Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Qupperneq 36
Vikublað 10.–11. september36 Fólk
Kom víða við
Leikarinn Gerard Butler hef-
ur dvalið á Íslandi undanfarna
daga og hefur sést víða um bæ-
inn. Hann kom til dæmis við í
Lifandi markaði þar sem hann
fékk sér hveitigrasskot og skellti
sér út á lífið um helgina. Sást
meðal annars til leikarans á
Kaffibarnum og Vegamótum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
leikarinn kemur til landsins en
hann hefur lýst opinberlega yfir
dálæti sínu á landi og þjóð. Fjöl-
margir hafa fengið myndir af sér
með leikaranum sem kippir sér
lítið upp við athyglina og er að
sögn þeirra sem hafa hitt hann,
sá vinalegasti.
Tjúttuðu með
Stuðmönnum
Fjölmennt Stuðmannaball var
haldið á laugardag í Hörpu eft-
ir tvenna tónleika hljómsveitar-
innar fyrr um kvöldið. Fjölmargir
mættu á ballið enda langt síðan
Stuðmenn hafa haldið ball. Með-
al dansþyrstra gesta voru meðal
annars Birkir Kristinsson, eig-
inmaður Röggu, sem naut tón-
listarinnar í botn og sýndi góða
takta á dansgólfinu. Þar mátti
einnig sjá Birnu Rún Gísladóttur,
eiginkonu Jakobs Frímanns, og
Ester og Kalla í Pelsinum sem öll
skemmtu sér vel.
Á fullu í
kraftlyftingum
Marta María Jónasdóttir kennd
við Smartland á mbl.is er öfl-
ug kraftlyftingakona. Í samtali
við vefsíðuna nútíminn.is segist
hún stunda kraftlyftingar af fullu
kappi undir leiðsögn Ingimund-
ar Björgvinssonar. Sagt var frá
því nýlega að Ingimundur væri
kærasti Mörtu og er hún því
undir styrkri leiðsögn kærastans
við lyftingarnar. „Ég byrjaði fyr-
ir akkúrat ári síðan. Stefnan
var prófa þetta í mánuð,“ seg-
ir hún í samtali við Nútímann.
Marta María hefur fundið sig í
lyftingunum og tekur 90 kíló á
stöngina.
M
argrét Erla Maack er kom-
in með dagvinnu, eins og
hún orðar það sjálf, en
hún hóf nýlega störf sem
afgreiðsludama í Herrafataverzl-
un Kormáks og Skjaldar. „Mér
fannst eitthvað svo fullorðins að
fara í dagvinnu,“ segir hún kímin
í samtali við DV. „Þetta er ákveðið
akkeri. Ég veit hvernig ég mun
borga leiguna í næsta mánuði.
Það er mikill lúxus.“ Aðspurð hvort
þetta sé ekki ákveðinn viðsnúning-
ur frá því sem hún er vön að gera
segir Margrét Erla svo ekki vera.
„Ég er náttúrlega alin upp í barna-
fataverslun. Þetta er í blóðinu,“
segir hún og hlær.
Margrét er sem fyrr á fullu í
starfi hjá Sirkus Íslands en sem
kunnugt er keypti hópurinn sér
alvöru sirkustjald í vetur og ferð-
aðist um allt land með það í sum-
ar. Veturinn hefur fram að þessu
verið aðalstarfstími sirkussins, ný-
liðið sumar var undantekningin á
þeirri reglu, en Sirkus Íslands hef-
ur verið starfandi frá árinu 2007.
„Á veturna erum við með sýn-
ingar í kokteilboðum og á árshá-
tíðum og erum með sirkusskóla
og sirkusnámskeið, svo dæmi séu
tekin. Mitt starf felst í því að vera
í samskiptum við fjölmiðla og
„plögga“. Ég sinni þessu ennþá en
það er ekki eins mikil þörf á fjöl-
miðlaumfjöllun á veturna eins og
þegar maður er á sirkusferðalagi,“
segir Margrét Erla.
Margrét Erla sást síðast á sjón-
varpsskjáum landsmanna sem
spurningahöfundur í spurninga-
keppni framhaldsskólanna Gettu
betur. Þegar blaðamaður inn-
ir hana eftir því hvort hún muni
endurtaka leikinn næsta vetur
segir hún það ekki alveg komið á
hreint ennþá. Margrét hefur hins
vegar í nógu að snúast samhliða
afgreiðslustörfum. Hún kennir
áfram dans í Kramhúsinu, starfar
sem plötusnúður og heldur karókí-
veislur ásamt Ragnheiði Maísól
Sturludóttur en saman mynda þær
karókítvíeykið Hits&Tits. n
aslag@dv.is
„Veit hvernig ég mun borga leiguna“
Sjónvarpskonan Margrét Erla Maack er orðin afgreiðsludama hjá Kormáki og Skildi
Ánægð með dagvinnuna
Sjónvarpskonan Margrét Erla
Maack er orðin afgreiðslu-
dama. Mynd Sigtryggur Ari
D
egi rauða nefsins verð-
ur fagnað á föstudaginn
en markmiðið með deg-
inum er að gleðja lands-
menn, fræða þá um starf
UNICEF í þágu barna um víða ver-
öld og bjóða fólki að slást í hóp
heimsforeldra UNICEF. Dagur-
inn nær hámarki í metnaðarfull-
um skemmti- og söfnunarþætti á
RÚV um kvöldið. Í þættinum verð-
ur sýnt frá starfi UNICEF, meðal
annars á Madagaskar, en þangað
hélt leikarinn og heimsforeldrið
Ólafur Darri Ólafsson nýverið til
að kynna sér starfið á vettvangi og
sjá með eigin augum hvernig gjafir
heimsforeldra skipta sköpum.
