Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 8.–10. nóvember 2013 F jórtán nefndir, starfshópar, verkefnastjórnir og teymi hafa verið mynduð frá kosn­ ingum til að reyna að finna lausnir og leiðir til að fella niður hluta verðtryggðra skulda einstaklinga og bæta stöðu heimila í landinu. Þetta kom fram í munn­ legri skýrslu sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti á Alþingi fimmtudag. Þar fór hann yfir hvað hefði verið gert í kjölfar þingsályktunar um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Ís­ landi sem samþykkt var á sumar­ þingi. Loforðið um niðurfærslu höfuð­ stóls verðtryggðra húsnæðislána og afnám verðtryggingarinnar voru stærstu kosningaloforð Sigmund­ ar Davíðs og Framsóknarflokks­ ins og algjör grunnforsenda mynd­ unar nýrrar ríkisstjórnar eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum. Ríkis stjórnin hefur hins vegar ekki verið samstíga um hvað nákvæm­ lega eigi að gera. Hefur stjórnar­ andstaðan meðal annars gagnrýnt ósamræmi í málflutningi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Sigmundar Davíðs. Lofaði engum nefndum Fyrir kosningar lofaði Bjarni félög­ um sínum í flokknum og um leið kjósendum að það ætti ekki að stofna nefndir heldur ráðast í að­ gerðir í þágu heimilanna. „Engar nefndir, enga starfshópa, engar taf­ ir, aðeins aðgerðir í þágu heimil­ anna,“ lofaði Bjarni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar síðast­ liðnum þar sem flokkurinn lagði línurnar fyrir kosningarnar sem þá voru framundan. Við þetta uppskar Bjarni mikinn fögnuð fundargesta. Á sama fundi náðist ekki samstaða um að flokkurinn setti niðurfell­ ingu skulda á oddinn en samþykkt var að leggja fram lyklafrumvarp á komandi þingi. Nefndirnar eru hins vegar í sam­ ræmi við kosningaloforð Fram­ sóknarflokksins sem lofaði því að stofna nefnd til að finna leiðir til að framkvæma loforðin um skulda­ niðurfellingu. Erfitt var þó að skilja af því loforði að nefndarflaumurinn yrði jafn mikill og raunin er orðin. Í stjórnarsáttmálanum komu fram fyrstu vísbendingarnar um hversu margar nefndir ríkisstjórnin ætlaði að setja á fót – minnst sex nefndir. Sérfræðingarnir skipuðu sjálfir fjórar nefndir Fyrst ber að nefna sérfræðingahóp sem skipaður var í ágúst undir for­ mennsku Sigurðar Hannessonar sem vinnur að tillögum um út­ færslu á höfuðstólslækkun verð­ tryggðra húsnæðislána. Sá hópur hefur síðan skipað fjóra undirhópa sem hver skoðar tiltekin mál. Einn hópurinn undirbýr tillögur um framkvæmd leiðréttingarinnar, annar um stofnun leiðréttingar­ sjóðs, enn annar fjallar um notkun skattkerfisins til að ná fram mark­ miðunum og fjórði hópurinn tekur fyrir hvata til að skuldbreyta lánum í óverðtryggð. Framsókn lofaði líka að afnema verðtryggingu sem hluta af aðgerð­ um í þágu heimilanna. Í samræmi við það var skipaður sérstakur sér­ fræðingahópur. Fjármála­ og efna­ hagsráðuneytið skipaði svo starfs­ hóp til að fjalla um greinargerð sem unnin var í ráðuneytinu um möguleika á því að leggja gjald á fjármálafyrirtæki vegna umtals­ verðra tafa á endurútreikningi lána. Fjölmennur samvinnuhópur Búið er að skipa svo sérstakan vinnuhóp sérfræðinga í velferðar­ ráðuneytinu og innanríkisráðu­ neytinu sem kannar hvernig gera megi yfirskuldsettum íbúðar­ eigendum kleift að losna undan eftirstöðvum lána sem veðið sjálft stendur ekki undir. Þess fyrir utan er búið að skipa sjö manna verk­ efnastjórn sem fjallar um fram­ tíðarskipulag húsnæðismála og 32 manna samvinnuhóp um sama málefni. Fjögur teymi starfa svo á vegum samvinnuhópsins sem greina álitaefni og móta tilögur um fyrirkomulag fjármögnunar almennra húsnæðislána hér á landi, uppbyggingu á virkum leigu­ markaði, skilvirk félagsleg úrræði í húsnæðismálum og hvert hlutverk stjórnvalda við veitingu þjónustu í almannaþágu á húsnæðislána­ markaði er. Óljóst hversu margir eru í nefndunum Ekki er hægt að segja nákvæmlega hversu margir eru í nefndunum en samkvæmt þeim upplýsing­ um sem þó liggja fyrir má gera ráð fyrir því að nefndarmenn séu hátt í 60 talsins. Sjö nefndarmenn eru í sérfræðingahópnum um höfuð­ stólslækkun sem og í nefnd um afnám verðtryggingar af neytenda­ lánum. Sjö starfa svo líka í verk­ efnastjórn um framtíðarskipan húsnæðismála. Þá eru fimm í nefnd sem skoðar möguleika á gjaldi á fjármálafyrirtæki vegna tafa á endurútreikningi lána. Langflest­ ir eru samráðshópi um framtíðar­ skipan húsnæðismála eða 32. