Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Side 28
Vikublað 21.–23. janúar 201428 Lífsstíll
Flottustu
skeggin
Vefsíðan Mensfitness.com tók
saman sinn lista yfir þá frægu
karlmenn sem að hennar mati
hafa flottasta skeggið. Hér fyrir
neðan má sjá niðurstöðurnar.
Chris Hemsworth
Jake Gyllenhal
Hugh Jackman
Bradley Cooper
Zac Efron
Ryan Gosling
„Ég er í eilífðarátaki“
Ásdís Rán gefur uppskrift að orkubombu
É
g borða yfirhöfuð alltaf hollt. Ég
er í eílífðarátaki enda dugir ekk-
ert annað ef maður vill hugsa vel
um heilsuna og láta sér líða vel!
Núna er ég að reyna vera aðeins dug-
legri í grænmeti, ávöxtum og fræjum
sem tekst einmitt mjög vel með svona
morgun-boozt,“ segir athafnakonan
Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem er líkt
og margir um þessar mundir, dugleg
að blanda sér heilsuþeytinga. Ásdís
fær sér heilsuþeyting á hverjum ein-
asta morgni. „Ég er mikill boozt- og
djúsaðdáandi og var svo heppin að
kynnast Nutribullet mixer-vélinni úr
Kosti í byrjun janúar. Ég er búin að
vera dugleg í að blanda geggjuð græn
morgunboozt fyrir mig og krakkana
síðan þá. Vélin er svo svakalega auð-
veld og þægileg í notkun að það tekur
ekki mikið meira en fimm mínútur að
töfra fram einn góðan drykk fyrir fjöl-
skylduna,“ segir hún. Ásdís deilir hér
með lesendum uppskrift að heilsu-
þeytingi sem hún segir vera afar ein-
faldan og bragðgóðan. „Þessi er algjör
bomba. Ekki slæmt að byrja daginn á
einum svona.“
Boozt fyrir 2:
n Ég nota yfirleitt handfylli af spínati/káli
sem undirstöðu
n 1 banani
n 2–3 jarðarber
n 1 epli
n 1/4 avókadó
n 2 cm bútur af aloa vera-plöntu (til í Kosti)
n 1 vanilluskyrdós eða próteinduft
n 1 msk. chia-fræ sem eru full af omega-3 og
öðrum næringarefnum
n Vatn eftir smekk
Tæklaðu frekju-
kastið rétt
Sjö ný og góð ráð gegn óhlýðni
Ekki taka óhlýðninni
persónulega Samkvæmt Sörah
MacLaughlin er barnið ekki óþekkt
af því að það vill athygli heldur af
því að það vantar athygli.
Langhlaup Það er maraþon, ekki sprett-
hlaup, að ala upp ábyrgan einstakling.
G
erist eitthvað innra með
þér þegar barnið þitt horfir
beint í augun á þér um leið
og það neitar að hlýða? Ekki
örvænta, þú ert ekki ein/n.
Þótt allt innra með þér öskri á þig
að öskra á móti eru til betri aðferð-
ir til að takast á við erfiða hegðun.
Sarah MacLaughlin er fjölskyldu-
ráðgjafi sem skrifar í Huffington
Post. Hér eru sjö ráð Söruh til að
takast á við óhlýðni og erfiða hegð-
un barna. Hægt er að lesa meira um
ráðleggingar hennar á vefsíðunni
sarahmaclaughlin.com.
1 Ekki taka frekjukastið
persónulega
Barnið þitt er ekki
að reyna að pirra þig
þótt það neiti að borða
morgunmatinn. Óliðleg
og ögrandi framkoma er merki um
að barnið upplifi sig ótengt. Sam-
kvæmt Söruh haga börn sér ekki
illa til að fá athygli. Þau haga sér illa
af því að þau VANTAR athygli og
tengingu við þig. Það versta sem þú
getur gert er að bregðast við með
reiði.
2 Veltu fyrir þér af hverju barnið neitar Ímyndaðu
þér dag þar sem þú ert vakin/n og
skipað að gera hitt og þetta áður
en þú hefur almennilega opnað
augun. Þér er sagt í hvaða föt þú
eigir að fara, hvað þú eigir að borða
og hvenær þú eigir að yfirgefa húsið
og svo framvegis. MacLaughlin
mælir ekki með því að þú leyfir
barninu að stjórna en segir að það
gæti hjálpað þér að setja þig í spor
barnsins.
