Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Page 2
2 Fréttir 16. október 2013 Miðvikudagur
Garðbæingar
eru efnaðastir
n Mesta launahækkunin í sjávarplássum á landsbyggðinni
Í
búar í Garðabæ eru efnaðastir
Íslendinga að meðaltali þegar
litið er á meðallaun auk fjár-
magnstekna. Þetta sýna útreikn-
ingar DV en heildarlaun auk fjár-
magnstekna í bæjarfélaginu nema
rúmlega 615 þúsund krónum á
mánuði. Um er að ræða tölur frá ár-
inu 2011. Næst þar á eftir er að finna
Vestmannaeyinga en meðallaun
plús fjármagnstekjur þar nema tæp-
lega 600 þúsund krónum. Næst þar
á eftir eru íbúar Seltjarnarness og
Fjarðabyggðar.
Líka mesta lækkunin
Athyglisvert er að bera þessar tölur
saman við sambærilegar tölur frá
árinu 2007. Þá voru heildarlaun auk
fjármagnstekna líka mestar í Garða-
bæ eða nærri 896 þúsund krónur og
þar á eftir kom Seltjarnarnes með
meðallaun plús fjármagnstekjur
upp á rúmlega 892 þúsund krónur.
Mesta hlutfallslega lækkunin á milli
áranna 2007 og 2011 er því í þeim
sveitarfélögum þar sem launin og
fjármagnstekjur voru og eru hæstar.
Ástæðan fyrir þessari miklu
lækkun á milli áranna 2007 og 2011
í bæjarfélögunum tveimur er lík-
lega gengishrun íslensku krónunn-
ar, hrun á hlutabréfamörkuðum á
milli ára og auðvitað bankahrunið
sem reið yfir árið 2008. Í bæjarfé-
lögunum tveimur býr margt vel
stætt háskólagengið fólk sem starfar
hjá stórum og öflugum fyrirtækj-
um, bönkum, lyfjafyrirtækjum, lög-
mannsstofum, endurskoðenda-
skrifstofum og svo framvegis. Þetta
eru hópar sem bankahrunið hafði
mikil áhrif á til hins verra auk þess
sem fjármagnstekjur þeirra kunna
að hafa dregist verulega saman
vegna hruns á hlutabréfamörkuð-
um.
Útgerðarbæir hástökkvarar
Athygli vekur að mestu há-
stökkvararnir á milli áranna 2007 og
2011 eru Vestmannaeyjar og Fjarða-
byggð. Meðallaun í Vestmannaeyjum
hækkuðu um 35 prósent á milli ár-
anna 2007 og 2011: þau fór úr rúm-
lega 444 þúsund krónum og upp í
tæplega 598 þúsund árið 2011. Helsta
ástæðan fyrir þessu er væntanlega
aukið aflaverðmæti útflutningsfyrir-
tækja í kjölfar gengishruns íslensku
krónunnar en Vestmannaeyjar eru
ein helsta útgerðarstöð landsins
þar sem útgerðarrisarnir Ísfélag-
ið, Vinnslustöðin og Bergur-Huginn
gera öll út þaðan auk smærri útgerða.
Þetta á einnig við um flest önn-
ur bæjarfélög þar sem hækkunin
er mikil, til að mynda Fjarðabyggð,
Dalvíkurbyggð og Sveitarfélagið
Skagafjörð. Í Fjarðabyggð er að finna
útgerðir eins og Síldarvinnsluna og
Eskju, Samherji gerir út frá Dalvík
Launaþróun í byggðum
Þróun launa í nokkrum byggðarlögum á Íslandi á árunum 2007 og 2011:
Um er að ræða meðallaun plús fjármagnstekjur
2011 2007 2011 EUR 2007 EUR
Garðabær 615.830 kr. 895.871 kr. € 3.849 € 9.809
Vestmannaeyjar 597.863 kr. 444.177 kr. € 3.737 € 4.863
Seltjarnarnes 587.866 kr. 892.446 kr. € 3.674 € 9.772
Fjarðabyggð 567.561 kr. 426.012 kr. € 3.547 € 4.665
Álftanes 525.796 kr. 580.580 kr. € 3.286 € 6.357
Kópavogur 503.712 kr. 556.627 kr. € 3.148 € 6.095
Mosfellsbær 497.296 kr. 482.665 kr. € 3.108 € 5.285
Akranes 488.311 kr. 438.547 kr. € 3.052 € 4.802
Hafnarfjörður 472.881 kr. 515.115 kr. € 2.956 € 5.640
Dalvíkurbyggð 464.873 kr. 368.843 kr. € 2.905 € 4.039
Ísafjarðarbær 459.412 kr. 453.879 kr. € 2.871 € 4.970
