Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Blaðsíða 12
L ögin um náttúruvernd sem sam- þykkt voru í vor hertu mjög á skyldum almennings til að ganga vel um náttúruna og sýna ítrustu varúð svo henni yrði ekki spillt. Þau gerðu líka auknar kröfur um vand- aða málsmeðferð stjórnvalda og að ákvarðanir sem varða náttúruna yrðu byggðar á vísindalegum grund- velli. Þannig var í auknum mæli gerð krafa um umsagnir fagaðila áður en ákvarðanir væru teknar. Þá var lögð aðgæsluskylda á framkvæmdaaðila sem bera ábyrgð á innflutning lifandi framandi lífvera og dreifingu lifandi lífvera sem og á stjórnvöld þegar þau taka ákvarðanir sem varða friðuð vist- kerfi, vistgerðir eða tegundir. Þetta var framfaramál og með því voru stigin mikilvæg skref í náttúruvernd. Marg- víslegar ábendingar bárust umhverf- is- og samgöngunefnd og var tekið til- lit til margra þeirra. En málið var auðvitað ekki óum- deilt. Á síðustu metrunum voru gerðar breytingar á því til að koma til móts við stjórnarandstöðuna og meðal annars var gildistöku frestað til 1. apríl, að sögn Marðar Árna- sonar framsögumanns, svo tóm yrði fyrir næsta þing að gera breytingar á lögunum stæði vilji til þess. Sjálf- ur var ég eini þingmaðurinn sem var ósáttur við þessa breytingu gildis- tökunnar en minnihlutinn í um- hverfisnefnd var ánægður. Birgir Ár- mannsson sagði að með þessu ynnist ráðrúm svo að nýr meirihluti gæti gert einhverjar breytingar á málinu ef svo verkaðist. Honum fannst breytingarnar mikilvægar til að greiða fyrir framgangi málsins. Það var svo samþykkt í heild mótatkvæð- alaust. Stjórnarandstaðan sat hjá við afgreiðslu málsins. Það var ekki um- deildara en svo. Nú ber svo við að umhverfisráð- herra hyggst leggja fram frumvarp til að afturkalla lögin. Hann vill ná víð- tækari sátt um málið. Það fyrsta sem hann þarf að gera sér grein fyrir er að við þetta eru margir mjög ósáttir. Mun skynsamlegra væri að leggja fram breytingar við lögin áður en þau taka gildi, eins og var ætlun bæði meiri- og minnihluta í lok síðasta kjör- tímabils. Það er nægur tími til stefnu fram að vori til að gera þær breytingar á lögunum sem miða til frekari sátta. Grunnur þeirra er mjög góður. Vinnsluferlið var langt og fól í sér að- komu fjölda fagaðila og umsagnar- aðila á ólíkum stigum. Það væri mikil sóun á tíma og verðmætum að kasta þeirri vinnu fyrir róða. Það væri enn fremur mikil afturför að láta úr sér genginn lagaramma halda gildi sínu. Öll hljótum við að vera sammála um markmið laganna; að vernda til framtíðar fjölbreytni íslenskrar náttúru. Það hlýtur jafnframt að vera kapps- mál fyrir Framsóknarflokkinn sem nú um stundir fer með málefni um- hverfisins að sýna í verki hug sinn til náttúruverndar eftir ólukkulega upp- hafsmánuði í þessum viðkvæma mála- flokki. Hvort sem það eru hugmyndir um afturköllun laganna, niðurlagningu ráðuneytisins eða upptöku ramma- áætlunar þá gefur málflutningur- inn til kynna að nauðsynlegt sé fyrir umhverfisverndarsinna að stilla sig saman í harðari samstöðu til varnar ís- lenskri náttúru en áður eru dæmi um. Það væri hins vegar óskandi að slíkt reyndist óþarfi. Framsóknarflokkurinn hefur enn tækifæri til að sýna í verki hvað hann á við með víðtækri sátt. n Sandkorn F ramsóknarflokkurinn virðist bæði vera félagshyggju- og frjálshyggjuflokkur ef marka má orð Sigurðar Inga Jóhanns- sonar á Alþingi á mánudaginn. Ráðherrann og Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, lentu þá í áhugaverðu orðaskaki um veiði- gjöld sjávarútvegsfyrirtækja þar sem tilvistarvandi Framsóknarflokksins kom berlega í ljós: Hvernig flokkur vill hann vera og hvernig flokkur er hann? Árni Páll gagnrýndi Sigurð Inga fyrir að tala fyrir svokallaðri brauð- molahagfræði (e. trickle down economics) í umræðum um veiðigjöld en slík hagfræði er eitt af einkennum