Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Qupperneq 32
Vikublað 21.–23. janúar 201432 Menning Gantast með guðunum Afþreying og fræðimennska í senn H elstu heimildir sem til eru um norræna goðafræði er annars vegar að finna í verkum Ís- lendingsins Snorra Sturlu- sonar og hins vegar Danans Saxa málspaka. Snorri þykir bæði áreið- anlegri og skemmtilegri en Saxi, en eigi að síður voru það um tíma Danir sem helst nýttu sér arf þennan í nú- tíma sagnagerð. Heil kynslóð Íslendinga kynnt- ist guðunum fornu helst í gegnum dönsk rit, svo sem Goð og hetjur í heiðnum sið eftir Anders Bæksted sem bar undirtitilinn „alþýðlegt fræðirit,“ og kom út hér árið 1986, og ekki síður hinar stórskemmtilegu Valhallarteiknimyndasögur. Fyrsta bókin, sem nefndist Úlfurinn bund- inn, kom út samtímis á öllum Norð- urlöndunum árið 1979 og næstu fjór- ar bækur komu hér út með reglulegu millibili allt til ársins 1989. Það er kærkomið að bækur þessar skuli nú vera endurútgefnar hér, ein á ári frá 2010. Höfundar bókanna eru vel að sér í fornsögunum og hafa með tíð og tíma orðnir virtir fræðimenn innan geirans, en skemmtanagildið er þó ávallt í hávegum haft. Það verður að segjast eins og er að fjórða bókin er sú sísta í röðinni. Höf- undar eru færir að tvinna saman hin ýmsu minni sagnanna og geta í eyð- urnar þegar vantar upp á, en Sagan um Kark er eina bókin sem ekki byggir á goðsögu. Jötnastrákurinn Karkur var skap- aður af höfundum fyrir teiknimyndina Valhöll sem naut gríðarlegra vinsælda árið 1988. Myndin byggir á sögunni um Útgarða-Loka, sem er jafnframt þema fimmtu bókarinnar, en sú fjórða er uppbygging að þeirri sögu og stendur því, ólíkt hinum, tæpast sem sjálfstætt verk. Líður hún nokkuð fyr- ir að það vantar ris í hana, en í staðinn fáum við endurtekinn óknytti Karks, sem síðar fékk sína eigin seríu. Bókin er þó nauðsynleg viðbót í safnið, sem ætti að vera til á öllum menningarheimilum. Og nú er bara að vona að útgáfunni verði haldið áfram, og að hin síðustu 10. bindi verði loks fáanlega á íslensku, því sögurnar batna enn eftir því sem á líður. n Þ að er óhætt að segja að sýn- ingin á Gullna hliðinu á Akur- eyri hafi komið hressilega á óvart öllum þeim sem héldu að verkefnavalið væri dá- lítið gamaldags. Sýningin er ábyggi- lega með skemmtilegri uppfærslum í íslensku leikhúsi á þessu leikári og er allrar athygli verð og ætti að njóta aðsóknar. Og hún er ekki aðeins sig- urganga hinnar nafnlausu kerlingar með sálina hans Jóns til himna, hún er líka sigurganga Leikfélags Akur- eyrar sem hefur fetað erfiða þrauta- göngu á undanförnum árum í rekstri sínum. Hér er nefnilega vandað til verka á öllum sviðum og hvergi veik- an hlekk að finna. Upp til himna Gullna hliðið er eitt vinsælasta verk íslenskra leikbókmennta og verður að teljast sígilt, enda segir það okkur sanna og vel þekkta sögu af lífsbrölti manneskjunnar. Davíð Stefánsson byggði leikritið á kvæðinu Sálin hans Jóns míns sem aftur byggði á gam- alli þjóðsögu. Frægastar eru persón- urnar Jón og Kerlingin sem treður sál hans í skjóðu eftir andlátið og arkar til himna yfir ófærur íslenskra fjalla til að freista þess að koma henni í gegnum Gullna hliðið, þrátt fyrir að hún eigi hugsanlega heima í helvíti með allt sitt syndaregistur á jörðinni. En það er ekki aðeins yfir ófærur náttúrunn- ar að fara, á leiðinni mætir Kerlingin öðrum hindrunum, bersyndugum persónum sem hún á ærlegt uppgjör við áður en þær hrapa niður í loga helvítis. Vængir sem fljúga hátt Í uppsetningu leikstjórans með langa nafnið (Egill Heiðar Anton Pálsson) hefur tekist að gefa leikriti Davíðs Stefánssonar nýja vængi sem fljúga hærra en margur þorði að vona. Og það sem vekur athygli er að áhöfnin í þessari sýningu er lítil, aðeins fjór- ir leikarar, tvær tónlistarkonur og tíu börn sem í sameiningu leysa öll hlut- verk leiksins og atburðarás af hendi með einstökum glæsibrag. Þetta gera þau í einstakri leikmynd eftir annan Egil (Ingibergsson) og fullyrða má að leikmyndin sæti tíðindum í íslensku leikhúsi. Egill