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu margir eru í hinum hópunum eða teymunum níu. Liggur bráðum fyrir Ekki er langt þangað til megintillög­ ur um hvernig á að ná skuldaniður­ fellingunni fram liggja fyrir. Reikn­ að er með að nefndin sem hefur það verkefni að útfæra mismunandi leiðir til að ná fram markmiðinu skili tillögum sínum á næstu tveim­ ur vikum. Það er þó talsvert seinna en lesa mátti úr orðum Sigmundar Davíðs á Facebook í aðdraganda kosninga. „Til að það sé á hreinu kemur leiðrétting skulda fram strax, en áhrifin af leiðréttingunni koma inn í efnahagskerfið á löng­ um tíma, sem er æskilegt. Þetta er ekki flókið,“ sagði hann á Facebook­ síðu sinni. Þó að tillögurnar liggi fyrir fljót­ lega er alls óvíst hvenær „strax“ er. Meðal aðgerða sem ráðist hefur verið í vegna undirbúnings fyrir­ hugaðra skuldaniðurfellinga og að­ gerða í þágu skuldsettra heimila er umfangsmikil gagnaöflun og grein­ ing Hagstofunnar á skuldum land­ ans. Frumvarp sem heimilaði þessa miklu, og umdeildu, gagnaöflun var samþykkt í september en Hag­ stofan sjálf telur að gögnin liggi ekki fyrir fyrr en á næsta ári. Gera má því ráð fyrir að heimilin þurfi að bíða í nokkra mánuði í viðbót. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Framtíðarlausn Nefndirnar skoða sumar hverjar lausnir á húsnæðis- málum til framtíðar. Mynd Sigtryggur Ari „Sá hópur hefur síðan skipað fjóra undirhópa sem hver skoðar tiltekin mál Lofaði Sigmundur Davíð lofaði kjósendum skuldaniðurfellingum í kosningabaráttunni. Nú leita margar nefndir að leiðum til að standa við það og bæta stöðuna á húsnæð- ismarkaði til frambúðar. Engar nefndir Bjarni fór mikinn í ræðu á landsfundi Sjálfstæðismanna fyrir kosningar og lofaði að ekki væru skipaðar nefndir um mál heldur ráðist í aðgerðir. Mynd Sigtryggur Ari Fóru ránshendi um Færeyjar Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á fimmtudag par á þrítugsaldri í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa hnuplað úr verslunum í Færeyjum. Þrátt fyrir að rannsókn málsins hafi lokið fyrir þremur árum var ákæra ekki birt fólkinu fyrr en í september síðastliðnum. Því var ákveðið að skilorðsbinda fangelsisdóminn. Fólkið stundaði umfangsmik­ inn þjófnað úr tveimur verslunum í Færeyjum. Í versluninni VB í Vágur tóku þau, ófrjálsri hendi, Dolce & Gabbana­sólgleraugu, Sony Ericsson­farsíma og Pana­ sonic­myndavél, sem og hár­ snyrtivörur. Þá fóru þau í TB­hús­ ið í Tvøroyri og tóku annan síma, myndavél og ballerínuskó. Verð­ mæti þýfisins er 1,3 milljónir ís­ lenskra króna. Fólkið vildi ekki skipaðan verjanda, heldur játaði sök. Þau sögðust hafa verið í mik­ illi neyslu á þessum tíma. Þau höfðu skilað þýfinu og voru kom­ in á beinni braut í lífinu. Hún er í barneignarleyfi, en hann í fastri vinnu. 40 prósent treysta Mat- vælastofnun Þrjátíu og níu prósent lands­ manna bera frekar mikið eða mjög mikið traust til Matvæla­ stofnunar en fimmtán prósent bera frekar eða mjög lítið traust til stofnunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Matvælastofnun sendi frá sér og er vísað í niðurstöður viðhorfskönnunar sem Félags­ vísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi um traust almenn­ ings til stofnunarinnar. Tekið var 1.511 manna lag­ skipt tilviljunarúrtak úr netpanel Félagsvísindastofnunar. Úrtak­ ið var lagskipt eftir kyni, aldri og búsetu til þess að það endur­ speglaði sem best samsetn­ ingu landsmanna. Gagnaöflun hófst 3. október 2013 og lauk 16. október 2013. Alls svöruðu 979 og er svarhlutfall 65%. 46% svar­ enda sögðust hvorki bera mikið né lítið traust til stofnunarinnar. Reyna að uppfylla loforð Framsóknar n Fjölmargar nefndir og teymi hafa verið mynduð frá kosningum í vor Eitt ár í gæslu- varðhaldi Lögreglan í Tékklandi hefur fengið vikufrest til að ákæra tvær íslenskar stúlkur sem hafa sætt gæsluvarðhaldi þar í landi í eitt ár fyrir fíkniefnasmygl. RÚV greinir frá þessu, en þar kemur fram að ekki megi halda fólki lengur en ár í fangelsi í Tékklandi án ákæru. Sem kunnugt er voru stúlkurnar handteknar í nóvember í fyrra. Þær eru nítján ára og voru með um átta kíló af kókaíni í fór­ um sínum. Þær voru að koma frá München en þangað komu þær frá Brasilíu. Stelpurnar hafa í dag setið í fangelsi í eitt ár, en hafa ekki verið ákærðar. Aðeins má halda þeim í ár, en eftir að ákæra er gefinn út má halda þeim í tvö ár, þar til dóm­ ur fellur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.