„Það eru alltaf forréttindi að fá
að koma í aðra menningu og sjá
hvað fólk í öðrum löndum býr við.
Madagaskar er afskaplega fátækt
land en stórkostlegt á sinn hátt
og það var mjög forvitnilegt að fá
að fara þangað og fá að kynna sér
starf UNICEF,“ segir Ólafur Darri
í samtali við DV en blaðamaður
slær á þráðinn til hans til Banda-
ríkjanna þar sem hann er við tök-
ur á kvikmyndinni The Last Witch
Hunter.
Vannæring stærsta áskorunin
Ólafur Darri heimsótti
Madagaskar í mars síðastliðnum.
Fór hann meðal annars til höfuð-
borgarinnar, Antananarívó, sem
í daglegu tali er kölluð Tana, og
hafnarborgarinnar Tamatave. „Á
Madagaskar er UNICEF að gera
það sem samtökin gera alls stað-
ar, sem er að berjast fyrir réttind-
um og velferð barna. Það gera þau
í samstarfi við viðkomandi yfir-
völd og önnur góðgerðasamtök.
Ég heimsótti heilsugæslustöðv-
ar þar sem UNICEF hefur þjálf-
að starfsfólk, útvegað lyf og veitt
fræðslu á borð við fæðingarráð-
gjöf og mæðravernd.“ Ólafur Darri
segir stærstu áskorunina sem
Madagaskar stendur frammi fyr-
ir vera vannæringu. „Hún getur
haft mjög alvarlegar afleiðingar ef
hún er ekki tækluð nógu snemma.
Það er að segja ef barn er vannært
mjög lengi, sérstaklega á þessum
mótunarárum, þá hefur vannær-
ingin áhrif fyrir lífstíð. UNICEF er
að vinna rosalegt átak í þeim efn-
um á Madagaskar.“
Stúlkur dragast út í vændi
Ólafur Darri heimsótti einnig fá-
tækrahverfin á Madagaskar og
fylgdist með sjálfboðaliðum
UNICEF kenna fólki hvernig það
eigi að stofna fyrirtæki. „Það er ver-
ið að gefa fólki vopn í baráttunni
við fátækt og hjálpa fólki að kom-
ast úr þeim vítahring sem fylgir því
að vera fátækur. UNICEF er einnig
að vinna í því að koma í veg fyr-
ir barnavændi á Madagaskar, til
dæmis með því að fræða stelpurn-
ar, hjálpa þeim í starfsnám eða
skóla og gera allt sem hægt er til
þess að koma þeim af götunni. Það
velur sér enginn að stunda vændi
sér til gamans. Ástæðan fyrir því
að ungar stúlkur þarna dragast út í
vændi er sú að þær eru að reyna að
afla fjölskyldunni viðurværis.“
Enginn barlómur í fátæktinni
Aðspurður hvað hafi komið hon-
um mest á óvart segir Ólafur
Darri það í fyrsta lagi vera að sjá
hversu fátækt fólk getur verið í
raun og veru. „Ég hef notið þeirra
forréttinda að hafa aldrei þurft
að hafa áhyggjur af því hvaðan
næsta máltíð kemur. Það var dá-
lítill kinnhestur sem fylgdi því.
Svo kom það mér líka á óvart að
sjá hvað það er mikil von. Það var
enginn barlómur í fátæktinni. Mér
þótti til dæmis mjög vænt um í fá-
tækrahverfinu að sjá hringekju fyr-
ir börnin. Það voru ungir menn
sem hlupu og sneru hringekjunni
og það var svo gaman að sjá hvað
börnin skemmtu sér vel. Þó svo
að fólk sé fátækt búa börnin alltaf
yfir gleði. Hvert einasta framlag
frá okkur getur hins vegar bætt líf
þessara barna svo um munar,“ seg-
ir Ólafur Darri að lokum. n
Enginn barlómur
í fátæktinni
n Ólafur Darri kynnti sér starfsemi UNICEF á Madagaskar
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Það er verið að
gefa fólki vopn í
baráttunni við fátækt
og hjálpa fólki að kom-
ast úr þeim vítahring
sem fylgir því að vera
fátækur.
„Þó svo að
fólk sé fá-
tækt búa börnin
alltaf yfir gleði
Kát börn með Ólafi
Stærsta áskorunin sem
Madagaskar stendur
frammi fyrir er vannæring.