Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Blaðsíða 22
20
í öðru lagi veldur bað onákvéEmni, að MIF nær ekki til
allra framleiðsluvara hverrar iðngreinar og er það nokkuð
mismunandi eftir iðngreinum, hve stór hluti framleiðslunnar
er talinn með. Af þessu leiðir, aö þyngd hverrar iðngreinar
í heildinni getur breytzt, og þá um leiö niðurstaðan um heildar-
magnbreytingu iðnaðarframleiðslunnar. Auk þess getur magn-
breytingin, sem vísitalan sýnir, verið ónákvæm í einstökum
iðngreinum, í fyrsta lagi vegna þess, sem nefnt var að ofan,
þ.e. aö upplýsingarnar ná ekki til allra framleiðsluvara
hverrar greinar, og í öðru lagi vegna hins, að magnvísitalan
tekur ekki með í reikninginn þær gæðabreytingar á framleiðslunni,
sem orðið hafa frá grunnárinu 1961, en gera má ráð fyrir, að
þær hafi oröiö talsverðar frá þeim tíma, og þá mismunandi eftir
iðngreinum.
í því skyni að bæta nokkuð úr þeim ágöllum, sem hér hafa
verið nefndir, öðrum en gæðabreytingum, sem engin skil eru hér
gerð, eru sýndar niðurstöður tvenns konar athugana.
í fyrsta lagi hefur verið reynt að meta heildarmagn-
breytingar framleiðslu í þeim iðngreinum, sem MIF (siá töflu
4.1.) nær ekki til, og er niðurstaða þess mats sýnd í töflu 4.2.
fyrir árin 1964-1972. Aðferðin við þetta mat er sú, að heildar-
framleiðsluverðmætið í þessum iðngreinum hvert einstakt ár er
fært til fasts verölags með því að nota vegið meðaltal þeirra
þátta vísitölu framfærslukostnaðar og vísitölu byggingar-
kostnaðar, sem ætla má að sýni nokkuö góða mynd af verðlags-
þróuninni í þessum greinum.
í öðru lagi er MIF (sjá töflu 4.1.) endurmetin á þann
veg, að þyngd hverrar iðngreinar í heildinni er látin jafn-
gilda þyngd hennar í heildarvinnsluviröi iðnaðarins 1970. Þessi
magnvísitala er sýnd í töflu 4.2. fyrir árin 1964 til 1972.
Hin endurmetna MIF og áætlaða magnvísitalan fyrir bær
greinar, sem hún nær ekki til, eru loks vegnar saman með vægi
viðkomandi greina í heildarvinnsluvirði iönaðarins 1970. Er
þá fengin niðurstaða fyrir magnbreytingu iðnaöarframleiöslunnar
í heild, og sýnd í töflu 4.2. fyrir árin 1964' til 1972.