Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Síða 19
Menning 19Miðvikudagur 16. október 2013 Nýr leiklistar- gagnrýnandi DV Hlín Agnarsdóttir, rithöfundur og leikstjóri, hefur gengið til liðs við DV og mun rýna í uppfærslur leikhúsanna í vetur. Hlín hefur skrifað fjölda leik- rita og smásögur og hefur leik- stýrt yfir 30 leiksýningum. Hún lauk meistaranámi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands árið 2010, framhalds- námi í leikstjórn frá Drama Studio í London árið 1988 og kandídatsprófi í leiklistarfræðum frá Stokkhólmsháskóla. Hún kennir ritlist í Háskóla Íslands og leikritun við Kvik- myndaskólann. Innsetningar Elínar Hans- dóttur Föstudaginn 18. október heldur myndlistarmaðurinn Elín Hans- dóttir fyrirlestur í Listháskóla Ís- lands. Elín útskrifaðist úr mynd- listardeild Listaháskóla Íslands árið 2003 og lauk meistaranámi við KHB-Weissensee í Berlín árið 2006. Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki áhugaverðan feril og hafa verk hennar vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Innsetningar Elínar, sem byggð- ar eru fyrir tiltekin rými, taka á sig margvíslegar myndir og má nefna hljóð- og/eða sjónrænar blekk- ingar, göng í ætt við völundarhús og byggingarfræðilega þætti sem myndast fyrir tilstilli hreyfingar. Í fyrirlestrinum mun Elín fjalla um vinnuferlið sem liggur að baki verkum hennar, um það hvernig eitt leiðir af öðru, um ójafnvægi og ófullkomleikann. Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrasal myndlistardeildar LHÍ kl. 12.30. Heitasta jaðarsveit Los Angeles Hljómsveitin Bleached frá Banda- ríkjunum mun halda tónleika á Harlem Bar þann 17. október næstkomandi. Hljómsveitin er ein heitasta jaðarsveit Los Angeles í dag og er skipuð systrunum Jenni- fer og Jessie Clavin. Bleached spilar hrátt og hátt rokk og ról en nýverið gaf hún út sína fyrstu breiðskífu sem nefnist Ride Your Heart. Platan hefur feng- ið frábæra dóma og má þar nefna 4/5 í breska tónlistarritinu Mojo. Tónleikar þeirra, sem hefjast klukkan 22.00, eru þeir fyrstu í langri tónleikaferð þeirra um alla Evrópu. Óvitaskapur fullorðna fÓlksins G runnhugmynd Guðrúnar Helgadóttur í Óvitunum er snjöll, að láta börnin fæð- ast stór og minnka svo eft- ir aldri, þannig að fullorðna fólkið verður að smáfólki þegar aldur- inn færist yfir. Þessi viðsnúningur barna og fullorðinna vakti strax mikla athygli þegar verkið kom fyrst fram og varpaði nýju ljósi á samskipti þessara aldurshópa í fjölskyldu og samfélagi. Verkið gaf röddum barna aukið vægi og setti málefni þeirra í brennidepil bæði í leikhúsinu og samfélaginu. Það var á barnaári Sameinuðu þjóðanna árið 1979 sem þáverandi þjóðleikhús- stjóri, Sveinn Einarsson, pantaði leik- ritið hjá vinsælasta barnabókahöf- undi þjóðarinnar á þeim tíma. Og gott ef hún er það ekki enn, að minnsta kosti hafa fáir höfundar sýnt heimi barna jafnmikinn áhuga og Guðrún Helgadóttir. Óvitar eru órækt dæmi um þenn- an áhuga en þar er umfjöllunarefnið óvitaskapur hinna fullorðnu. Höf- undur horfir með gagnrýnum aug- um barnsins á ástir foreldra, hjóna- band og heimilisástand. Hún er langt á undan sínum samtíma, þegar hún fjallar opinskátt um drykkju- skap, heimilisofbeldi