Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Qupperneq 9
Fréttir 9Vikublað 10.–11. september
Fékk samviskubit
yFir því að líða illa
n Er í meðferð hjá FMB teymi geðdeildar Landspítalans n „Ekki til að skammast sín fyrir“
É
g hafði glímt við fæðingar
þunglyndi í þó nokkurn tíma
og ákvað loksins að leita mér
hjálpar þegar eldri strákurinn
minn varð sjö mánaða,“ segir
Thelma Einarsdóttir sem hefur nýtt
sér meðferðarúrræði FMB teym
isins á vegum geðdeildar Land
spítalans. Í helgarblaði DV var
fjallað um meðferðarúrræðið sem
teymið býður upp á, en það er ætl
að foreldrum sem eiga von á barni
eða eru með barn á fyrsta ári og
glíma við alvarlegan eða margþætt
an geðrænan vanda, fíknivanda
eða hafa áhyggjur af tengslamynd
un við barn sitt.
Besta vinkonan sannfærði hana
„Ég keyrði niður á bráðamóttöku
geðdeildar eftir að ég var farin að
forðast aðstæður þar sem margt
fólk var saman komið, fékk kvíða
og vildi helst alltaf halda mig inni
og ekki tala við neinn. Það er rosa
lega ólíkt mér því venjulega er ég
mjög félagslynd og elska að vera í
kringum fólk.“ Það var besta vin
kona Thelmu sem ráðlagði henni
að leita sér aðstoðar á geðdeild og
hún er henni mjög þakklát fyrir að
hafa sannfært hana um að það væri
rétta leiðin. En fram að því hafði
hún í raun verið í algjörri afneitun.
Á bráðamóttöku geðdeildar fékk
Thelma viðtal við geðlækni sem
setti hana á viðeigandi lyf við kvíð
anum og þunglyndinu. „Eftir það
fór mér að líða töluvert betur,“ segir
Thelma. Eldri sonur Thelmu er
fæddur árið 2012, en hann var ekki
nema rúmlega árs gamall þegar
þegar hún varð ólétt að þeim yngri.
Vissi að lyfin dugðu ekki
„Á seinni meðgöngunni skutu
kvíðinn og depurðin aftur upp koll
inum þótt ég væri á lyfjunum. Ég sá
strax hættumerkin og fór beint aft
ur niður á geðdeild og eftir viðtal
þar var send beiðni til FMB teym
isins. Eftir nokkra daga hringdi svo
yndisleg kona í mig og ég fékk við
talstíma nokkrum dögum síðar.“
Um leið og Thelma frétti af með
ferðarúrræðinu sem teymið býður
upp á var hún strax ákveðin í að
hún vildi komast þar að. Hún vissi
að lyfin dugðu henni ekki og hún
varð að geta talað um líðan sína.
Hún var komin rúmlega 20 vikur
á leið þegar meðferðin hófst, en
samkvæmt upplýsingum frá teym
inu er það mjög góður tími til að
hefja meðferð. „Eftir að ég fór í við
talstímana hjá FMB teyminu gekk
meðgangan betur hvað andlegu
hliðina varðar. Þar gat ég talað um
allt mögulegt tengt kvíða, sjálfs
myndinni, öryggi upp á móður
hlutverkið að gera og margt fleira
sem mér lá á hjarta.“ Líkamlega
var seinni meðgangan þó Thelmu
mun erfiðari en sú fyrri og var hún
því mjög fegin að henni leið betur
andlega. Yngri sonurinn fæddist í
júní á þessu ári og Thelma er enn
þá í meðferð hjá teyminu.
„Hvað er það versta sem
getur gerst?“
„Ég fer niður á Klepp í viðtalstíma
á um tveggja vikna fresti en teymið
er með mjög kósí húsnæði þar. Svo
get ég alltaf haft samband ef það er
eitthvað sem ég er leið eða kvíðin
yfir og fengið hjálp,“ segir Thelma
um meðferðina. Á meðgöngunni
fór Thelma yfirleitt ein eða tók eldri
strákinn með sem fékk að leika sér
meðan á viðtalinu stóð. Eftir að
strákurinn fæddist hefur fjölskyld
an hins vegar öll mætt saman í við
tölin. „Það er farið yfir tengslin við
barnið og það sem ég er óörugg
með gagnvart móðurhlutverkinu.
Svo er líka talað um almenna líð
an og viðtalsmeðferðinni er haldið
áfram. Ég er ennþá á lyfjum en sé
fram á að geta dregið úr notkun
þeirra á næstu mánuðum.“ Thelma
segir meðferðina hafa gengið von
um framar og að margt hafi breyst
til hins betra. „Þegar ég byrjaði var
ég kvíðin, efaðist um mig og var alls
ekki með nógu gott sjálfstraust. Nú
þori ég að gera hluti sem ég hefði
aldrei gert áður en ég byrjaði og svo
er ég mikið minna kvíðin en ég var.
