Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Síða 14
Fyrir tveimur árum gast þú keyrt norður á Akureyri frá Reykjavík fyrir 4.295 krónur aðra leiðina. Nú kostar slík ferð 6.009 krónur sé miðað við að þú kaupir ódýrasta bensínið. Bensínverð er í sögulegu hámarki og mikilvægt að gera sér grein fyr­ ir hvernig hægt er að lækka bensín­ kostnaðinn. DV birtir hér 15 ráð hvernig hægt er að koma í veg fyrir að eyða óþarflega miklu í bensín. Til dæmis er mikilvægt að vera á góð­ um dekkjum, hafa bílinn rétt stilltan og sleppa öllum aukaþunga í bíln­ um. Þá er einnig gott sparnaðarráð að samnýta bílinn með vinnufélög­ unum eða hreinlega að nota hjólið til að komast til og frá vinnu. Þannig verður þú þér út um ókeypis líkams­ rækt í leiðinni Tæplega 40 prósenta hækkun á einu ári Verð á bensínlítranum er eins og stendur um það bil 242 krónur á öllum sölustöðum og hefur hann hækkað um tæp 40 prósent á tveim­ ur árum. Þess má geta að árið 2007 kostaði lítrinn 113 krónur og hefur hann því hækkað um 114 prósent síðan þá. Þetta þýðir að ef þú fyllir 50 lítra bensíntank núna þarftu að greiða fyrir það 12.100 krónur. Fyrir tveimur árum hefðir þú þurft að greiða fyrir það 9.650 krónur en árið 2007 kostaði tankurinn 5.650 krónur. Hækkunin er ríflega tvöföld á fjórum árum. Ef þú hefur hug á að keyra hring­ inn þá mun það kosta þig 31.460 krónur í bensín, sé miðað við bíl sem eyðir 10 lítrum á 100 kílómetrum. Sama ferðalag kostaði fyrir ári um 25.000 krónur. Ferðalag um landið á bílnum er því orðið töluvert dýr­ ara en það var fyrir ári og líklegt að margir hugsi sig tvisvar um áður en bensíni er dælt á bílinn. Einungis á færi þeirra efnameiri „Þetta er komið í þær hæðir að það er farið að mælast minni umferð um land allt,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann bendir á að samkvæmt mælingum Vegagerðar­ innar var umferðin minni sem nem­ ur á annan tug prósenta um versl­ unarmannahelgina nú, heldur en fyrir ári. Bensínverðið sé því farið að koma niður á frítímanotkun og al­ mennri notkun á ökutækjum. „Það stefnir allt í að það sé frekar á færi þeirra sem meira hafa að nota bílinn og það er þróun sem við teljum mjög óæski­ lega,“ segir hann. Skammvinnt verðstríð Það er þó ekki einungis verð á bens­ íni sem hefur breyst heldur má sjá á meðfylgjandi töflu að fyrir tveim­ ur árum gátu neytendur valið um að kaupa bensín þar sem það var ódýrast en nú er munurinn á hæsta og lægsta verði sjaldan meiri en ein króna. Flest félögin eru nánast með sama verð upp á aur. Einungis einu sinni frá því um mitt árið 2009 gerðist það að félögin fóru í það sem mætti kalla einhvers konar verðstríð. Það var í fyrrasum­ ar þegar N1 lækkaði bensínverð sitt um ellefu krónur. Nokkrum vikum fyrr var bensínverð komið í sögulegt hámark, eða um það bil 210 krónur lítrinn. Í dag kostar bensínlítrinn 242 krónur. Önnur félög lækkuðu einnig verðið hjá sér og var hægt að kaupa lítrann á 186 krónur. Verðstríðið stóð þó stutt því fljótlega fór verðið hækk­ andi, félögin voru algjörlega sam­ stiga í verðhækkunum og hálfu ári síðar var bensínlítrinn kominn í 212 krónur. Þríþætt ástæða hækkunar „Já, við fáum reglubundið kvartanir til okkar vegna bensínverðsins. Fólk er ekkert ánægt þegar nauðsynja­ vörur hækka jafn mikið og bensínið hefur verið að gera,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda­ samtakanna. Inntur eftir skoðun Neytenda­ samtakanna á hækkun seinustu ára á bensínverði segir hann að megin­ ástæður hækkananna séu þríþætt­ ar. „Þróun heimsmarkaðsverðs hef­ ur haft mikil áhrif en olíuverð hefur hækkað mikið. Eins hefur gengið verið afar óhagstætt fyrir okkur neyt­ endur. Svo hefur bæst við að ríkið hefur verið að auka álögur líka. Sé litið til þessara þriggja þátta sést að það er því miður lítið hægt að gera á meðan ástandið er eins og það er.“ Félögin þurfi að vera samkvæm sjálfum sér Jóhannes segir að samtökin leggi Vel skammtað n Lofið að þessu sinni fær Saffran Ex­ press á N1 uppi á Höfða. „Ég vil láta vita að Saffran Express fær prik fyrir kjúklingasalatið sem hægt er að kaupa þar. Ég fór þangað um daginn og fékk mér salatið sem var mjög vel skammtað. Það samanstóð af góðu úrvali af fersku græn­ meti, baunum, hnetum og fræjum. Einnig var vel af kjúklingi með,“ segir viðskiptavinurinn. Úldinn humar n Lastið fær fiskbúðin Fiskikóngurinn á Sogavegi sem seldi viðskiptavini 1,5 kíló af frosnum humri sem reynd­ ist vera dragúldinn þegar pokinn var opnaður. „Pokinn kostaði 4.000 krónur og var keyptur fyrir skömmu. Þá var umræddur poki seldur sem blanda af stórum humri og smærri humri en nær allur humarinn var mjög smár og tíkar­ legur auk þess sem hann var skemmdur,“ segir óánægður viðskiptavinur. 14 | Neytendur 3. ágúst 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 242,7 kr. 242,7 kr. Algengt verð 242,5 kr. 242,5 kr. Höfuðborgarsv. 242,4 kr. 242,4 kr. Algengt verð 242,7 kr. 242,7 kr Algengt verð 244,8 kr. 242,7 kr. Melabraut 242,5 kr. 242,5 kr. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Berið saman verð Neytendasamtökin hafa fengið nokkuð af fyrirspurnum vegna minni umbúða á matvælum og á heima­ síðu samtakanna segir að neytend­ ur hafi kvartað undan því að minni umbúðir leiði ekki alltaf til verðlækk­ unar. Samtökin vilja benda neytend­ um á að mikilvægt sé að bera saman verð í verslunum og að samkeppni ætti að halda aftur hækkunum enda eigi framleiðendur í samkeppni sín á milli. Framleiðendur eigi því ekki að komast upp með að hækkar vörur umfram það sem teljist eðlilegt. Neytendur eru því hvattir til að skoða kílóverð og bera þannig saman verð á milli einstakra tegunda. n Árið 2007 fékkst bensínlítrinn á 113 krónur n Nú kostar hann 242 krónur n Bullandi eltingarleikur, segir Jóhannes Gunnarsson hjá Neytendasamtökunum Tvöföld hækkun á fjórum árum Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Janúar 2009 Janúar 2010 Júlí 2009 Júlí 2010 Hann er dýr dropinn Margir myndu gleðjast ef hægt væri að fylla á bílinn með mjólk en hún er helmingi ódýrari en bensínið. Lítri af bensíni kostar í dag 242 krónur en mjólkurlí- terinn er á 116 krónur. MYND: EYÞóR ÁRNASON 3,1% 0,7% 6,6% 3,1% 6,7% 8,0% 27,6% 35,2% 34,2%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.