frjálshyggjunnar. Í stuttu máli geng- ur slík hagfræði út á að halda skatt- heimtu á stöndug fyrirtæki og vel stæða einstaklinga í lágmarki því að slíkt sé á endanum betra fyrir sam- félagið allt þar sem fjármagn hinna stöndugu seytli niður til annarra verr settari hópa í samfélaginu. Stefán Ólafsson prófessor hefur kallaða hug- myndina „lekakenningu frjálshyggj- unnar“ á íslensku. Í tilfelli sjávarút- vegsfyrirtækja virkar lekakenningin þannig á þau að með því að draga úr veiðigjöldunum sem þau þurfa að borga, og eins með því að lækka skatta þeirra, verði meira eftir af fjármunum inni í fyrirtækjunum til að endurnýja atvinnutæki, meðal annars skip og annan tækjabúnað. Slíkt fyrirkomu- lag er sagt vera, samkvæmt frjálshyggj- unni, hagfelldara fyrr samfélagið allt en að hækka gjaldtöku og skattheimtu. Sigurður Ingi sagðist hafa heim- sótt lítið sjávarpláss á sunnanverð- um Vestfjörðum fyrir nokkru og hitt forsvarsmenn útgerðarfélags þar í bæ sem hefðu sagt að breytingar á veiðigjöldunum hefðu komið í veg fyrir gjaldþrot þess. Ekki er tekið fram hvaða útgerð þetta var en það gæti til dæmis verið Oddi á Patreksfirði – ekk- ert af stærstu og öflugustu útgerðarfé- lögum landsins er hins vegar að finna á sunnanverðum Vestfjörðum. Sig- urður Ingi sagði að ef Árni Páll vildi kalla þessa hagfræði ríkisstjórnarinnar brauðmolahagfræði þá væri það í lagi þar sem hún „virkar allavega vel í þess- um minni sjávarbyggðum landsins“. Í næstu ræðu hafnaði Sigurður Ingi því svo að Framsóknarflokkurinn væri frjálshyggjuflokkur: „Framsóknar- flokkurinn er félagshyggjuflokkur, ekki bara einu sinni heldur alltaf.“ Ráðherrann sagði mikilvægt að horfa til þess hversu „ólíkur og fjöl- breyttur sjávarútvegurinn“ væri og að fyrirtækin væru „margbreytileg“. Ekki væri hægt að taka „fjögur, fimm fyrirtæki sem betur fer hagnast vel“ og færa fyrir því í rök að leggja ætti ákveðið miklar byrðar á „allan sjávar- útveginn“ vegna stöðu þessara fyrir- tækja. Með þessum orðum er Sigurður Ingi væntanlega að vísa til stórra út- gerða eins og Samherja, HB Granda, Síldarvinnslunnar, Vinnslustöðvar- innar og Ísfélagsins sem hagnast hafa mikið á hverju ári frá hruninu og eru firnasterk í dag. Inntakið í málflutningi Sigurðar Inga er því tvíþætt. Í fyrsta lagi að þrátt fyrir að Framsóknarflokkurinn sé fé- lagshyggjuflokkur þá hegði hann sér samt eins og frjálshyggjuflokkur með því að beita þess lags hagfræði á borði sem einkennir yfirleitt slík flokka. Í öðru lagi talar hann um mikilvægi þess að líta á mismunandi stöðu ólíkra sjávarútvegsfyrirtækja þegar álagn- ing veiðigjalda er metin en á borði þá fylgir ríkisstjórnin ekki þessari stefnu heldur leggur sama gjald á all- ar aflaheimildir óháð því hversu vel útgerðirnar standa. Útgerðirnar sem standa vel borga jafn mikið hlutfalls- lega og útgerðirnar sem standa illa. Sigurður Ingi vill eiga kökuna og éta hana líka: Hann vill vera félags- hyggjumaður í orði en frjálshyggju- maður á borði; hann talar fyrir mikil- vægi sértækra lausna út frá stöðu einstakra útgerða en þær hugmynd- ir hans endurspeglast ekki í frum- varpinu sem hann lagði fram um breytingar á veiðigjöldum fyrr á árinu. Niðurstaðan er sú að stóru og sterku útgerðirnar sem Sigurður Ingi talar um halda eftir miklu meiri peningum af auðlindinni en þær þurfa á að halda fyrir reksturinn og fyrir vikið geta þær greitt himinháan arð til hluthafa sinna ár eftir ár – Síldarvinnslan greiddi 2 milljarða í arð á þessu ári, Ísfélagið 1,2, Vinnslustöðin 1,1 milljarð og HB Grandi 1,7 milljarða. Brauðmolarn- ir í þessum tilfellum leka ekki niður til starfsmanna viðkomandi útgerða eða þjóðarinnar sem slíkrar heldur til eigenda útgerðarinnar og heim- færa niðurstöðu Stefán Ólafssonar um lekakenninguna upp á þetta tiltekna dæmi: „Lekakenning frjálshyggjunnar eykur einfaldlega auð hátekjufólks en gagnast engum öðrum.