Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Side 15
Sport 15Miðvikudagur 16. október 2013
Tvær kúlur
á mánuði
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
nýráðinn landsliðsþjálfari Dana,
mun þéna ígildi liðlega tveggja
milljóna íslenskra króna á mánuði
í starfi sínu. Ekstrabladet grein-
ir frá þessu en þar kemur fram að
árslaunin, næstu þrjú árin, verði
tæplega 22 milljónir króna á ári.
Óhætt er að segja að pressan
á Guðmundi verði mikil því
þar á bæ er gerð skýr krafa um
ólympíugull. Í dönskum fjölmiðl-
um er talað um að hann hafi feng-
ið viðurnefnið Gullmundur, sem
vísar líklega hvort tveggja til kröf-
unnar um gullmedalíu og launa-
kjara þjálfarans.
Newcastle vill
kaupa Remy
Forráðamenn Newcastle eru sagð-
ir vilja kaupa franska framherjann
Loic Remy sem leikið hefur með
liðinu í haust sem lánsmaður frá
QPR. Remy hefur farið vel af stað
með Newcastle og skorað 5 mörk
í síðustu 3 leikjum sínum. Talið er
að Newcastle þurfi að reiða fram
sex milljónir punda, 1,1 milljarð
króna, til að kaupa leikmanninn.
Að sögn breskra fjölmiðla eru for-
ráðamenn Newcastle sagðir vilja
ganga frá kaupunum strax í janúar
af ótta við samkeppni frá öðrum
félögum.
Messi klár
í slaginn
Lionel Messi, besti knattspyrn-
umaður heims, er byrjaður að
æfa að nýju með Barcelona eftir
að hafa glímt við meiðsli. Messi
meiddist í sigurleik gegn Almer-
ia í lok september og missti af
þeim sökum af fjórum leikjum;
tveimur með Barcelona og tveim-
ur með landsliði Argentínu. Búist
er við því að hann verði í hópnum
gegn Osasuna um helgina og verði
mættur í byrjunarliðið gegn AC
Milan í Meistaradeildinni í næstu
viku. Messi hefur skorað 11 mörk í
9 leikjum á leiktíðinni.
Bravó strákar!
Í
slenska karlalandsliðið í
knattspyrnu er í fyrsta sinn í
sögunni komið í umspil um
laust sæti á HM í knattspyrnu.
Íslendingar stóðust Norðmönn-
um snúning á Ulleväl-leikvanginum
í erfiðum og spennuþrungnum leik
á þriðjudagskvöld. Jafntefli nægði
liðinu til að tryggja sér annað sætið í
E-riðli því á sama tíma létu Slóvenar
í minni pokann gegn Sviss.
Um gífurlegt afrek er að ræða því
þegar dregið var í riðla fyrir mótið
var Ísland í neðsta styrkleikaflokki.
Það felur í sér að fyrir mótið voru all-
ir andstæðingar Íslands á pappírun-
um taldir sterkari. Lars Lagerbäck
og lærisveinar hans í landsliðinu
létu slíkt sem vind um eyru þjóta og
stefndu ótrauðir á annað efstu sæt-
anna tveggja.
Norðmenn sprækir
Leikurinn gegn Noregi var erfiður.
Norðmenn byrjuðu leikinn af krafti
og höfðu yfirhöndina á vellinum.
Það var því þvert gangi leiksins sem
Kolbeinn Sigþórsson skoraði mark
á 13. mínútu eftir góðan undirbún-
ing Gylfa Þórs Sigurðssonar. Í kjölfar-
ið kom góður íslenskur kafli þar sem
liðið stjórnaði leiknum. Norðmenn
hertu tökin þegar á fyrri hálfleikinn
leið og uppskáru mark á 30. mín-
útu, þegar Daniel Braaten skoraði.
Þannig stóðu leikar í hálfleik.
Norðmenn byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og stjórnuðu hálf-
leiknum lengst af. Þeir sköpuðu sér
þó ekki hættuleg færi. Eiður Smári
Guðjohnsen fékk líklega besta færi
hálfleiksins en norski markvörður-
inn varði með miklum tilþrifum. Í
kjölfarið kom Alfreð Finnbogason
inn fyrir Eið Smára. Það dró af báð-
um liðum þegar á hálfleikinn leið og
færunum fækkaði. Á sjötugustu og
fjórðu mínútu bárust þau gleðitíð-
indi frá Sviss að heimamenn væru
komnir yfir. Þar með var ljóst að
Slóvenar þyrftu tvö mörk þyrfti til að
komast upp fyrir Íslendinga í riðlin-
um. Leikurinn í Ósló fjaraði út og Ís-
lendingar lönduðu stiginu.
