Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Page 8
8 Fréttir 16. október 2013 Miðvikudagur í dóttur minni“ U ppnám varð á samkomu Krossins á sunnudaginn þar sem átök ríkja á milli Sigur- bjargar Gunnarsdóttur for- stöðumanns og föður henn- ar, Gunnars Þorsteinssonar, sem vill komast aftur til valda innan trúfé- lagsins. Gunnar lét af störfum sem forstöðumaður safnaðarins og vék úr stjórninni eftir að konur stigu fram og sökuðu hann um kynferðisbrot og eftirlét dóttur sinni stöðuna, en hef- ur að undanförnu barist fyrir því að endurheimta stöðu sína. Fjölskyldan er klofin vegna máls- ins. Börn Gunnars, þau Jóhanna og Guðni, styðja hann gegn Sigur- björgu, en hún nýtur stuðnings móð- ur sinnar og fyrrverandi eiginkonu Gunnars, Ingibjargar Guðnadóttur, og stríðandi fylkingar talast ekki við. Blessaði ekki dótturina Á sunnudag var Baldur Freyr Einars- son gestapredikari á samkomunni. Í predikun sinni ræddi Baldur Freyr um auðmýkt, mikilvægi þess að hafa trú á sjálfan sig og styrk til að halda áfram þegar sársaukinn tekur yfir allt. Í lok predikunarinnar bað Baldur Sigurbjörgu og Aðalstein, eiginmann hennar, um að standa upp og föður Sigurbjargar, Gunnar, að koma og blessa þau. Gunnar neitaði hins vegar að blessa þau, fyrr en löglega væri skipað í stjórnina, en aðalfundi var slitið og frestað fyrr í sumar. Þar bauð Gunnar sig fram gegn dóttur sinni þegar kjósa átti um forstöðu- mann Krossins. Upp úr sauð í kjöl- far ágreinings um framkvæmd kosn- inganna, Gunnar vildi meina að fólk sem ætlaði að kjósa Sigurbjörgu fyrir hönd annarra safnaðarmeðlima, í umboði þeirra, hefðu ólöglegt um- boð þar sem kveðið væri á um það í lögum safnaðarins að kjósendur þyrftu að mæta í eigin persónu til að kjósa. Í kjölfarið lét hann hafa það eftir sér að það hefði átt að ganga frá þessu máli „með valdníðslu og belli- brögðum“. Aðrir vildu meina að hópur fólks hefði verið undir áhrifum áfengis og að þekktir handrukkarar hefðu mætt á fundinn. Framganga eins- taka fundargesta hefði einkennst af yfirgangi og valdið óöryggi og kom- ið öðrum fundargestum úr jafnvægi. Greip í hann Tvennum sögum fer af því sem gerð- ist á sunnudaginn en samkvæmt heimildum DV gekk Gunnar að Baldri, Sigurbjörgu og Aðalsteini þar sem þau stóðu við sviðið. Gunn- ar vildi fá hljóðnema en Baldur bað hann bara um að standa hjá þeim og sagði að hann þyrfti ekki hljóðnema. Þá fór Gunnar upp á svið að leita að hljóðnema en Ingibjörg kallaði til hans að hann þyrfti ekki hljóðnema til að blessa dóttur sína. Gunn- ar talaði þá yfir salinn og sagði það Guðs vilja að farið væri eftir lögum og að stjórn Krossins hefði ekki fylgt þeim reglum sem þar ríkja. Hann var svo á leið niður af sviðinu þegar Ingibjörg er sögð hafa gripið í hann og spurt hvernig hann gæti gert dóttur sinni þetta, af hverju hann vildi ekki blessa hana þegar hún stæði þarna grátandi. Sam- kvæmt heimildum DV á Gunnar þá að hafa stuggað lauslega við Ingi- björgu en hvorki hann, hún, Sigur- björg né Baldur vildu staðfesta þá frásögn, eða tjá sig um málið að öðru leyti. Lét ekki ögra sér „No comment,“ var það eina sem Gunnar hafði um málið að segja. Það væri aðeins til þess