Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Blaðsíða 12
10
vörugreinum iðnaðar. Mikill hluti útflutningsiðnaðar fellur
undir þennan flokk. Á árinu 1972 nam útflutningur ullar- og
prjónavara, fatnaðar, loðsútaðra skinna og loðskinna um 640,9
m.kr. eða 55,0% af heildarútflutningi iðnaðarvara annarra en
áls. Afkoma vefjar-, fata- og skinnaiðnaðar var áþekk meðal-
afkomu í vörugreinum iðnaðar áriö 1972. Vergur hagnaður fyrir
skatta sem hlutfall af vergum tekjum var 4,3% á móti 4,7% í
vörugreinum iðnaðar alls. Afkoma HM var nokkru betri en afkoma
ÚM á árinu 1973. Vergur hagnaður fyrir skatta sem hlutfall af
vergum tekjum var 5,4% x HM samanborið við 2,8% í ÚM.
3. Trjávöruiðnaður.
Trjávöruiðnaður innifelur aðallega framleiðslu á hús-
gögnum og innréttingum. Á árinu 1972 störfuðu 1.624 menn við
þennan iðnað eða um 15,3% af heildarmannafla í vörugreinum
iðnaðar. Virðisaukinn nam 867,5 m.kr. á árinu 1972 eða um
13,8% af virðisauka f vörugreinum iðnaðar alls. Trjávöruiðnaður
er hér allur flokkaður sem heimamarkaðsiðnaður, en útflutningur
er enn mjög lítill og ham aðeins um 3 m.kr. á árinu 1972. Af-
koma trjávöruiðnaðar var aðeins betri á árinu 1972 en meðal-
afkoma í vörugreinum iðnaöar. Vergur hagnaður fyrir skatt sem
hlutfall af vergum tekjum nam 5,7% samanborið við 4,7% í vöru-
greinum iðnaðar samtals.
4. Pappírsiðnaður.
Með pappírsiðnaði er átt við framleiðslu á DapDa- og
pappírsvörum, þrentun, prentmyndagerð, bókband og útgáfu bóka-
og blaða. Starfsmannafjöldi var 1.607 á árinu 1972 eða um
15,1% af öllu vinnuafli í vörugreinum iðnaðar. Virðisaukinn
1972 nam 970,7 m.kr. eða 15,5% af heildarvirðisauka í vöru-
greinum iðnaðar. Pappírsiðnaður er hér allur flokkaður sem
heimamarkaðsiðnaður, en útflutningur naopaaskja nam 16,6 m.kr.
á árinu 1972. Afkoma pappírsiðnaðar á árinu 1972 var mun betri
en meðalafkoma í vörugreinum iðnaðar. Vergur hagnaður fyrir
skatta sem hlutfall af vergum tekjum var 8,0% samanborið við
4,7% í vörugreinum iðnaðar alls.