og framhjáhald og áhrif þess á líðan barna, nokkuð sem ekki mátti tala um fyrir framan börn eða lá í þagnargildi. Um þetta allt skrifar Guðrún af ríkum skilning og leiftrandi kímnigáfu sem er helsti styrkur hennar. Hnyttin samtöl sem hitta í mark Aðalsaga verksins fjallar einmitt um vinnuþjakaða foreldra, vandræði í einkalífi þeirra og áhrif þess á líðan barna þeirra. Guðmundur og Finn- ur eru 8 ára skólabræður og vinir en Finnur lætur sig hverfa að heiman með aðstoð Guðmundar til þess að kanna viðbrögð umhverfisins og eins hvort foreldrar hans, sem ramba á barmi skilnaðar, elski hann í raun. Hvarf Finns kemur eðlilega öllu í uppnám og reynir á foreldra, skóla og samfélag og mögulegur dauði Finns svífur yfir vötnunum um stund. Allt er þetta skrifað með þeirri elsku, kímni og hlýju sem Guðrún er alþekkt fyrir en í Óvitum veltir hún líka fyrir sér uppeldi barna, þeirri vandasömu skyldu sem hvílir á foreldrum og öðrum þeim er eiga að annast börn, en reynast oft engu minni óvitar en börnin sjálf. Samtöl Guðrúnar eru vel skrifuð, hitta oftast í mark hjá áhorfendum og svo hnyttin á köflum að þeir skella upp úr hvað eftir annað, þótt allra yngstu áhorfendurnir hafi ekki alltaf haldið einbeitingu og hlustun, enda er sýningin ætluð börnum frá 4ra til 99 ára. Mikið væri nú gott ef foreldrar tækju mark á því og hættu að pína ómálga bleyjubörn og alvöru óvita til að fylgjast með tveggja stunda langri leiksýningu sem þau hafa ekkert út- hald til að njóta, en sú hefur því miður verið raunin á sígildum barnaleiksýn- ingum Þjóðleikhússins frá upphafi. Börnin leika stór hlutverk Nú sem fyrr leika börn hina fullorðnu, foreldra og gamalmenni, en fullorðn- ir leikarar bregða sér í hlutverk barna og unglinga. Þessi hlutverkaskipti gefa verkinu það ótvíræða gildi sem það hefur jafnt núna sem áður. Það er viðsnúningur hlutverka sem vekur mesta kátínuna og fæðir af sér frum- legar hugmyndir og lausnir í allri út- færslu verksins. Það mæðir auðvit- að mest á barnaskaranum sem hér er kallaður til leiks og er reyndar í tveim- ur hópum sem skiptist á að leika sýn- ingarnar, enda varla hægt að leggja aðra eins ábyrgð og álag á herðar sömu einstaklingunum. Ég átti þess kost að sjá seinni frumsýningu verks- ins og það var einstaklega ánægju- legt að fylgjast með barnaskaran- um stóra sem valinn hefur verið úr stórum hópi barna til að fara með öll hlutverkin. Leikstjórinn, Gunnar Helgason, hefur lagt sig fram við að ná fullorðinstöktum í framkomu, hreyfingu og raddbeitingu barnanna sem oftast tókst þótt sumar raddirn- ar væru of hljómlitlar til að geta flutt textann sem skyldi. Í leik barnanna reyndi auðvitað mest á þau sem léku foreldrapörin tvö sem öll sagan hverf- ist um og reyndust þau flest standa undir væntingum, en margar aðr- ar eftirminnilegar persónur sitja eft- ir eins og afgreiðslustúlka, kennari, skólastjóri og prestur. Stórar og svipmiklar hópsenur með litla fólk- inu voru leystar með taktföstu hreyfi- mynstri, dansi og söng og hópurinn tók sig vel út í litríkum búningum og skringilegum leikgervum Þórunnar Maríu Jónsdóttur. Jóhannes Haukur Jóhannesson var óskaplega sannfærandi 8 ára Guðmundur, feiminn, vandræðaleg- ur og