er líka höfundur lýs- ingar og hún er óaðskiljanlegur hluti af sjónhverfingunum sem honum, leikstjóra og allri áhöfninni hefur tek- ist að skapa. Leiksigur Maríu Ferðalag Kerlingar með broguðu sál- ina hans Jóns er engin smáganga fyrir Maríu Pálsdóttur sem hér vinn- ur öruggan leiksigur. Bak við hennar himnagöngu hljóta að liggja margar þjálfunargöngur á íslensk fjöll, því hún þarf bókstaflega að klifra upp og niður lóðrétta leikmyndina til að komast á leiðarenda. Og það verður að segjast eins og er að þessi Kerling Maríu Pálsdóttur var feikilega sönn í öllu bröltinu. Á leiðinni fengum við að sjá djúpt inn í sálarfylgsni konu sem hefur lifað af sambúðina við fylliraft- inn og hórkarlinn Jón, en elskar hann þrátt fyrir allt. Kannast einhver við slíkar konur? Meðvirka Kerlingin hjá Maríu er orðin að konu með sín- ar sjálfstæðu hugsanir, tilfinningar og vilja þrátt fyrir eymdarlífið með Jóni. Og allt er þetta gert af mikilli ástríðu og virðingu fyrir hlutverkinu og sjálfri grunnhugmynd leikstjórans sem heldur áhorfandanum föngnum frá upphafi til enda. Ferð Kerlingar er nefnilega ekki raunsæisleg ganga, heldur dulítið ævintýri sem fer fram í höfði hennar við útför Jóns. Hún losn- ar ekki úr álögum við karlinn fyrr en hún hefur gert upp allt líf þeirra í hug- anum. Ekki bara rödd í skjóðu Og það er einmitt þetta hugarferða- lag sem við sjáum á leiksviðinu. Það var ekki amalegt fyrir Maríu að hafa Hannes Óla Ágústsson á móti sér í hlutverki Jóns sem var ekki aðeins rödd í skjóðu heldur birtist okkur hvað eftir annað í öllu sínu veldi á leið Kerlingar, áhorfendum til ómældr- ar gleði. Hannes Óli átti dásamlegan leik og tilsvör, snaggaralegar skýr- ingar hans á manneðlinu og veik- leikum þess urðu svo skemmtilegar að stundum var ekki annað hægt en að trúa þeim og taka undir. Hann var brjóstumkennanlegur hlunkur í dauðastríðinu og hryllilega þver- móðskufullur og fyndinn á leiðinni til himna. Samleikur þeirra Maríu var fyrst og fremst manneskjulegur, sam- bland af úthugsuðum húmor, erótík og ósvikinni leikgleði. Leika ótal hlutverk En það eru fleiri sem eiga stórgóðan leik í sýningunni. Þótt Aðalbjörg Árnadóttir hafi farið nokkuð gassa- lega af stað í hlutverki Vilborgar grasakonu í upphafi leiks, þá reyndist það allt vera í anda leiksins sem síð- an tekur við. Vilborg var aðeins byrj- unin á röð ólíkra hlutverka sem henni tókst vel að skilja að og skapa hverju þeirra eftirminnilega sérstöðu, ekki síst hlutverki sýslumanns, frillu Jóns og sjálfs Lykla-Péturs. Hilmir Jens- son átti líka stórgóðan leik í mörgum smáhlutverkum, en var einkum eftir- minnilegur í hlutverki hreppstjórans og sjálfs óvinarins, krassandi og kraft- mikill. Ekki reyndi síður á leik-fimi hans þegar hann bókstaflega hékk öfugur í lóðréttri leikmyndinni sem drykkjumaðurinn. Fléttast sem vínviður Til að kóróna þennan leik allan sá dúettinn Eva um að fylla upp í persónugallerí Davíðs og áttu líka ógleymanlegan leik, Sigríður Eir Zophoníasardóttir sem Jón maður Helgu sem Kerling hittir á Völlunum og Jóhanna Vala Höskuldsdóttir sem Faðir kerlingar. Þær stöllur eru einnig höfundar hljóðmyndar og tónlistar sem fléttast um alla sýninguna eins og fallegur vínviður, aldrei uppá- þrengjandi, aðeins ljúf og fögur í einfaldleika sínum en brestur þó út í grallaralegri og dúndurskemmti- legri drykkjuvísu eftir Davíð á við- eigandi stað í verkinu. Og reyndar semja þær tónlist við fleiri ljóð Davíðs og upphafserindi Passíusálma Hall- gríms. Auðvitað komust þær ekki hjá að nota dulítið af frægri tónlist Páls Ís- ólfssonar, einkum þegar englabörn- in í himnaríki sungu hana raddaða þannig að tár spruttu fram á hvarma. Barnaskarinn úr leiklistarskóla leikfé- lagsins á hrós skilið fyrir sinn einlæga og fallega þátt í sýningunni. Sjón er sögu ríkari Stærstan þátt í sjónrænni framsetn- ingu leiksins á Egill Ingibergsson sem leysir ferðalag Kerlingar snilldarlega með því að varpa lituðum teikning- um af íslensku landslagi eftir August Mayer (úr Íslandsleiðangri undir stjórn