Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Qupperneq 18
Vikublað 10.–11. september18 Skrýtið
Gabbaður þrisvar
af stúlkum á netinu
n Þrjár konur á internetinu hafa féflett Ben Ivey n „Ég var blindaður af ást“
B
esta ráðið sem ég hef er að
treysta aldrei einhverjum
á internetinu fyrir banka
upplýsingunum þínum,“
segir heimsins óheppnasti
pipar sveinn, 32 ára Ástrali, Ben Ivey
að nafni. Hann segir farir sínar ekki
sléttar af samskiptum sínum við
draumadísir internetsins. Ivey hef
ur í þrígang orðið ástfanginn af kon
um sem hann hefur kynnst á netinu.
Í öll skiptin hafa óprúttnir aðilar
svikið af manninum fé. Hann hef
ur samtals látið þeim í té um fjórar
milljónir króna – peninga sem hann
fær aldrei aftur.
Leikkona í London
Það var í janúar árið 2011 sem Ivey
skráði sig inn á stefnumótasíður eft
ir að samband hans við kærustuna
fjaraði út. Á þeim tíma var hann við
nám í University of Western Sydney.
Hann varð einmana og tilraunir
hans til þess að næla sér í nýja
kærustu fóru í vaskinn. Ivey, sem
starfar sem sjálfboðaliði fyrir kristi
lega útvarpsstöð í Sydney, var fyrst
blekktur strax í janúar 2011. Hann
hafði kynnst stúlku sem kallaði sig
Michele Raymond á stefnumóta
síðunni benaughty.com. Sú kvaðst
vera leikkona í London.
Svo óheppilega vildi til, einn
daginn, að handtösku stúlkunnar
var stolið. Hún var peningalaus en
hafði að auki verið fangelsið fyrir
notkun fíkniefna. Til að bæta gráu
ofan á svart var fluginu sem hún
ætlaði að taka til Sydney seink
að. Sautján dögum síðar rann það
upp fyrir Ivey, að hann fengi fjög
ur hundruð þúsund krónurnar sem
hann lánaði henni aldrei aftur. Hún
myndi aldrei koma til Sydney.
Eigandi skartgripaverslunar
Okkar maður var ekki af baki
dottinn. Hann hitti indæla stúlku,
Brendu Campbell, á stefnumóta
síðu á Facebook. Þau hófu að tala
reglulega saman og hún sagði hon
um að hún byggi skammt frá hon
um, í norðurhluta Sydney – þar ætti
hún skartgripaverslun. Ivey, sem á
þessum tíma stundaði samvisku
samlega nám við Knox Grammar
School í Sydney, gat ekki annað en
hjálpað þessari verðandi unnustu
sinni þegar hún skyndilega þurfti
að fljúga með hundinn sinn á milli
landa. Um neyðartilfelli var að ræða
svo Ivey lánaði henni andvirði rúm
lega 2,1 milljónar króna.
Hann hafði samband við lög
reglu þegar upp fyrir honum rann
að stúlkan hafði blekkt hann. Út
úr því kom lítið annað en að hann
mátti skipta út greiðslukortunum
sínum, eyða aðgangi sínum að
stefnumótasíðum og stofna nýja
bankareikninga.
Svo kom Anna
Ivey var reynslunni ríkari og stað
ráðinn í því að láta ekki blekkjast á
nýjan leik. Hann var það að minnsta
kosti daginn sem hann setti inn aug
lýsingu á stefnumótasíðuna sydney.
craiglist.com.au, í september 2012.
Auglýsingunni svaraði Anna, kona
sem kvaðst búa í London. Hún var
mjög áfram um að þau myndu hitt
ast og vildi koma til Sydney og gift
ast honum. Það eina sem stóð í veg
inum var sú staðreynd að hún átti
eftir að greiða svolítinn lögfræði
kostnað áður en hún gæti gerst eig
andi að íbúð sem hún hafði erft.
Hinn góðhjartaði og ástfangni Ivey
lét ekki segja sér þetta tvisvar, þrátt
fyrir það sem á undan hafði gengið.
Hann sendi henni hálfa aðra milljón
króna. „Eins og í hin skiptin gætti ég
þess vandlega að foreldrar mínir og
vinir vissu ekki af millifærslunum.
Ég var hræddur um að verða hafn
að,“ segir hann við Daily Mail.
Í október 2012, mánuði síðar,
sagði hann foreldrum sínum í enn
eitt skiptið frá því hvernig í pott
inn var búið. Þeir hafa síðan farið
með öll hans fjárráð, sem betur fer
kannski.
