Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 17.–19. júní 201414 Fréttir Viðskipti
Leikirnir sem um ræðir
eru Grand Theft Auto:
Liberty City Stories og
Grand Theft Auto: Vice
City Stories.
Óska eftir notuðum
Playstation 2 leikjum
Viðkomandi má
hafa samband við
Odd Stefánsson í
síma 897 5423
Tilbúinn að
borga allt að 2.000 kr. fyrir
hvorn leik
Segja ekkert um afdrif OZ
Nokia keypti OZ á versta tíma
U
pplýsingafulltrúi Nokia
getur ekki gefið upplýs-
ingar um hversu miklu fyr-
irtækið tapaði á kaupun-
um á OZ Communications,
kanadísku fyrirtæki sem stofnað var
á grunni OZ á Íslandi. Þetta kemur
fram í svari frá upplýsingafulltrúan-
um, Mark Durrant.
Eigendur OZ í Kanada, meðal
annars Skúli Mogensen, seldu OZ
til Nokia í september 2008, í sama
mánuði og bankahrunið hófst á Ís-
landi eftir fall Lehman Brothers
um miðjan mánuðinn. Greint var
frá sölunni í íslenskum fjölmiðlum
hinn 30. september en kaupverð var
ekki gefið upp. Síðan þá hefur staða
Nokia versnað til muna, líkt og fram
hefur komið, og var hluti fyrirtækis-
ins seldur til Microsoft í apríl síðast-
liðinn. Durrant segir að Nokia hafi
unnið með þá farsímalausn sem
fyrirtækið keypti af OZ og markaðs-
sett hana undir Nokia Messaging
Service.
DV hafði heimild fyrir því að
Nokia hefði tapað umtalsverðum
fjármunum á OZ en árið 2008 störf-
uðu 220 manns hjá fyrirtækinu og
viðskiptavinir voru 5,5 milljónir. Í
kjölfarið á sölunni kom Skúli Mog-
ensen til Íslands og sagðist þá til-
búinn með þrjá milljarða til fjár-
festinga. Í svari Durrants segir:
„Ég get ekki tjáð mig um stöðuna
á kanadíska fyrirtækinu eða bætt
einhverju við það sem þú getur nú
þegar fundið í opinberum gögnum.“
DV fær því ekki upplýsingar um
stöðuna á OZ í Kanada eða hversu
mikið Nokia tapaði á fjárfestingunni.
Ljóst má hins vegar vera að salan á
fyrirtækinu var vel tímasett hjá fjár-
festunum sem seldu fyrirtækið. n
ingi@dv.is
Gísla stefnt vegna
Skúlagötuviðskipta
n Fékk tæpar 40 milljónir n Milliliður í samskiptum við banka
G
ísla Gíslasyni lögmanni,
sem einna þekktastur er
sem einn af forvígismönn-
um rafbíla á Íslandi, hefur
verið stefnt af Arion banka,
Glitni og Íslandsbanka vegna að-
komu sinnar að viðskiptum með
fasteign á Skúlagötu sem í dag hýsir
kínverska sendiráðið. Um er að ræða
skaðabótamál sem þingfest var í jan-
úar síðastliðinn. Fyrirtaka verður í
málinu í september næstkomandi.
Gísli kom að viðskiptunum með
húsið, í árslok 2009, sem lögmaður
Arons Péturs Karlssonar.
114 milljónir
Hæstiréttur dæmdi Aron í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir fjársvik í
lok síðasta árs vegna viðskiptanna
með húsið en talið var sýnt að hann
hefði blekkt þrjá banka til að aflétta
veðum af húsinu vegna kauptil-
boðs í það upp á tæpar 600 millj-
ónir frá indverskum fjárfestum en
hins vegar lá þá fyrir annað tilboð
upp á 880 milljónir króna frá kín-
verska sendiráðinu. Kröfur bank-
anna þriggja á hendur félaginu sem
átti húsið námu tæplega 700 millj-
ónum og fengu þeir meira en 100
milljónum minna upp í kröfur sínar
á hendur félaginu. Húsið var svo selt
til kínverska sendiráðsins fyrir 880
milljónir og runnu 114 milljónir inn
á bankareikning eignarhaldsfélags
Arons og urðu bankarnir þar með af
þessum fjármunum.
Fékk tæpar 40 milljónir króna
Orðrétt segir um aðkomu lög-
mannsstofu Gísla að viðskiptun-
um með húsið þar sem talað er um
„lögmannsstofu G.“: „Hinn 28. des-
ember 2009 millifærði H 7.000.000
Bandaríkjadala yfir á reikninginn.
Fjármunirnir voru greiddir út af
reikningnum samdægurs og voru
577.300.000 krónur millifærðar á
bankareikning A ehf., 114.723.500
krónur á bankareikning Y ehf., tvær
færslur voru á bankareikning L ehf.,
lögfræðiskrifstofu G, að fjárhæð
24.900.000 krónur og 15.000.000
króna, auk þess sem millifært var á
reikning fasteignasölu vegna sölu-
þóknunar, til Ríkissjóðs Íslands,
Orkuveitu Reykjavíkur og til greiðslu
fasteignagjalda. Með úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur 25. janúar
2011 var Eignarhaldsfélagið A ehf.
