Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Síða 12
Vikublað 21.–23. janúar 201412 Fréttir
íslenskra hjálparsamtaka
n Erfitt að sjá í hvað styrkir fara n Lagt inn á persónulegan reikning
G
egnsæi í fjármálum hjálpar
samtaka og líknarfélaga er
mjög misjafnt hér á landi,
og ekki er í öllum tilfellum
auðvelt fyrir þá sem vilja
veita styrki að finna upplýsingar um
hvað peningarnir fara nákvæmlega
í. Heimasíðurnar eru jafn misjafn
ar og félögin sjálf en ársreikninga
er stundum auðvelt að nálgast og
sundurliðun á tekjum og kostnaði við
rekstur. Í flestum tilfellum er þó ekki
auðvelt að sjá það nákvæmlega hvert
peningarnir fara. DV greindi frá því í
byrjun árs að Fjölskylduhjálp gefur
sig út fyrir að vera aðeins með sjálf
boðaliða í öllum störfum, en svo er
þó ekki.
Eiga eftir að uppfæra heimasíðu
Formaður samtakanna, Ásgerður Jóna
Flosadóttir, sagðist vera með hálfa
milljón króna í mánaðarlaun en hún
er eini launaði starfsmaður samtak
anna. Samkvæmt heimasíðu samtak
anna eru allir starfsmenn í sjálfboða
liðavinnu og þær upplýsingar eru því
ekki réttar. „Við eigum eftir að upp
færa heimasíðuna, við fengum hana
gefins fyrir ári,“ sagði Ásgerður Jóna
við DV. Þegar blaðamaður falaðist eft
ir ársreikningi samtakanna reyndist
það ekki mjög erfitt, en til þess þurfti
hann þó að hitta Ásgerði Jónu í hús
næði samtakanna. Hún var þar tilbú
in með útprentað eintak af síðasta árs
reikningi og sagði að hann væri ekki
birtur á heimasíðunni þar sem enginn
skanni væri á skrifstofunni.
Tilnefndur sem hetja ársins
Hjálparsamtök Íslendinga skutu
upp kollinum síðasta haust, en
stofnandi þeirra er Róbert Guð
mundsson. Þegar fréttist af Lithá
anum Ricardas Zazeckis sem bjó í
bíl við Esjurætur var Róbert fljót
ur á staðinn og bauð honum hjálp.
Í kjölfarið fékk Ricardas vinnu og
húsnæði á Akranesi, bílnum hans
var komið í gang og hann fékk
einnig nýjan síma. Fyrir vikið var
Róbert tilnefndur sem hetja ársins
hjá DV. Róbert hélt hjálparstarfinu
áfram fyrir jólin, bakaði smákökur
sem hann dreifði í kirkjur á Suður
landi, gaf matarpakka til fólks sem
er illa statt og fleira. Samtökin hafa
enga heimasíðu, en eru mjög virk á
Facebook.
„Þú getur ekkert verið viss“
Á gamlársdag birti Róbert bókhald
samtakanna, en öll fjárframlög eru
lögð beint inn á persónulegan reikn
ing hans. Samtals söfnuðust 206.520
krónur en auk þess lagði Róbert fram
98.272 krónur til viðbótar. Í stöðu
uppfærslunni, þar sem bókhaldið er
birt, segir Róbert að hann hafi keypt
mat fyrir allan peninginn, sem síðan
hafi verið notaður til að styrkja 43 fjöl
skyldur með mat og jólapakka. Þegar
blaðamaður heyrði hljóðið í Róberti
og falaðist eftir nánari upplýsing
um um bókhald sagði Róbert að slíkt
væri ekki til. „Ég er ábyrgur fyrir mikl
um pening, það er frjáls vilji fólks að
leggja inn á reikninginn,“ sagði Ró
bert. Þegar hann var inntur eftir því
hvernig fólk sem vill styrkja samtökin
geti verið öruggt með að peningurinn
sem það leggur inn fari allur í hjálp
arstarfið sagði Róbert: „Þú getur ekk
ert verið viss. Það er bara þannig.“ Því
næst sakaði hann blaðamann um
að ætla sér að rakka samtökin niður,
áður en hann skellti á.