„Ég er stoltur“
„Við gerðum bara það sem þurfti að
gera. Við getum verið stoltir af sjálf-
um okkur og þetta er ólýsanlegt,“
sagði Kolbeinn í viðtali við RÚV eftir
leik. Eiður Smári Guðjohnsen var að
vonum ánægður eftir leik og viður-
kenndi að þessi áfangi hafi verið fjar-
lægur draumur undanfarin ár. „Við
erum auðvitað ekki komnir á HM
en við höfum skrifað okkur í sögu-
bækurnar. Þetta eru stór skref.“ Eið-
ur hefur ekki átt upp á pallborðið hjá
sínu félagsliði undanfarna mánuði
og sagði að hann hefði notað lands-
liðið sem „motivation“ til að halda
sér í góðu standi. „Ég er stoltur af
því að hafa hjálpað til við að afreka
þetta.“
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnars-
son var ánægður en jarðbundinn eft-
ir leik. „Við byrjuðum illa og spiluð-
um ekki okkar besta leik í kvöld. Við
verðum bara að læra af þessu. Við
náðum ekki upp okkar spili en gerð-
um það sem þurfti til. Þetta var nóg,“
sagði hann við RÚV.
Íslenska liðið hefur oft spilað
betur en í leiknum í Noregi en Lars
Lagerbäck landsliðsþjálfari sagði í
viðtali við RÚV eftir leikinn að hann
væri stoltur af dugnaði liðsins og
karakter leikmanna.
Á mánudaginn verður dregið um
hvaða lið mætast í umspilinu fyrir
HM. Ísland getur þar mætt Króatíu,
Grikklandi, Portúgal eða Svíþjóð,
eins og staðan er á styrkleikalista
FIFA í dag. FIFA á þá eftir að reikna
út nýjan lista að loknum þeim lands-
leikjum sem farið hafa fram síðustu
daga. Hugsanlegt er að þeir útreikn-
ingar geti haft áhrif á hvaða liðum Ís-
land getur mætt í umspilsleikjunum,
en auk þessara fimm liða verða Rúm-
enía, Frakkland og Úkraína í hattin-
um. Sá háttur er hafður á að þau fjög-
ur lið sem efst eru á styrkleikalista
FIFA mæta þeim fjórum sem neðar
eru. Það er því ljóst að Ísland mun
mæta stórþjóð í knattspyrnu í leikj-
unum mikilvægu, sem fram fara í
nóvember. n
n Skráðu nöfn sín á spjöld sögunnar í Ósló n Dregið á mánudaginn
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Lokastaðan í riðlinum
Leikir Markatala Stig
Sviss 10 17 6 24
Ísland 10 17 15 17
Slóvenía 10 14 11 15
Noregur 10 10 13 12
Albanía 10 9 11 11
Kýpur 10 4 15 5
Kolbeinn í stuði
Markahrókurinn
skoraði í enn einum
landsleiknum.
Einkunnir leikmanna íslenska liðsins
7 Hannes Þór
Halldórsson Var öruggur
í sínum aðgerðum en hefði
með smá heppni getað var-
ið þegar Norðmenn skoruðu.
6 Birkir Már Sæv-
arsson Átti fínan leik
og átti ekki í teljandi
vandræðum. Verður í
banni í næsta leik.
8 Kári Árnason Var ör-
uggur á boltann, að venju,
og bar af í vörn Íslands.
6 Ragnar Sigurðsson Átti
fínan leik en gerði slæm
mistök þegar hann
missti boltann í síðari
hálfleik. Kári bjargaði á
ögurstundu.
6 Ari Freyr Skúlason Átti
nokkuð kaflaskiptan leik og
var stundum í basli, enda
sóttu Norðmenn mikið upp
hans megin. Lék boltanum vel frá sér.
5 Jóhann Berg
Guðmundsson Gerði
ekki mikið sóknarlega
en vann mjög vel í
vörninni.
7 Aron Einar
Gunnarsson Dreif
sína menn áfram
og var fastur fyrir.
Stöðvaði ófáar sóknir
Norðmanna.
7 Gylfi Þór
Sigurðsson Lagði
upp mark Íslands
með frábærri
sendingu. Gylfi lék
mjög vel í leiknum
og var ótrúlega
góður undir pressu.
6 Birkir Bjarnason
Átti fínan leik og barðist
eins og ljón allan leikinn. Gaf aldrei tommu
eftir.
7 Eiður Smári
Guðjohnsen Var
líklega besti mað-
urinn á vellinum
í fyrri hálfleik og
var svo óheppinn
að skora ekki í þeim
síðari. Flottur leikur hjá
öldungnum.
8 Kolbeinn
Sigþórsson Fékk
eitt færi í leiknum
og nýtti það,
eins og sönnum
framherja sæmir.
Barðist eins og ljón
allan tímann.
5 Alfreð
Finnbogason
Komst ekki alveg í
takt við leikinn en
hljóp þó mikið og
var duglegur.„Ég er
stoltur
af því að hafa
hjálpað til við að
afreka þetta