Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Blaðsíða 11
9
auka iðnaðar 1972 (tafla 1.2.). VöruEt'einum iðnaðar er skipt
í átta flokka og hverjum þeirra, ef við á, skipt í heimamarkaðs
iðnað (HM) og útflutningsiðnað (ÚM). Flokkarnir eru:
1. Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður
2. Vefjar-, fata- og skinnaiönaður
3. Trjávöruiðnaður
4. Pappírsiðnaður
5. Efnaiðnaður
6 . Steinefnaiðnaður
7 . Álframleiðsla
8. Skipasmíöi (tafla 1.2.)
1. Matvæla- og drvkkj arvöruiðnaður.
Hér er um að ræða framleiðslu á mjólkurafurðum, niður
suðuvörum, brauði, kökum, kexi, sælgæti, kaffi, smjörlíki,
öli, gosdrykkjum o.fl.. Á árinu 1972 störfuðu 3.878 manns við
þessa framleiöslu eöa 17,7% af heildarmannafla í vörugreinum
iönaðar. Virðisaukinn í þessum iðnaöargreinum nam 1.099,6
m.kr. á árinu 1972 eða 17,5% af virðisaukanum í heild í vöru-
greinum iðnaðar. Þær iðngreinar, sem mynda bennan flokk, að
undanskildum niðursuðuiðnaði, selja framleiðsluvörur sínar
eingöngu á heimamarkaði. Niðursuðuiðnaöur er hér flokkaður
sem útflutningsiðnaður, en útflutningur niðursuðuvara nam
229,8 m.kr. á árinu 1972, sem var 19,7% af heildarverðmæti
útflutnings iðnaðarvara annarra en áls. Afkoma matvæla- og
drykkjarvöruiðnaðar var nokkuð slök á árinu 1972. Vergur
hagnaður fyrir skatta sem hlutfall af vergum tekjum nam 3,5%
samanborið við 4,7% í vörugreinum iðnaðar alls. Afkoma HM var
miklu betri en afkoma ÚM á árinu 1972. Vergur hagnaður sem
hlutfal-1 af tekjum var 4,2% í HM samanborið við -8,0% í ÚM.
2. Vefjar-, fata- og skinnaiðnaður.
Hér er um að ræða framleiðslu garns, prjónavara, fatnaðar
veiðarfæra, sútaðra skinna, leðurvara, skófatnaðar og fl.. Á
árinu 1972 störfuðu 2.332 menn við þennan flokk eða 22,0% af
heildarvinnuafli í vörugreinum iðnaöar. Virðisaukinn nam
1.147,5 m.kr. á árinu 1972 eða 18,3% af heildarvirðisauka í