3 Talaðu við sjálfa/n þig
Það er ekki til betra
verkfæri til að halda
þér rólegum/rólegri
en jákvætt tal við sjálfa/n
sig. Ef þér á að takast að taka ekki
frekjukastið persónulega verðurðu
að tala við sjálfa/n þig um það sem
er að gerast fyrir framan þig. Það
þýðir að þegar barnið öskrar: „Ég
vil ekki klæða mig“ og þig langar
mest að öllu að öskra á móti „MÉR
ER ALVEG SAMA HVORT ÞÚ VILT
ÞAÐ EÐA EKKI. DRÍFÐU ÞIG Í
FÖTIN“ róarðu þig niður með
setningum á borð við „andaðu ró-
lega. Jói vill ekki klæða sig og mig
langar að öskra en ég ætla að halda
ró minni“. Talaðu til þín þar til þér
tekst að sannfæra þig um að æpa
ekki á móti barninu.
4 Virtu tilfinningar
barnsins og
komdu til móts
við þær
Mættu uppreisn
með hlýju. Það er
nefnilega hægt eftir allt jákvæða
sjálfstalið! Ræddu við barnið og
sýndu skilning: „Þú vilt alls ekki fara
út úr bílnum. Ég sé að þú rígheldur
í bílstólinn.“ Þannig býrðu til bil
á milli reiðistormanna sem gætu
auðveldlega brotist út hjá ykkur
báðum. Barninu líður ekki eins og
það hafi enga stjórn á umhverfinu og
valdabarátta er ekki til staðar.
5 Settu einungis mörk við hættulega hegðun Þegar
barnið missir algjörlega stjórn á sér
fer taugakerfi þess yfir um og því er
ekki hægt að kenna því lexíu á með-
an. Tryggðu öruggt umhverfi en láttu
barnið annars vera. Stöðvaðu árásar-
girni með traustum höndum og
segðu „ég get ekki leyft
þér að berja“. Ef barnið
hefnir sín og öskrar að
það hati þig skaltu ekki
einnig setja hömlur á
orð þess. Barnið er hætt
að beita ofbeldi og farið að
nota orðin sín, þótt ljót séu. Passaðu
þig að fara ekki niður á plan barns-
ins. Þú getur þetta – af því að þú ert
með fullþroskaðan heilabörk.
6 Hafðu jákvæða sýn á barnið Hafðu í huga að það
er maraþon en ekki spretthlaup að
ala upp ábyrgan, góðan og dug-
legan einstakling. Taktu aftur upp
sjálfstalið: „Barnið mitt er ungt og er
að læra. Heili þess er enn að þroskast
og það þarfnast blíðrar leiðsagnar
mínar“. Treystu barninu til að ná
áttum. Þótt það neiti að yfirgefa
heimilið klukkan hálf fjögur er ekki
þar með sagt að það muni neita því
tíu mínútum seinna. Haltu í trúna á
að barnið muni á endanum gera það
sem þú biður um.
7 Notaðu húmor og valdaleik Grín getur verið gagnlegt verk-
færi ef það er rétt notað. Forðastu
kaldhæðni og stríðni! Ef barnið vill
ekki leyfa þér að tannbursta sig
geturðu sagt: „Hmm … munnurinn
virðist lokaður. Ég verð bara að
bursta nefið og eyrun í staðinn“.
Hlæðu með barninu og sjáðu hvort
það gefur sig ekki. Valdaleikur
(e. power play) er þegar þú
gefur barninu meiri völd. Vin-
sælir leikir eru „ýtum pabba“
eða „boðin óhlýðni“ þegar
foreldri byggir turn og biður
um að hann verði ekki skemmdur
einungis til að láta barnið skemma
hann og byggja hann upp aftur.
Hvort tveggja ætti að vekja upp
kátínu. Auðvitað getur verið erfitt að
halda ró sinni þegar barnið ögrar en
mundu að börnin læra með því að
fylgjast með okkur. n
Hugar að heilsunni Ásdís segist vera í eilífðarheilsuátaki enda þýði ekkert annað.