Frakka 1836) á hreyfanlega sviðsflekann sem er allt í senn; ís- lenskur torfbær, hrikaleg náttúra og himnaríki. Ferð sumra persónanna til helvítis var ekki síðri sviðslausn hjá Agli, sjón er sögu ríkari! Gullna hliðið í uppsetningu þeirra Egils og Egils er á heildina litið lifandi leikhús sem fyrst og fremst byggir á nýjum og ferskum lestri verksins, lestri sem opnar fyrir íroníu textans, en er þó alltaf trúr megininntaki hans. Það fer ekki milli mála að allir hafa lagt sitt af mörkum við leikræna úrvinnslu svo sýningin mætti verða að þeirri óvæntu leikhúsreynslu sem hún vissulega er. Davíð yrði ánægður Gullna hliðið er vafalaust með merki- legri leiksýningum í seinni tíð, töfr- andi og heillandi leikhúsævintýri þar sem alúð og ástríða fyrir verkefn- inu hefur ráðið för. Með henni hefur Ragnheiði Skúladóttur tekist í fyllstu merkingu orðsins að skapa það fram- sækna alþýðuleikhús sem hún stefndi að þegar hún tók við stjórn hússins. Til hamingju Akureyringar! Og Davíð, þú yrðir ánægður með þetta. n Sigurganga á Akureyri Með merkilegri leiksýningum í seinni tíð „Fullyrða má að leikmyndin sæti tíðindum í íslensku leikhúsi Gullna hliðið Höfundur: Davíð Stefánsson Leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson Leik- arar: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, Hilmir Jensson, María Pálsdóttir o.fl. Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson Búningar: Helga Mjöll Oddsdóttir Tónlist og útsetningar: Hljómsveitin Eva Leikfélag Akureyrar sýnir Hlín Agnarsdóttir ritstjorn@dv.is Dómur Sigur eftir þrautagöngu Sýningin er sigurganga Leikfélags Akureyrar sem hefur fetað erfiða þrautagöngu á undanförnum árum í rekstri sínum. Hér er nefnilega vandað til verka á öllum sviðum og hvergi veikan hlekk að finna. „Heil kynslóð Ís- lendinga kynntist guðunum fornu helst í gegnum dönsk rit, svo sem Goð og hetjur í heiðnum sið. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur Goðheimar 4: Sagan um Kark Höfundar: Peter Madsen, Henning Kure og Hans Rancke. Þýðandi: Bjarni Fr. Karlsson Útgefandi: Iðunn 48 blaðsíður Margrét og Dr. Gunni í samstarfi Leikfélag Akureyrar undirbýr nú uppsetningu á Lísu í Undra- landi, en sýningin verður sett upp af Leikfé- lagi Akureyrar í október á þessu ári. Mar- grét Örnólfs- dóttir, fyrrver- andi Sykurmoli og barnabóka- höfundur, hef- ur samið nýja leikgerð við verkið við tónlist eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson – Dr. Gunna. Saga Lewis Carroll um ferða- lag stúlkunnar Lísu til Undralands er sígilt bókmenntaverk og ein merkasta og ástsælasta barna- og unglingasaga veraldar. Hana prýða margar af skemmtilegustu persónum barnabókmenntanna, sem lifna við á Akureyri. Sömdu Eurovision-lag á níu tímum F.U.N.K. er ný hljómsveit sem stofnuð var sérstaklega fyrir Eurovision-keppnina í ár. Meðlimir sveitarinnar eru ungir að árum og í gamni hafa þeir reiknað út meðalaldur sinn, 20,3 ár. Hluti sveitarinnar var í Bláum Ópal sem lenti í öðru sæti í Eurovision fyrir tveimur árum með lagið Stattu upp. Þeir unnu eins og margir muna símakosn- ingu keppninnar með miklum yfir burðum en það skilaði þeim þó ekki alla leið, þar sem dómnefnd hafði með vægi sínu áhrif á úrslit. Nú stefna þeir á sigur í keppn- inni með lagið: Þangað til ég dey. Strákarnir sömdu lagið á 9 klukku- tímum. Sendu inn lagið 5 mínút- um fyrir lokafrest og flugu í gegn. Í galla frá toppi til táar Söngkonan Emilíana Torrini frum- sýndi nýverið myndband við lag sitt Tookah. Myndbandinu var leikstýrt að listamannateyminu Shynola. Richard Kenworthy, Chris Harding og Jason Groves. Áður hafa þeir unnið með stórum sveit- um á borð við Alice in Chains. Emilíana þurfti að klæðast þröngum nælongalla við upp- tökurnar þar sem andlitið var hulið, eins og tíðkast stundum þegar unnið er með tölvuteiknað umhverfi. Áhrifin eru seiðmögn- uð þar sem hún líður um skjá- inn. Emilíana hefur sagt um laga- smíðarnar að lagið Tookah sé eins konar gleðióður til lífsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.