Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Blaðsíða 22
Tom Hanks og
Rita Wilson
Grínistinn Tom Hanks
tekur hjónaband sitt
alvarlega en hann hefur
verið giftur Ritu Wilson
síðan í apríl 1988. Þau héldu
því upp á 25 ára brúðkaupsafmæli sitt
síðasta vor.
22 Fólk 16. október 2013 Miðvikudagur
Hjónabönd stjarnanna
Leitin að
Christian Grey
Enn bætist á lista leikara sem orð-
aðir eru við hlutverk Christian Grey
í væntanlegri mynd sem byggð
verður á metsölubókinni Fifty
Shades of Grey. Charlie Hunnam
hefur sagt sig frá verkinu og eru
leikarar eins og Cillian Murphy,
Ian Sommerhalder, Matt Bomer,
Alexander Skarsgård, Theo James
, Christian Cooke og Alex Pettyfer
sagðir ofarlega á lista. Efstir eru þó
Robert Pattinson og Ryan Gosling.
Nú hefur nafn Jamie Dornan bæst
við en hann hefur unnið sem undir-
fatafyrirsæta fyrir Calvin Klein auk
þess að hafa leikið í þáttum á borð
við The Fall og Once Upon A Time.
David og
Viktoria
Beckham
Þessi sannkölluðu
stjörnuhjón hafa
verið gift síðan 1999
og eiga fjögur börn.
Paulette og
Denzel Washington
Washington-hjónin hafa verið saman
í 29 ár. Þau eru mjög trúuð bæði tvö
sem gæti haft eitthvað um langt
hjónaband þeirra að segja.
Hjónabönd stjarnanna eru mjög viðkvæm og ætla má
að hin mikla umfjöllun og slúður sem þau þurfa að
þola hafi mikið um það að segja. Það eru þó dæmi um
farsæl hjónabönd sem hafa staðið fjölmiðlastorminn
af sér og hér má sjá nokkur dæmi um það.
Samuel L. og Latanya
Jackson Þau giftu sig árið 1980 eða
löngu áður en Samuel sló í gegn sem leikari.
Sarah Jessica Parker og
Matthew Broderick Þótt
Carrie í Sex and the City eigi erfitt með að
finna þann eina rétta þá hefur það ekki
verið vandamál fyrir Söruh Jessicu Parker.
Hún og Matthew Broderick hafa verið gift
síðan 1997 og hefur hjónaband þeirra verið
stöðugt í sviðsljósinu.
Barack og Michelle
Obama Það fer ekki á milli mála að þessi
tvö eru ástfangin. Barack og Michelle byrjuðu
að vera saman þegar þau unnu saman á
lögfræðistofu en þau giftu sig árið 1992.
Will Smith og Jada Pinkett
Það hafa gengið ýmsar sögur um hjónaband
þeirra svo sem að þau séu að skilja eða lifi í
opnu hjónabandi. Þau eru þó enn saman og
hafa verið gift í 16 ár.
Patrick
Dempsey og
Jullian Fink
Segja má að hinn
fjallmyndarlegi Patrick
Dempsey sé draumur
hverrar konu en hann sér ekki sól- ina fyrir
eiginkonu sinni, Jullian. Þau hafa verið gift
í 14 ár eða mun lengur en hann hefur leikið
lækninn vinsæla í Grey ś Anatomy.
Harry til
Íslands?
Breska tímaritið Heat greinir frá
því að Harry prins ætli að biðja um
hönd kærustu sinnar, Cressidu Bo-
nes, á Íslandi.
Harry og Cressida hafa verið
saman í rúmlega eitt ár. Harry mun
hafa fallið fyrir íslenskri náttúru
þegar hann æfði sig fyrir göngu á
suðurpólinn sem hann tekst á við í
nóvember næstkomandi.