seinheppinn og það sama verð- ur að segja um Odd Júlíusson sem er nýlega genginn til liðs við Þjóðleik- húsið en hann lék Finn á kraftmikinn hátt. Samleikur þeirra var með mikl- um ágætum og oft verulega fyndinn. Af öðrum leikurum Þjóðleikhússins er vert að nefna Örn Arnarson í hlut- verki kerrubarnsins á leiksviðinu og Ágústu Evu Erlendsdóttur í hlutverki Dagnýjar, systur Guðmundar. Óvitar enn í fullu gildi Umgjörð sýningarinnar og leikmynd er í höndum Ilmar Stefánsdóttur, sem er að verða einn af eftirsóttustu leikmyndahöfundum leikhússins. Að þessu sinni sækir hún hugmynd- irnar í litríkan plastveruleika Fisher Price-leikfanganna og skapar úr þeim dúkkuhúslegan fullorðinsheim, sem börnin stóru þurfa síðan að aðlagast og sætta sig við sem antík! Leikmynd Ilmar býr yfir mörgum skemmtilegum möguleikum og sviðslausnum eins og innfelldu trampólíni í sviðsgólfi og lif- andi sjónvarpi. Til að auka fjörið, hit- ann og litadýrðina á sviðinu bættist svo við funky músík Moses Hightower með nýjum söngtextum eftir þá Stein- grím Karl Teague og Andra Ólafsson ásamt viðeigandi lýsingu. Óvitar eru enn í fullu gildi, jafnvel þótt margt hafi gjörbreyst varðandi stöðu og réttindi barna í samfélaginu, svo ekki sé minnst á stöðu og hlut- verk kynjanna sem ef til vill orkaði dá- lítið gamaldags í sýningunni nú. Nú vinna báðir foreldrar því miður allt of langa vinnudaga frá börnum sín- um, en áður voru það eingöngu feð- urnir enda aðalfyrirvinna heimilisins. Í heildina er þetta vel heppnuð upp- færsla á Óvitum, hér eru börnin í að- alhlutverki, ekki aðeins sem persónur í verkinu, heldur líka sem leikendur. Með uppsetningunni er börnum sýnd sú virðing sem þeim ber af hálfu Þjóð- leikhússins og samfélagsins. n Í undirbúningi Hér má sjá nokkur þeirra barna sem taka þátt í uppfærslunni án farða. „Það mæðir auðvitað mest á barnaskaranum sem hér er kallaður til leiks,“ segir Hlín og er hrifin af frammistöðunni. Mynd Sigtryggur Ari Óvitar Höfundur: Guðrún Helgadóttir Leikstjórn: Gunnar Helgason Leikarar: Jóhannes H. Jóhannesson, Oddur Júlíusson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Friðrik Friðriksson, Salóme R. Gunnarsdóttir, Þorleif- ur Einarsson, Þórunn A. Kristjánsdóttir, Elma S. Ágústsdóttir, Ævar Þ. Benediktsson og Örn Árnason Börn: Agla B. Einarsdóttir, Alexander K. Bendtssen, Alexandra V. Reuter, Andrea M. Magnúsdóttir, Ágúst B. Árnason, Ágúst Örn B. Wigum, Ásdís Kjartansdóttir, Davíð L. Arnarsson, Diljá Pétursdóttir, Elísabet T. Kristjánsdóttir, Erlen Í. Einarsdóttir, Grettir Valsson, Gríma Valsdóttir, Halldóra E. Einars- dóttir, Helena C. Heiðmundardóttir, Herdís L. Þórðardóttir, Hildur C. Heiðmundardóttir, Hulda F. Pálsdóttir, Iðunn Ö. Hlynsdóttir, Ingi H. Guðbrandsson, Kristinn Ó. Haraldsson, Lúkas E. Johansen, Matthías D. Matthíasson, Númi Steinn Möller Hallgrímsson, Steinunn Lárusdóttir, Sævar Ö. Valsson, Theodór Páls- son, Urður Heimisdóttir, Vera Stefánsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir. Sýnt í Þjóðleikhúsinu Leiklist Hlín Agnarsdóttir skrifar „Hún fjallar opin- skátt um drykkju- skap, heimilisofbeldi og framhjáhald og áhrif þess á líðan barna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.