Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Qupperneq 35
Pilsklæddi skrattinn n Irina fannst sopinn góður n Drykkja hennar kostaði 17 ekkjur líftóruna Skrýtið 35Helgarblað 8.–10. nóvember 2013 Þ etta er auma tilveran, hugs- aði Irina Gaidamachuk, 41 árs, tveggja barna móðir, þar sem hún sat á heimili sínu í Krasnovfimsk, afskekktum bæ á Úral-svæðinu í Rússlandi. Irina hafði fæðst í bænum Nyagan í Vestur-Síberíu árið 1972 en flutt til Krasnovfimsk snemma á tí- unda áratug 20. aldar. Þar hafði hún kynnst manni og eignast með hon- um áðurnefnd tvö börn. Árið var 2002 og Irinu þyrsti í vodka, einu sinni sem oftar, en ekki var útlit fyrir að hún fengi svalað þeim þorsta sínum því eiginmað- ur hennar, Júrí, harðneitaði að láta hana fá pening af ótta við að hún eyddi honum í einmitt áfengi og í ljós átti eftir að koma að sá ótti var ekki tilkominn að ástæðulausu. Nú voru góð ráð dýr og Irina ákvað að verða sér úti um skotsilfur sjálf – með sínu lagi. Hefst handa Undir formerkjum félagslegrar að- stoðar hófst Irina handa. Fyrsta fórnarlambið, öldruð kona, hrökk upp þegar hún heyrði bankað á for- stofuhurðina. Það birti yfir henni; þetta myndi vera konan frá félags- legu aðstoðinni. Hún opnaði dyrnar og mikið rétt, það var sem hana hafði grunað. „Góðan dag,“ sagði konan frá fé- lagslegu aðstoðinni, „manstu eftir mér?“ Gamla konan fékk ekki tæki- færi til að svara því Irina dró öxi upp úr pússi sínu og lét hana vaða í höfuð gömlu konunnar. Irina klofaði yfir lík konunn- ar, lokaði dyrunum og hófst síðan handa við að rannsaka íbúðina hátt og lágt í leit að peningum – vodka skyldi hún fá. Aldraðar ekkjur Þessi atburðarás átti eftir að endur- taka sig að minnsta kosti 16 sinn- um næstu átta árin. Aldraðar ekkj- ur, á aldrinum 60–90 ára, áttu eftir að opna dyrnar fyrir fláráðri konu frá félagslegu aðstoðinni og enda sem liðin lík með öxi í höfðinu í forstofu íbúða sinna – ekki alveg sú aðstoð sem ekkjurnar áttu von á. Merkilegt nokk þá framdi Irina fyrstu átta morðin í sömu götunni – Ukhtomski-stræti (fyrir þá sem kannski þekkja til í Krasnovfimsk) – þar sem fjöldi aldraðra og snauðra bjuggu og gera væntanlega enn. Í híbýlum fórnarlambanna var ekki um auðugan garð að gresja en með nákvæmri yfirferð tókst Ir- inu að komast yfir fátæklegt sparifé fólksins. Útilokuðu konu Í árslok 2003 var lögreglan enn ráð- þrota í rannsókn málsins en hafði, í ljósi villimennskunnar sem ein- kenndi áverka fyrstu átta fórn- arlambanna, útilokað að kona gæti verið morðinginn. Það gerði lög- reglan þrátt fyrir vitnisburð þess efn- is að smávaxin, ljóshærð kona hefði sést á vettvangi einhverra morð- anna. Aðeins karlmaður var fær um að beita því afli sem þurfti til að nán- ast kljúfa ekkjurnar í herðar niður, sagði lögreglan. Sólarhringsvakt var sett á Ukhtomski-stræti og þegar húmaði að kveldi læstu íbúar við götuna dyr- um íbúða sinna og tryggðu sem best þeir gátu að enginn óboðinn kæm- ist inn. En Irina lét ekkert slíkt aftra sér – Bakkus stýrði gerðum hennar og vodka skyldi Irina fá. Átök í Ukhtomski-stræti Í desemberlok 2003, þegar Krasnovfimsk var í greipum frosts og sveipaður hvítri mjöll, beið Bil- binur Makshaeva, sjötug ekkja, kon- unnar frá félagsaðstoðinni. Bilbin- ur, sem bjó við Ukhtomski-stræti, var létt í sinni því hún hafði fengið orðsendingu fyrr um daginn frá fé- lagsaðstoðinni þar sem sagði að litið yrði til hennar þetta kvöld og jafn- vel rætt að fjárstyrkur til hennar yrði hækkaður. Því voru morðin sem framin