Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Blaðsíða 27
25
metið á föstu verðlagi, í þessum iðnereinum á hverju ári, skv.
skýrslum um þjóðarauð. Yfir allt sex ára tímabilið jókst maen
fastra fjármuna um 31% á sama tíma og vinnuaflsnotkun jókst
um 16,3% og framleiðslumagnið um 40,2%. Þessar tölur virðast
benda til þess, aö þá aukningu framleiðslu á vinnueiningu, sem
hér að framan var kölluð "breyting framleiðni vinnu", megi að
nokkru leyti skýra með aukinni fjármagnsnotkun í iðnaðinum á
þessum sex árum. Hér er þess þó enn að gæta, að fyrstu tvö ár
þessa sex ára tímabils voru samdráttarár, og virðist bví lík-
legt, að niðurstöðurnar væru hagstæðari ef lengra tímabil væri
skoðað.
8 .___Vinnsluvirði - hlutdeild í vergri þjóðarframleiðslu.
1 töflu 8.1. er sýnt vergt vinnsluvirði (tekjuvirði) í
iðnaði sundurliöað eftir iðngreinum árin 1968-1972, í töflu
8.2. er síðan sýnd hlutdeild iðnaðarins í vergri þjóðarfram-
leiðslu (tekjuvirði).
Hér og x öðru talnaefni í heftinu eru notuð ýmis hugtök,
sem gætu þurft nánari skýringa við, og verða hin helztu þeirra
skilgreind hér á eftir í stuttu máli.
Meö vergum tekjum, markaðsvirði, er átt við verðmæti
framleiðslunnar á því verði, sem kaupendur greiða fyrir hana,
en þeir eru annað hvort endurseljendur eöa neytendur. Með verpum
tekjum, tekjuvirði, er hins vegar átt við verðmæti framleiðslunnar
á því verði, sem framleiðendur fá fyrir hana. Mismunur á
markaðsvirði og tekjuvirði getur annars vegar stafaö af óbeinum
sköttum (t.d. söluskatti) og hins vegar framleiðslustyrkjum
(t.d. niðurgreiðslum). Vergt vinnsluvirði, tekjuvirði, er
mismunur verðmætis framleiðslunnar (á því verði, sem framleiðendur
fá fyrir hana) og verðmætis aðfanga, b.e. verðmætis vöru og
þjónustu frá öðrum fyrirtækjum og innflutningi. Vergt vinnslu-
virði, tekjuvirði, er m.ö.o. sé virðisauki (value added), sem
starfsemin skapar. Virðisaukinn er jafnframt sú stærð, sem
sýnir framlag hverrar greinar til vergrar bjóðarframleiðslu
(tekjuviröi). Þessum virðisauka má skipta í laun og launatengd