úrskurðað gjaldþrota.“
Sagði ekki frá riftun
Í fréttum á sínum tíma kom fram að
farið hefði fram leit á lögmannsstofu
Gísla vegna rannsóknar málsins og
var hann einn þeirra sem gaf skýr-
slu fyrir dómi í málinu. Aron Pétur
sagði fyrir dómi að Gísli hefði kom-
ið að samskiptum við bankana fyr-
ir sína hönd. Meðal þess sem fram
kom fyrir dómi var að Gísli hefði ekki
sagt bönkunum frá því að Aron hefði
rift sölunni á húsinu til indversku
fjárfestanna og að til stæði að selja
til þeirra kínversku. Orðrétt sagði í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. „G
kvaðst ekki hafa sagt starfsmönn-
um bankans frá því að ákærði hefði
rift kaupum við indverska félagið.
Ákærði hefði ekki beðið hann um að
halda þessu leyndu, en hann hefði
talið að það væri ákærða að gera
bankanum grein fyrir þessu.“
Vill ekki ræða málið
Þórir Júlíusson, lögmaður bank-
anna þriggja sem höfða skaðabóta-
málið gegn Gísla, segist í samtali við
DV ekki vilja tjá sig um málið efnis-
lega eða á hverju kröfugerð bank-
anna byggist. Hann bendir á að
samkvæmt upplýsingum á vef hér-
aðsdóms megi sjá að málið hafi verið
þingfest og að fyrirtaka sé í því með
haustinu. Hugsanlegt er að bank-
arnir ætli sér í dómsmálinu að reyna
að sækja þær tæplega 40 milljónir
króna sem lögmannsstofa hans fékk
í viðskiptunum. n
„G kvaðst ekki hafa
sagt starfsmönn-
um bankans frá því að
ákærði hefði rift kaupum
við indverska félagið.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Kom að viðskiptunum Gísli Gíslason kom
að viðskiptunum með húsið á Skúlagötu sem
Aron Karlsson hlaut dóm fyrir.
114 milljónir Í viðskiptunum með húsið á Skúlagötu runnu 114 milljónir til Arons og urðu
bankarnir sem áttu veð í eigninni af þessum fjármunum. Bankarnir hafa nú stefnt Gísla
Gíslasyni vegna viðskiptanna.
Sækir aftur um
Már Guðmundsson, núverandi
seðlabankastjóri, hefur gefið það
út að hann ætli að sækja aftur um
starfið. Starf seðlabankastjóra
hefur verið auglýst laust til um-
sóknar og er umsóknarfrestur
til mánaðamóta. Már greindi frá
þessu í viðtalsþættinum Eyjunni
á Stöð 2 á sunnudaginn.
Fréttir voru sagðar af því
í febrúar að til stæði að aug-
lýsa starf Más laust til umsókn-
ar vegna breytinga sem gera
ætti á lögum um Seðlabanka
Íslands. Í opinberri umræðu á
þeim tíma kom fram sú skoðun
að breytingarnar væru gerðar til
að losna við Má. Már túlkaði boð-
aðar breytingar hins vegar ekki
þannig en gaf hins vegar ekkert
út um hvort hann ætlaði að sækja
aftur um eða ekki.
Nú hefur Már hins vegar
ákveðið sig og mun hann sækja
um. Ekki liggur fyrir hverjir aðrir
sækja um starfið en nafn Sigurðar
Hannessonar stærðfræðings, sem
vann að skuldaniðurfærsluhug-
myndum ríkisstjórnarinnar, hef-
ur verið nefnt í þeirri umræðu.
Gefa ekkert upp Nokia keypti OZ Comm-
unications af Skúla Mogensen og viðskipta-
félögum hans árið 2008. Skúli hagnaðist vel
á viðskiptunum. Mynd SIGtryGGur ArI
Pískrað um
umsækjendur
Eftir að fyrir liggur að Már Guð-
mundsson hyggst sækja aftur um
starf seðlabankastjóra er eðli-
lega rætt nokkuð um hverjir aðr-
ir gætu haft hug á starfinu. Einn
sá fyrsti sem flestir nefna er Sig-
urður Hannesson, stærfræðing-
ur og starfsmaður MP banka,
en hann hefur unnið að skulda-
niðurfellingarhugmyndum ríkis-
stjórnarinnar og var einn þeirra
sem kynnti þær í fyrra. Öfugt
við Má þá hefur Sigurður unnið
beint með og fyrir ríkisstjórnina
á meðan skeytasendingar hafa
gengið milli Más og háttsettra
ráðherra í fjölmiðlum. Af öðr-
um sem nefndir eru til sögunn-
ar má nefna Ragnar Árnason
hagfræðing en hann hefur setið í
bankaráði Seðlabankans.