Blindaður af ást
Ivey hefur að eigin sögn lært mikið
af þessari reynslu allri. Hann, til
dæmis, samþykkir ekki vinabeiðnir
á Facebook frá fólki sem hann kann
engin deili á – og ráðleggur fólki að
láta enga ókunnuga hafa bankaupp
lýsingar. Hann segir að þetta hafi allt
saman tekið sinn toll. „Ég var alveg
niðurbrotinn í hvert skipti. Ég hélt
alltaf að það sem þær sögðu mér
væri sannleikurinn. Ég var blind
aður af ást.“ Hann segist hafa sótt í
stefnumótamiðla vegna einmana
leika. „Ég vildi bara eignast konu og
var tilbúinn að gera hvað sem er til
að gera þær ánægðar og hrifnar af
mér. Hann segist vera fyrsti maður
inn til að viðurkenna að það sé sturl
að að hafa verið blekktur í þrígang á
sama máta. Það sé ótrúleg óheppni.
Fann nýja ást á Filippseyjum
En vegir ástarinnar eru órannsakan
legir. Ivey er orðinn ástfanginn á
nýjan leik. Hann hyggst fljúga til
Filippseyja og biðja þær kærustu
sinnar, sem hann, eins og í hin skipt
in hitti á internetinu. Þau hafa aldrei
hist en Ivey er sannfærður um að
hún sé sú eina rétta, enda hafi þau
spjallað saman frá því í maí í fyrra
– meira að segja á Skype – eitthvað
sem hann gerði ekki við hinar kon
urnar þrjár. „Ég sagði henni, eins og
hinum tveimur reyndar, frá svikun
um og hún fullvissaði mig um að
hún hefði ekki óhreint mjöl í poka
horninu. Hún myndi aldrei biðja
mig um fé. Ég hef líka talað við fjöl
skyldu hennar á Skype,“ segir hann.
„Ég hef aldrei hitt Thei en ég vonast
til að komast til hennar þegar ég hef
safnað mér fyrir fluginu. Ég ætla að
biðja hennar.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Ég var alveg
niðurbrotinn
í hvert skipti. Ég
hélt alltaf að það
sem þær sögðu mér
væri sannleikurinn.
Einmana
Ivey hætti með
kærustu sinni
2010. Leit hans
að nýrri ást hefur
verið strembin.
Hress Ivey er sjálfboðaliði hjá kristilegri
útvarpsstöð.
Hugguleg stúlka Ivey er ekki af baki dottinn og ætlar að hitta þessa snót á Filippseyjum.
Þar ætlar hann að biðja hennar. Myndin er úr einkasafni Iveys.
Vitarnir gefnir
Á undanförnum fjórtán árum
hafa bandarísk yfirvöld losað sig
við um hundrað vita víðs vegar
um landið.
Þessar háreistu og turnlaga
byggingar gegndu mikilvægu
hlutverki á árum áður og gættu
öryggis sjófarenda. Eftir því sem
tækninni fleytti varð hlutverk
þeirra sífellt minna og standa
þeir nú margir hverjir tómir.
APfréttastofan greindi frá því á
dögunum að bandarísk yfirvöld
væru hvergi nærri hætt að selja
eða hreinlega gefa þá vita sem
ekki eru lengur í notkun.
Bandaríska strandgæslan á
254 vita samkvæmt frétt AP og
mun strandgæslan losa sig við
meirihluta þeirra á næstu árum.
Þjófurinn
bauðst til að
slá blettinn
Bryan Remley, 25 ára innbrots
þjófur í St. Petersburg í Flórída,
reyndi allt hvað hann gat til að
sleppa við hinn langa arm lag
anna á dögunum. Remley hafði
brotist inn í hús í borginni en
ekki vildi betur til en svo að íbúar
hússins, hjónin Joseph Cihak og
Colleen Traversa, voru heima og
urðu varir við Remley í húsinu.
Cihak, sem var vopnaður skamm
byssu, náði fljótlega yfirhöndinni
gegn Remley og sagðist að sjálf
sögðu ætla að hringja á lög
regluna. Eiginkona hans, Colleen,
gerði það en á meðan beðið var
eftir lögreglunni reyndi Remley
að fá þau til að sleppa sér. Bauðst
hann meðal annars til að slá
garðinn. Hjónin höfnuðu þessu
tilboði og biðu þar til lögregla
mætti á staðinn. Má Remley eiga
von á dómi vegna innbrotsins.
Kjötbolludeilur
enduðu illa
Ágreiningur vegna kjötbollu varð
til þess að maður var stunginn
í Baltimore í Bandaríkjunum á
dögunum.
Tveir starfsmenn Fallston
Business, sem veitir meðal
annars tryggingaráðgjöf, höfðu
farið að rífast þar sem annar
borðaði kjötbollu af diski hins –
kjötbollu sem hann hafði komið
með í vinnuna.
Eins og gefur að skilja var
maðurinn, 31 árs karlmaður, ekki
ánægður með þessa framkomu
og endaði það með því að hann
dró upp hníf og stakk kjötbollu
þjófinn í handlegginn. Sem bet
ur fer slasaðist hann ekki illa en
árásarmaðurinn á ákæru yfir
höfði sér.