Úthringiver afla styrkja
Fjölmörg hjálparsamtök og líknarfé
lög nýta sér þjónustu úthringivera til
þess að afla fjárstyrkja. Í slíkum tilvik
um er peningurinn yfirleitt lagður inn
á reikning hjálparsamtakanna, sem
síðan borga fyrir þjónustuna til baka.
Misjafnt er hvernig þeim greiðslum
er háttað, hvort búið er að semja um
ákveðið verð fyrirfram eða hvort það
fari eftir því hversu mikils af styrkj
um er aflað. Þjónustuaðilinn fær þá
ákveðna prósentu, yfirleitt rúmlega
þrjátíu prósent, í sinn hlut af þeirri
upphæð sem safnast saman. Dæmi
um hjálparsamtök sem nýta sér
slíka þjónustu eru Samhjálp, S.O.S.
barnaþorp, Umhyggja, Styrktarfélag
krabbameinssjúkra og Fjölskyldu
hjálp Íslands. Síðastnefndu samtökin
nutu áður þjónustu Líknarfélagsins
hjálpar, en að þeim stóðu þeir Tómas
Bickel og Baldur H. Úlfarsson. Reglu
lega bárust fréttir af því að líknarfé
lagið hefði gefið Fjölskylduhjálp pen
ingagjafir, sem gjarnan voru ríflegar.
„Ég er ábyrgur fyrir
miklum pening,
það er frjáls vilji fólks að
leggja inn á reikninginn.
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Róbert Guðmundsson Stofnaði Hjálparsamtök Íslendinga fyrir jól og var tilnefndur sem
hetja ársins hjá DV. Hann segir að fólk sem styrki samtökin geti ekki verið öruggt með að pen-
ingarnir fari allir í hjálparstarfið. Mynd FacEbook
Fjölskylduhjálp Íslands
Á heimasíðu samtakanna
segir að allir starfsmenn
séu sjálfboðaliðar. Það gæti
blekkt þá sem vilja styrkja
þau, en formaðurinn fær
hálfa milljón króna á mánuði.
Oft ógagnsæi í fjármálum
Málþing um
ristilkrabba
Ristilkrabbamein er þriðja al
gengasta krabbameinið á Ís
landi og ein algengasta dánar
orsök af völdum krabbameins.
Í dag, þriðjudag, hefst í Hörpu
málþing um faraldur ristil
skrabbameins sem ber yfir
skriftina Faraldur ristilkrabba
meins: Verður eitthvað aðhafst?
Í tilkynningu vegna mál
þingsins kemur fram að
rannsóknir hafi sýnt að með
skipulagðri leit að ristilkrabba
meini og forstigi þess hjá ein
kennalausum einstaklingum 50
ára og eldri sé hægt að lækka
dánartíðni af völdum sjúk
dómsins.
Þingið er í tengslum við
Læknadaga 2014. Dagskráin
hefst klukkan 16.20 og fer fram
í Kaldalóni í Hörpu. Aðgangur
er ókeypis.
Margir sektaðir
fyrir stöðubrot
Lögreglan á Suðurnesjum sektaði
tuttugu og tvo ökumenn fyrir að
leggja ólöglega við Reykjanes
höllina á sunnudag, en á sama
tíma fór knattspyrnumót fram
í höllinni. Í tilkynningu frá lög
reglunni kemur fram að fjórir
ökumenn hafi einnig verið
sektaðir fyrir að virða ekki stöðv
unarskyldu. Þá var einn ökumað
ur sektaður fyrir of hraðan akstur
á Reykjanesbraut og annar sem
ók gegn einstefnu.
Sjálfboðaliðar
aðstoða við
heimanámið
Nemendum í fjórða til tíunda
bekk býðst að koma á Borgar
bókasafn Reykjavíkur og fá
aðstoð frá sjálfboðaliðum við
heimanámið sitt. Aðstoðar
mennirnir eru frá Rauða
krossinum í Reykjavík. Borg
ararbókasafnið og Rauði kross
inn hafa um árabil boðið upp
á þessa aðstoð en nú hefur
skóla og frístundasvið borg
arinnar bæst í samstarfshóp
inn. Í tilkynningu frá Borgar
bókasafninu kemur fram að
allir nemendur séu velkomnir
en nánari upplýsingar um fyrir
komulagið má nálgast á vefnum
heilahristingur.is.