Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 6
Þ orsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og aðaleigandi Samherja, tók 414 millj­ ónir króna út úr Samherja í síðasta ári í formi arðs. Þetta kemur fram í ársreikningi eignarhaldsfélagsins sem held­ ur utan um rúmlega þriðjungs­ hlut Þorsteins Más í Samherja. Félagið heitir eignarhaldsfélagið Steinn ehf. og á fyrrverandi eigin­ kona Þorsteins Más, Helga S. Guð­ mundsdóttir, minnihluta í félaginu á móti honum – eignarhlutföllin eru 51 prósent á móti 49 prósent­ um. Ársreikningnum var skilað til ríkisskattstjóra þann 7. október síðastliðinn. Hagnaður félagsins á síðasta ári nam 414 milljónum króna en þar af voru tæplega 400 milljón­ ir króna vegna útgreidds arðs frá Samherja í fyrra. Árið þar á undan, 2011, nam hagnaður félagsins rúmlega 373 milljónum króna. Samherji hefur síðastliðin ár auk­ ið hagnað sinn á hverju ári og gild­ ir þetta einnig um síðasta ár sam­ kvæmt tölum sem Samherji gerði opinberar í lok ágúst síðastliðinn: Hagnaður félagsins í fyrra nam 16 milljörðum króna. Langstærsta útgerð landsins Samherji er langstærsta sjávarút­ vegsfyrirtæki landsins og er stór hluti starfsemi fyrirtækisins er­ lendis. Miðað við kvótaúthlutun á Íslandi er Samherji hins vegar næst stærst, á eftir HB Granda, en taka verður tillit til þess að Sam­ herji er einnig stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar í Neskaupstað sem er eitt stærsta útgerðarfé­ lag landsins. Samherji er auk þess með starfsemi í Bretlandi, Þýska­ landi, Spáni, Póllandi og þar til fyrr á árinu við vesturströnd Afríku í gegnum Kanaríeyjar. Á engan er hallað þegar fullyrt er að engin íslensk útgerð hafi náð þeim árangri og þeirri stærð sem Samherji hefur náð. Fyrirtækið nær að skila miklum hagnaði en sem dæmi má nefna að arðgreiðsla félagsins út úr móðurfélagi Afríku­ útgerðar félagsins nam 4,2 millj­ örðum króna fyrir árin 2007 til 2012, líkt og DV greindi frá mið­ vikudag. Útgerðin var seld fyrr á árinu og á söluhagnaður Samherja af Afríkuútgerðinni eftir að bætast við þessa arðgreiðslu. 2,8 milljarða eignir Hlutabréf félagsins í Samherja eru bókfærð í ársreikningnum upp á 2,8 milljarða króna en eru auðvit­ að margfalt verðmætari en það. Á móti eru skuldir upp á rúma millj­ ón. Eigið fé félagsins er því jákvætt um 2,8 milljarða króna. Enginn arður var tekinn út úr félaginu í fyrra frekar en árið á undan. Steinn situr því á miklum eignum og á hverju ári bætist við arður frá Sam­ herja upp á nokkur hundruð millj­ ónir króna. Stærstu eigendurnir Öfugt við Þorstein Má þá er næst stærsti hluthafi Samherja, Krist­ ján Vilhelmsson, ekki með hluta­ bréf sín í fyrirtækinu í eignarhalds­ félagi heldur eru þau skráð á hans eigið nafn. Kristján er heldur ekki skilinn við eiginkonu sína og fyrir vikið er hann skráður fyrir meiri eignum samkvæmt skattaupplýs­ ingum. Samkvæmt úttekt á ríkustu Ís­ lendingunum sem DV birti fyrr á árinu þá á Kristján Vilhelmsson eignir upp á meira en 6,8 milljarða króna á meðan Þorsteinn Már er skráður fyrir rúmum 1.300 millj­ ónum króna. n 6 Fréttir 8.–10. nóvember 2013 Helgarblað Margfaldast í kostnaði n Ritun Sögu Garðabæjar kostar bæjarfélagið 50 milljónir K ostnaður við ritun Sögu Garða­ bæjar verður um 50 milljónir króna og hefur því margfald­ ast frá því sem upphaflega var áætlað. Nokkur óvissa hefur ríkt vegna verksins en það hefur aukist mikið í umfangi frá því sem upphaflega stóð til auk þess að hækka mikið í kostnaði. Tillaga að ritun sögu bæjarins var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í maí 2005 og var áætlað að verkið yrði gefið út í tveimur til þremur bindum og að ritun þess tæki tvö ár. Ritun bókarinnar hófst í árs­ byrjun 2006 og í desember 2011 skil­ aði höfundur verksins, Steinar J. Lúð­ víksson, af sér um þrjú þúsund síðna handriti sem síðan þá hefur verið í for­ lagsvinnslu hjá bókafélaginu Opnu en samkvæmt samningum voru áætluð verklok þann 31. desember 2012. Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upp­ lýsingastjóri Garðabæjar, segir að stefnt sé að því að verkið komi út fyrir næstu jól. „Þetta er búið að taka aðeins lengri tíma en menn ætluðu enda stækkaði það frá því sem upphaflega var lagt af stað með,“ segir hún og útskýrir að ákveðið hafi verið að rita sögu bæjar­ ins alveg frá landnámi en ekki bara síðustu 30 ár líkt og til stóð. „Kostnaðurinn hefur hækkað frá því sem upphaflega var áætlað, aðal­ lega vegna þess að þetta hefur tekið lengri tíma en til stóð. Svona gríðarlega mikil vinna kostar auðvitað pening.“ Guðfinna segir að reiknað sé með að heildarkostnaðurinn vegna ritun­ ar verksins verði hátt í 50 milljónir en ofan á það bætist svo kostnaður vegna prentunar og dreifingar. „Við höfum ekki enn fengið til­ boð í prentun en hugsanlega getur sá kostnaður orðið 5 til 6 milljónir.“ n horn@dv.is Tók 400 milljónir út úr Samherja n Eignarhaldsfélag Þorsteins Más á eignir upp á 2,8 milljarða króna Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Hagnaður félags- ins á síðasta ári nam 414 milljónum króna. Fékk 400 milljónir Þorsteinn Már fékk 400 milljónir króna í arð út úr Samherja og inn í eignarhaldsfélagið sitt í fyrra. Margfaldur kostnaður Ritun verksins mun kosta bæjarfélagið 50 milljónir króna. Íslendingar vilja Netflix Þúsund Íslendingar hafa á síð­ ustu vikum skráð sig í þjónustu sem gerir þeim kleift að blekkja varnir efnisveita á borð við Net­ flix og Hulu og þannig fengið að­ gang að þeim. Samtök myndrétt­ hafa, SMÁÍS, hafa gert alvarlegar athugasemdir við þjónustuna en hún er í boði á fleiri en einum stað. Flix fagnaði nýverið þús­ undasta áskrifanda sínum og segir einn forsvarsmanna fyrirtækisins að það hafi farið vel af stað. Helstu deilur um þjónustu á borð við Flix snúast um höfundar­ réttarsamninga um dreifingu á efni. Netflix hefur til að mynda ekki heimild til að miðla efni á Ís­ landi og lokar á íslenskar IP­töl­ ur. Með því að tengjast í gegnum erlenda IP­tölu má fara framhjá þessum vörnum og fá aðgengi að þjónustunni gegn hefðbundnum skilmálum og gjaldi. „Flestir okk­ ar viðskiptavinir notast við efn­ isveituna Netflix en á sama tíma finnum við fyrir auknum áhuga á HuluPlus,“ segir Davíð Bachmann Jóhannesson, einn forsvarsmanna Flix, í svari við fyrirspurn DV. SMÁÍS tilkynnti nýverið um þær fyrirætlanir sínar að kæra starfsemi Flix og fjarskiptafélags­ ins Tals sem býður viðskiptavin­ um sínum upp á sams konar þjón­ ustu. Davíð segist ekki hafa fengið neinar tilkynningar frá yfirvöldum vegna kæru samtakanna. Hann segir hins vegar að lögfræðingur Flix hafi farið fram á afsökunar­ beiðni frá Snæbirni Steingríms­ syni, framkvæmdastjóra SMÁÍS, vegna ummæla um að þjónustan sem Flix og Tal veiti sé ólögleg. Lægstu laun hækki um 20.000 Forystumenn Starfsgreinasam­ bandsins settu launakröfur sínar fram á fundi með Samtökum at­ vinnulífsins á mánudaginn. Ger­ ir sambandið meðal annars þá kröfu að lægsti taxti í launatöflu hækki um 20.000 krónur á samn­ ingstímanum og aðrir launaflokk­ ar taki breytingum miðað við endurskoðun töflunnar. Þá vill sambandið að bætt verði við nýju starfsaldursþrepi og að miðað verði við starfsgrein en ekki starfs­ aldur hjá sama fyrirtæki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.