Ég lifi svolítið eftir orðunum: hvað
er það versta sem getur gerst? Mað
ur á það nefnilega oft til að mikla
fyrir sér hlutina, svo þegar á hólm
inn er komið þá er það oftast miklu
minna mál en maður hefði haldið.
Þetta er að sjálfsögðu langhlaup en
ég er allavega komin vel á veg.“
Tengdist ekki yngri syninum
í fyrstu
Thelma segir það einnig hafa auð
veldað henni mikið í fæðingu yngri
sonarins að hafa teymið á bak við
sig. Fæðing eldri sonarins sat í
henni, enda var hún mjög erfið og
endaði með bráðakeisaraskurði.
„Fyrri fæðingin gekk ekki eins og ég
hefði viljað og væntingarnar sem
ég gerði mér urðu að engu. Mér
fannst ég ekki ná þessari tengingu
við barnið eftir bráðakeisarann
og átti erfitt með að sætta mig við
ástandið. Það að hafa teymið á bak
við sig var svo mikið öryggi að í
seinni fæðingunni leið mér töluvert
betur.“ Thelma fékk að ræða við
fæðingarlækni fyrir fæðinguna þar
sem hún viðraði áhyggjur sínar af
því að þurfa að fara aftur í keisara
skurð. Það hjálpaði henni mikið,
sem og þéttur og góður stuðningur
alla meðgönguna. „Ég náði svo að
fæða barnið eðlilega og fann strax
þessa tengingu. Það var svo dýr
mætt og mikið öryggi að fá þenn
an stuðning og að vita að maður
hefði þetta fólk á bak við sig,“ segir
Thelma þakklát.
Hafði áhyggjur
af syninum
Aðspurð hvort
hún hafi haft
áhyggjur af því
að vanlíðan
hennar hefði
neikvæð áhrif á
son hennar, játar
Thelma því. „Já
algjörlega, og
hef það ennþá
pínu áhyggjur í
dag, en ég veit
að það er ekki
rétt að hugsa þannig enda er hann
að dafna vel. Þetta virðist ekki vera
að hafa nein teljandi áhrif á hann,
hann er lífsglaður og hress strákur.
Ég fékk alltaf rosalegt samviskubit
yfir að líða svona illa og það hafði að
sjálfsögðu áhrif á hann, börn finna
allt mögulegt á sér og sérstaklega ef
mömmu eða pabba líður illa. Í dag
er ég bara að læra að breyta hugs
uninni minni og segja sjálfri mér
að ég sé eitt það mikil vægasta í lífi
hans og það er að virka. Hann er
alveg mömmustrákur líka,“ segir
Thelma glöð í bragði.
Leið eins og börnin væru kvöð
Í dag líður henni mjög vel andlega
og er fegin að hafa gripið inn í að
stæðurnar áður en þær urðu verri.
Hún segir þó alls ekki auðvelt að
vera með tvo unga drengi, en þeir
veita henni engu að síður mikla
ánægju. „Ég hugsa allt öðruvísi
eftir að ég byrjaði meðferðina.
Rétt áður en ég leitaði mér hjálp
ar fyrst hugsaði ég dálítið eins og
það væri kvöð í lífi mínu að eiga
börn og mig langaði bara að eiga
minn tíma aftur. Þetta var partur af
ranghugmyndunum sem ég er al
gjörlega búin að yfirstíga og núna
snýst lífið bara um þessa æðis
legu stráka mína. Ég gæti ekki ver
ið stoltari mamma og hlakka til að
horfa á þá vaxa og dafna og vera
góð fyrirmynd fyrir þá.“ Thelma
mælir hiklaust með því að mæður
sem upplifa neikvæðar tilfinningar
á meðgöngu eða eftir fæðingu leiti
sér aðstoðar – hjá heimilislækni,
á geðdeild, eða ræði við aðra fag
aðila. „Fæðingarþunglyndi er ekki
til að skammast sín fyrir og það er
svo mikils virði að leita sér hjálpar
sem fyrst, enda hefur það algerlega
bjargað mér og minni fjölskyldu,“
segir Thelma að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Mér fannst ég
ekki ná þessari
tengingu við barnið eftir
bráðakeisarann og átti
erfitt með að sætta mig
við ástandið.
„Það er
farið
yfir tengslin
við barnið
og það sem
ég er óörugg
með gagnvart
móðurhlut-
verkinu
5. september 2014
Í meðferð hjá
FMB teymi
Thelma leitaði
sér fyrst aðstoðar
þegar eldri sonur
hennar var sjö
mánaða.