Akureyri 459.006 kr. 433.893 kr. € 2.869 € 4.751
Grindavík 456.786 kr. 434.188 kr. € 2.855 € 4.754
Svfél. Hornafjörður 455.788 kr. 422.323 kr. € 2.849 € 4.624
Stykkishólmur 442.050 kr. 431.996 kr. € 2.763 € 4.730
Svfél. Skagafjörður 438.655 kr. 363.172 kr. € 2.742 € 3.976
Reykjavík 434.280 kr. 490.430 kr. € 2.714 € 5.370
Vopnafjarðarhreppur 430.735 kr. 392.874 kr. € 2.692 € 4.302
Sveitarfélagið Árborg 427.876 kr. 416.331 kr. € 2.674 € 4.559
Reykjanesbær 402.236 kr. 405.604 kr. € 2.514 € 4.441
Grand Total 456.987 kr. 486.714 kr. € 2.856 € 5.329
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skattakóngurinn Magnús Kristinsson í
Eyjum var skattakóngur síðasta árs á Íslandi
vegna sölu sinnar á Bergi-Hugin. Mestu
launahækkanirnar á Íslandi hafa verið í Eyjum
á milli áranna 2007 og 2011. Mynd SigtRyggUR ARi
Mesta lækkunin Garðbæingar eru efn-
aðastir íbúa landsins miðað við meðallaun í
bæjarfélögum en launin þar hafa einnig lækk-
að mest á milli áranna 2007 og 2011. Gunnar
Einarsson er bæjarstjóri Garðabæjar.
Fjárdráttur og
umferðarbrot
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt
og og umferðarlagabrot. Maðurinn
var ákærður fyrir að slá eign sinni á
gírkassa og vél auk annarra hluta úr
bifreið sem hann hafði umráð yfir
samkvæmt kaupleigusamningi við
Avant. Þá var hann ákærður fyrir að
aka sviptur ökuréttindum. Mað-
urinn játaði brot sín. Dómurinn er
skilorðsbundinn til tveggja ára.
Beðnir um
nektarmyndir
Skólastjóri Giljaskóla sendi fyrir
helgi orðsendingu til foreldra
og forráðamanna þar sem varað
er við Facebook-notanda undir
nafninu Hrafnhildur Ósk og hefur
tengst drengjum víða um land og
meðal annars falast eftir nektar-
myndum af þeim. Akureyri Viku-
blað greindi frá þessu á þriðjudag.
Á vef blaðsins segir að skóla-
stjórinn hafi bent foreldrum á að
þarna sé líklega einhver á ferðinni
sem ætli sér að nýta sakleysi
drengjanna og einfeldni. Þegar
hafa nokkrir drengir í skólanum
tengst viðkomandi.
„Nokkrir drengir í Giljaskóla
hafa tengst viðkomandi og vitað er
um fleiri drengi á öðrum stöðum á
landinu. Allt bendir til að þetta sé
einhver sem reynir að nýta sér sak-
leysi og einfeldni drengja sem ekki
kunna alveg fótum sínum forráð
í netheimum og komi fram und-
ir fölsku nafni,“ segir skólastjóri
í orðsendingunni. Hann hvetur í
kjölfarið foreldra til að ræða við
börnin um netsamskipti og hvern-
ig þau geta verið örugg á netinu.
Hulda hættir á
Akershus
Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrver-
andi forstjóri Landspítalans, hefur
látið af störfum hjá Akershus-há-
skólasjúkrahúsinu í Noregi. Hulda
hefur verið framkvæmdastjóri
sjúkrahússins frá árinu 2010.
Hulda og stjórn sjúkrahússins
munu hafa haft ólíka sýn á rekstur
sjúkrahússins og því voru starfs-
lok hennar ákveðin. Hulda seg-
ist ekki hafa fengið þann stuðn-
ing sem hún þurfti við þær lausnir
sem hún lagði til varðandi vanda-
mál sjúkrahússins. Stjórnin hafi
viljað leysa það á annan hátt,
meðal annars varðandi vaktafyrir-
komulag spítalans. Akershus hefur
glímt við mikinn fjárhagsvanda,
mikla yfirvinnu starfsmanna og
jafnvel brot á vinnulöggjöf. Hulda
segir eðlilegt að stjórnin leiti að
nýjum framkvæmdastjóra, sem
deili sýn stjórnarinnar á vandamál
sjúkrahússins og lausnir á þeim.