“ Með lækkun veiðigjaldanna er Sig- urður Ingi að auka möguleika eigenda þessara útgerða á því að greiða sér út enn hærri arð í framtíðinni. Ef hann ætlaði að vera samkvæmur eigin orð- um þá hefðu breytingarnar á veiði- gjöldunum verið sértækar og tekið mið af stöðu útgerðanna, rétt eins og núverandi lög um veiðigjöld heimila að skuldsettum útgerðum sé veittur afsláttur þá hefði verið hægt að láta stöndugustu útgerðirnar, sem eru vel aflögufærar, borga meira. Eitt dæmi um eitt lítið og skuldsett útgerðar- fyrirtæki á Vestfjörðum réttlætir ekki breytingarnar sem Sigurður Ingi gerði á veiðigjöldunum. Niðurstaðan er því sú að Sigurður Ingi vill tala eins og félagshyggju- maður af því þannig getur hann varið hagsmuni sína og Framsóknarflokks- ins gagnvart kjósendum í landinu en hann hegðar sér síðan eins og frjáls- hyggjumaður af því þannig ver hann hagsmuni flokksins gagnvart útgerð- ar- og peningaöflunum í landinu. Orð Sigurðar Inga um meinta félags- hyggju flokksins eru bara innantómt píp þegar horft er á gjörðir flokksins. Ef þetta er félagshyggja Sigurðar Inga á borði þá óar mig við því hvernig frjáls- hyggja hans gæti litið út. Líklega er þó bara næst sannleikanum að segja að frjálshyggja Framsóknarflokksins sé í líki félagshyggju.n Jónína og Jóhanna n Margir bíða þess í ofvæni að ástarsaga þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, og Jónínu Benediktsdóttir rithöfund- ar komi út. Þær stöllur eru skráðar í sambúð en hafa aldrei viljað ræða samband sitt opinberlega. Nú mun verða breyting á því saga þeirra verður til sölu í öllum betri bókabúðum. Fylgir honum n Margir bíða þess spenntir að Jón Gnarr opinberi áform sín um hvort hann haldi áfram í borg- armálunum undir því lof- orði að gera allskonar fyr- ir aumingja. Upplausn virðist vera í hópi borgarfulltrúa meirihlutans. Þannig eru þungavigtar- konurnar Oddný Sturludótt- ir og Björk Vilhelmsdóttir á förum en Dagur B. Eggerts- son situr eftir. Innan Besta flokksins gætir líka óróleika. Karl Sigurðsson sagði í DV að hann myndi „fylgja hon- um“. Þar vísar hann til hins mikla leiðtoga Jóns Gnarr sem leiðir þá undanhaldið eða varnarbaráttuna eftir at- vikum. Vægt hláturskast n Framsóknarflokkurinn er nú í örvæntingu að leita að frambjóðanda sem gæti orðið sigursæll í Reykjavík í komandi sveitarstjórnar- kosningum. Flokkurinn hefur ekki borið sitt barr í borginni síðan Alfreð Þor- steinsson og Björn Ingi Hrafns- son héldu eftirminnilega um valdataumana. Það mun hafa verið imprað á því við krafta- verkamann- inn Sigmar Vilhjálmsson, einn eigenda Ham- borgarafabrikkunnar, hvort hann tæki slaginn. Sigmar, sem býr í Mosfellsbæ, er sagður hafa fengið vægt hláturskast. Skáldsaga Óskars n Óskar Magnússon, útgef- andi Morgunblaðsins og fyrrverandi fréttastjóri DV, þykir vera hamhleypa til verka. Samhliða því að gefa úr Moggann er hann að stússast í ýmsum sveitar- stjórnarmálum og skrifum en hann býr á Sámsstaða- bakka í Fljótshlíð. Hann hefur undanfarin ár skrifað smásögur og meðal annars hlotið verðlaun fyrir. Í haust er von á stórri skáldsögu frá honum þar sem við- fangsefnið er spennan milli samfélags sveitamanna og borgarbúa. Erum til alls líkleg Ekki öreind af sannleika Jón Gnarr segir ekkert stöðva Besta flokkinn. – Facebook Freyr Einarsson segir frétt DV ranga. –DV Frjálshyggja í líki félagshyggju„Framsóknarflokk- urinn er félags- hyggjuflokkur, ekki bara einu sinni heldur alltaf „Það væri mikil sóun á tíma og verðmætum að kasta þeirri vinnu fyrir róða Varðstaða um náttúru Íslands Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari Róbert Marshall þingflokksformaður Bjartrar framtíðar Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 12 16. október 2013 Miðvikudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.