Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Blaðsíða 9
7
I. Inngangur .
Hefti þetta hefur a6 geyma margvíslegar upplýsingar um
þrtáun iönaðar á undanförnum árum. Athuganirnar ná til þeirrar
atvinnustarfsemi, sem fellur undir flokka 2 og 3 í atvinnu-
flokkun Hagstofu íslands, að undanskildum fiskiðnaði, þ.e.
iðngreinum nr . 203,204,312,313,314 . Nokkuð skortir á, að
allar aðrar iðngreinar séu teknar með í athuganirnar og er
tekið fram hverju sinni^hvaða greinar eru undanskildar. Talna-
efnið nær fram til ársins 1972, enda er bess enn ekki kostur
að birta nákvæmar tölur um framvindu í einstökum greinum iðnaðar
á nýliðnu ári. Eins og sagt var í formála mun þó hér á eftir
verða getið helztu niðurstaðna áætlana um afkomu iðnaðarins á
árinu 1973, auk þess sem fjallað verður nokkuð um afkomu ein-
stakra greina hans á árinu 1972.
II. Iðnaður 1972.
Á árinu 1972 er talið, að almenn iðnaðarframleiðsla
(undanskilið: Fiskiðnaður, slátrun og kjötiðnaður og álvinnsla)
hafi aukizt um 7,9% (tafla 4.2.). f þeim iðngreinum, sem magn-
vísitala Hagstofu íslands nær til og eingöngu eru vörugreinar,
var aukning framleiðslunnar 8,1%, en x öðrum iðngreinum, sem að
meginhluta eru viðgerðagreinar, var aukninein 7,7%.
Vinnuafl í almennum iðnaði jókst um 3,5% milli áranna
1971 og 1972 (tafla 7.2.). Aukning vinnuaflsins var nokkuð
meiri í viðgerðagreinunum en í vörugreinunum. f vörugreinunum
jókst vinnuaflið um 2,4% á móti 4,4% í viðeerðagreinunum.
Ef þessar tölur um hlutfallsleea aukningu vinnuaflsins
milli áranna 1971 og 1972 eru settar í samband við hlutfalls-
tölur þær hér að ofan, sem sýna aukningu framleiðslumagnsins
milli áranna 1971 og 1972, kemur fram 4,2% framleiðniaukning
á vinnueiningu (tafla 7.3.) í almennum iðnaði. Framleiðni-
aukningin var mun meiri í vörugreinunum en í viðgerðagreinunum.
f vörugreinunum var aukning framleiöninnar 5,6% samanborið við
3,2% í viðgerðagreinunum.