útlendinga- stofnun eða Rauði krossinn kunni að hafa lekið skjalinu. Rík þagnarskylduákvæði gilda um starfsmenn innanríkisráðu- neytisins, embættismenn, að- stoðarmenn ráðherra og ráð- herra sjálfan, þegar kemur að meðhöndlun persónuupplýsinga og getur hinn seki átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Erfitt er að ímynda sér að sá starfsmað- ur sem lak skjalinu hafi ekki verið meðvitaður um þetta. Orðalag minnisblaðsins bendir til þess að skjalið hafi verið ætlað til dreifingar út fyrir ráðuneytið, en þar koma fyrir setningar eins og: „Rétt þykir að vekja athygli á neðan- greindu […] Þá er rétt að benda á …“ Annar viðmælandi blaðsins sem starfað hefur hjá ráðuneytum segir: „Minnisblað varðandi Tony Omos hefur augljóslega verið samið fyrir einhvern sem ekki var fullkomlega inni í málinu. Það gæti hafa verið gert fyrir ráðherra eða jafnvel bein- línis til að leka til fjölmiðla.“ Svör ekki fullnægjandi Á meðal þess sem fram kemur í minnisblaðinu er að Tony hafi ver- ið grunaður um aðild að mansali en jafnframt að hann hafi ekki sætt áframhaldandi rannsókn, og er það tiltekið sem ein ástæða fyrir því að vísa megi honum úr landi: „Einnig hefur kærandi upplýst að hann hafi ekki sætt áframhaldandi rannsókn lögreglu. Verður því ekki fallist á með kæranda að ástæða sé til þess að fresta réttaráhrifum úrskurðar ráðuneytisins af ofangreindum ástæðum.“ Fréttablaðið og Morgun- blaðið birtu fréttir þann 20. nóvem- ber sem byggðu á upplýsingum úr minnisblaðinu. Í tilkynningu sem innanríkis- ráðuneytið birti á vefsíðu sinni þann 12. janúar síðastliðinn segir: „Athugun ráðuneytisins og rekstrarf élags stjórnarráðsins stað- festi að trúnaðargögn vegna um- rædds máls hafa einungis farið til þeirra aðila sem samkvæmt lögum eiga rétt á þeim.“ Ráðuneytið hef- ur í svörum við fyrirspurnum lög- manna vísað í eigin athugun á því hvort persónuupplýsingum hefði verið lekið úr ráðuneytinu. Þessi svör ráðuneytisins hafa ekki þótt fullnægjandi enda hefur ríkissaksóknari óskað eftir upp- lýsingum um þessa athugun inn- anríkisráðuneytisins. Í sérstakri yfirlýsingu sem Sigríður Friðjóns- dóttir ríkissaksóknari birti á vef ríkissaksóknara þann 13. janúar síðastliðinn, kemur fram að ríkis- saksóknari hafi óskað eftir minn- isblöðum eða gögnum er varða þessa könnun ráðuneytisins. Óljóst hvort svör hafi borist Í yfirlýsingu ríkissaksóknara segir meðal annars: „Ríkissaksóknari, sem æðsti handhafi ákæruvalds, hefur óskað eftir upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu í tilefni af kæru lögmanns Evelyn Glory Jos- eph, sem send var ríkissaksóknara vegna „… leka á persónulegum upplýsingum um hana sem birtu- st í fjölmiðlum í nóvember og virð- ist m.v. fréttaflutning mega rekja til innanríkisráðuneytisins.“, eins og segir í kærubréfi.“ Þórey Vilhjálms- dóttir, aðstoðarmaður ráðherra, sagði í morgunútvarpinu á föstudag að ráðuneytið myndi svara spurn- ingum ríkissaksóknara á föstudag eða mánudag. Ekki fengust svör frá ríkissaksóknara varðandi það hvort embættinu hefðu borist svörin, áður en DV fór í prentun á mánu- dag. Tvær aðskildar kærur hafa verið lagðar fram vegna trúnaðarbrests- ins gagnvart hælisleitendunum. Annars vegar hefur Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Tony Omos, kært innanríkisráðherra og starfs- menn innanríkisráðuneytisins, til lögreglu. Samkvæmt kærunni kann háttsemin að varða við sjö ákvæði hegningarlaga sem snúast meðal annars um ærumeiðingar, brot á þagnarskyldu, ranglæti við úrlausn máls og misnotkun á aðstöðu. Hins vegar hefur Katrín Oddsdóttir, lög- maður Evelyn Glory Joseph, kært málið til ríkissaksóknara sem í kjöl- farið óskaði eftir upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum DV er kæran sem barst lögreglu í biðstöðu meðan ríkis saksóknari kannar málið. n n Málið enn hjá ríkissaksóknara n Óviðkomandi aðilum blandað inn í mál Tony Omos Jóhann Páll Jóhannsson Jón Bjarki Magnússon johannp@dv.is / jonbjarki@dv.is „Svona tal um pólitískar árásir koma oftast bara út eins og við- komandi geti ekki svarað fyrir sig Hanna Birna Kristjánsdóttir Innanríkisráðherra hefur ekki viljað svara fyrirspurnum DV vegna málsins. Mynd Sigtryggru Ari Íslensk kona nafngreind í minnisblaði ráðuneytis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.