fallið að særa börn hans og barnabörn að ræða málið í fjölmiðlum og hann myndi því ekki gera það. Að samkomunni lokinni á sunnu- dag sendi hann stuðningsmönn- um sínum hins vegar bréf þar sem hann sagðist ætla að reyna að útskýra „þann skelfilega atburð sem átti sér stað á samkomu í dag“. Sagðist Gunnar aldrei hafa upplif- að „slíka andstyggð“ og þegar Baldur bað hann um að blessa Sigurbjörgu dóttur sína og Aðalstein tengdason sinn. Baldri ætti nefnilega að vera að einhverju leyti kunnugt um aðstæð- ur, að núverandi stjórn héldi völdum með ólögmætum hætti, valdníðslu og lagaklækjum. „Ekki veit ég hvað ég hef gert á hlut hans,“ sagði Gunn- ar og sagði að ekkert sem væri rangt og óheiðarlegt fengi blessun sína. „Ég fór upp þar sem ég, sem faðir Sigur- bjargar, gat ekki látið ögra mér með svona bragði.“ Vill gleyma Hann sagðist því hafa talað til Sigur- bjargar og Aðalsteins og sagt að hann myndi blessa þau ef þau færu að lög- um safnaðarins. Það hefði hins vegar enginn viljað rétta honum míkrófón og þannig hefði tjáningarfrelsið ver- ið skert í kirkjunni. „Þó að ég talaði á kurteisisnótum ákvað fyrrum kona mína Inga að ráðast á mig og öskraði á mig ókvæðisorð. Einhver náði að taka hana með valdi og stöðva hana.“ Enginn af þeim sem DV ræddi við í dag og var á staðnum gat stað- fest þessa lýsingu Gunnars á því sem þarna átti sér stað. Heimildarmenn DV sögðu þvert á móti að engin ástæða hefði verið til að stöðva Ingu með valdi og til þess hefði ekki kom- ið. Sjálf hafði hún ekki hug á að svara þessu, en hún sagðist vera orðin vön öllu. „Við skulum bara gleyma þessu, gleyma því sem er að baki og seilast eftir því sem framundan er,“ sagði hún. „Ég ætla ekki að tjá mig neitt um þetta.“ Illskiljanlegur gjörningur Bréfi Gunnars var ekki lokið, en hann sagði einnig að hjarta hans blæddi við að sjá fólk fara svona með forystustörf kirkjunnar. Hann harm- aði að fólk sem hefði þurft að horfa á þessa skelfingu, eins og hann orð- aði það, væri setti í þá stöðu. „Ég skil ekkert í dóttur minn og hef ekki gert í lengri tíma.“ Hann muni krefjast þess að kosið verði í nýja stjórn og lúta niðurstöðu lýðræðislegra kosninga. Bréfinu lauk síðan með þessum orðum: „Elsku vinir, ég vildi að þið heyrðuð mína hlið á þessu máli áður en Gróurnar fara af stað og skrum- skæla allt og sjá illa anda í öllum sem sjá hlutina án ofstækis og í geðshrær- ingum. Pólitíkin í Krossinum náði nýjum hæðum í dag með illskiljan- legum gjörningi Baldurs Freys.“ Snerist ekki um Krossinn Baldur vildi ekki ræða við blaða- mann þegar eftir því var leitað. Hann er sjálfur í öðru trúfélagi, CTF, og eft- ir því sem DV kemst næst hefur hann enga aðkomu að Krossinum, utan þess að hafa verði fenginn þangað sem gestapredikari á sunnudag, og hefur því engra hagsmuna að gæta. Heimildarmenn DV sögðu því helst til langt seilst að ætla honum ein- hvern stað í valdabaráttu innan Krossins. „Þetta snerist ekki um Krossinn heldur þau sem fjölskyldu,“ sagði sjónarvottur, sem vildi ekki láta nafns síns getið af ótta við að dragast inn í deilur fjölskyldunnar: „Baldur bað Gunnar bara um að blessa dóttur sína, sem dóttur sína en ekki sem forstöðumann Krossins. Þetta hafði ekkert með það að gera. Það er í raun með ólíkindum hvernig Gunnari tókst að snúa þessu svona. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá skil ég ekki af hverju Gunnar gat ekki bara bless- að dóttur sína.“ n n Uppnám í Krossinum n Gunnar neitaði að blessa dóttur sína Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Lét ekki ögra sér Gunnar neitaði að blessa dóttur sína og sakaði fyrrverandi eiginkonu sína um að ráðast að sér. Hann hét stuðningsmönnum sínum að beita sér fyrir nýrri stjórn. Mynd KrIStInn MaGnúSSon tók við af föður sínum Sigurbjörg er forstöðumaður Krossins en síðasta aðal- fundi var slitið þegar upp úr sauð. Mynd SIGtryGGur arI JóhannSSon. „Einhver náði að taka hana með valdi og stöðva hana. Frá fyrri tíð Gunnar og Ingibjörg stofnuðu Krossinn saman en þau eru núna skilin og mynda andstæðar fylkingar innan safnað- arins og fjölskyldunnar. Þrettán fengu styrki Dagur hvíta stafsins var í gær, al- þjóðlegur baráttu- og vitundar- dagur blinds og sjónskerts fólks. Að venju var tilkynnt um styrki úr styrktarsjóði Blindravinafélagsins og Blindrafélagsins. Alls bárust 17 umsóknir frá 16 umsækjendum með styrkbeiðnum alls að upp- hæð 4.382.690 kr. Stjórnin ákvað að úthluta 13 styrkjum að upphæð 1.701.360 kr. og til viðbótar voru gefin vil- yrði fyrir 800 þúsund kr. til við- bótar til greiðslu skólagjalda á næstu misserum. „Frá hruni hefur Blindrafélagið haft frumkvæði að og forgöngu um að 150 milljónir íslenskra króna hafa verið settar í mikilvæg og verðmæt verkefni til hagsbóta fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga hér á landi,“ segir á heimasíðu Blindrafélagsins. „Ég skil ekkert Leyfin aftur- kölluð Skógrækt ríkisins hefur ákveðið að hér eftir verði engin veiðileyfi seld starfsmönnum í forsölu og þau leyfi sem seld höfðu verið starfsmönnum á komandi rjúpna- tímabili verða afturkölluð og sett í almenna sölu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skógrækt ríkisins. DV sagði frá því á mánudag að dæmi væru um að starfsmenn Skógræktar ríkisins hafi fengið forskot á almenning þegar kæmi að kaupum á rjúpnaveiðileyfi á jörðum Skógræktarinnar. Þegar opnað var fyrir sölu veiðileyfanna, fyrir viku síðan, hafi menn veitt því athygli að ekki voru allir dagarnir til sölu. Samkvæmt upp- lýsingum DV innan úr stjórnsýsl- unni var hugsanlega um að ræða brot á 11. grein stjórnsýslulaga. Þau svör fengust hjá Skógrækt- inni að starfsmenn hefðu haft forkaupsrétt á veiðileyfunum. Í kjölfar fréttar DV hafa leyfin verið afturkölluð. Missir á meðgöngu Samtökin Litlir englar standa á fimmtudag fyrir málþingi um missi á meðgöngu. Fundarstjóri verður Anna Sigrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur en málþingið fer fram í Norræna húsinu. Mál- þingið er fjármagnað með fé sem safnaðist þegar Anna Sigrún og eiginmaður hennar tóku þátt í maraþoni í minningu sonar síns. „Hugsunin er sú að fagaðilar og aðrir geti fræðst um málið og lært hvert af öðru.“ Á meðal þeirra sem flytja erindi eru Ragnheiður I. Bjarnadóttir kvensjúkdómalæknir, Margrét I. Hallgrímsson, deildar- stjóri LSH, og Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.