höfðu verið í götunni Bilbinur ekki ofarlega í sinni og þegar hún heyrði bankað á hurðina beið hún ekki boðanna og rauk til dyra. Þar mætti henni kona nokkur vopnuð öxi en Bilbinur snerist á hæli með þeim af- leiðingum að hún fékk axarblaðið í öxlina. Axarskaft Irinu Þrátt fyrir slæma áverka reyndi Bil- binur að komast undan og gaf frá sér hátt öskur. Irina hugðist ekki gefa eftir og um stund tókust þær á – háöldruð ekkja og vodkaþyrst ill- kvendi í vígahug. En Bilbinur var enginn aukvisi heldur hörkukvendi sem þekkti vel til erfiðisvinnu sveitafólks og þrátt fyrir að vera óvopnuð snerist hún til varnar. Með berum hnefum og spörkum tókst Bilbinur á við Irinu sem sló til hennar með öxinni og náði að særa hana enn frekar. En öskur Bilbinur bárust nú nán- ast enda á milli í Ukhtomski-stræti og brátt dreif að nágranna hennar og brátt sá Irina þann kost vænstan að láta sig hverfa. Nýjar veiðilendur Bilbinur gaf lögreglu lýsingu á ax- armorðingjanum; ljóshærð kona með mongólskt yfirbragð. Lög- reglan efaðist enn um að um konu gæti verið að ræða – fyrir utan það að mongólskt fólk er ekki ljóshært. Engu að síður var gerð teikning sem dreift var um Krasnovfimsk og í kjölfarið færðist ró yfir bæinn. En í reynd hafði Irina, sem þegar þar var komið sögu var nefnd „pils- klæddi skrattinn“, aðeins fært sig um set og næstu árin féllu átta ekkj- ur fyrir hendi axarkvendisins, sem vann trúnað þeirra sem hjálpsamur starfsmaður félagsþjónustunnar. Þessar átta ekkjur bjuggu í þorpum vítt og breytt í dölunum í kring. Vegna þess hve langt var á milli morðstaða og óreglu í tíðni morð- anna var erfitt fyrir lögregluna að hafa hendur í hári morðingjans. Maílok 2010 Eins og oft er raunin þá þarf ekki nema ein mistök, eða tilviljun, til að morðingi náist. Þannig var mál með vexti að í lok maí, 2010, var áttræð ekkja, Anastasía, á heimleið eftir að hafa keypt nauðsynjar hjá kaup- manninum á horninu í heimaþorpi sínu. Hitti hún þá afar brosmilda, ljós- hærða konu sem bauðst til að hjálpa henni. „Ég er frá félagsaðstoðinni,“ sagði konan við Anastasíu. Það hnussaði í Anastasíu við þau tíðindi: Ég hef til fjölda ára reynt að fá styrk, en ekki gengið. Peningarnir virðast enda hjá röngu fólki.“ Irina sagðist mundu athuga hvað hún gæti gert og á meðan þær spjölluðu komst hún að því sem hún þurfti; Anastasía bjó ein, son- ur hennar heimsótti hana eingöngu um helgar. Irina mælti sér því mót við Anastasíu mánudaginn 7. júní og sýndist Anastasíu að nú myndi jafn- vel vænkast hagur strympu. Afdrifarík tilviljun Mánudagurinn rann upp og síð- ar átti eftir að koma í ljós að lán- ið lék við Anastasíu. Sonur hennar, Dimitrí, hafði verið sendur í verslun- arleiðangur í vinnunni og ákvað að líta við hjá múttu í leiðinni. Anastasía var að vonum himin- lifandi að sjá drenginn sinn og taldi hann á að fá sér hádegisverð. Til- viljun réð því að það var sonur Anastasíu sem fór til dyra þegar Ir- ina bankaði upp á. Ekki er gott að segja hvort var meira hissa, Dimitrí eða Irina með öxina reidda, þegar dyrnar opnuð- ust. Hvað sem því líður þá lagði Ir- ina á flótta en Dimitrí harðlæsti dyrunum og hafði samband við lög- regluna. Hálftíma síðar sá lögreglan konu sem hegðaði sér helst undarlega og tók hana tali. Í tösku hennar fannst öxi og ljós hárkolla. Án frekari málalenginga skal það upplýst að Irina fékk 20 ára fangels- isdóm þann 12. júní 2012 og þess má geta að afrakstur 17 morða á rúm- lega átta ára tímabili samsvarar um 150.000 íslenskra króna á núvirði. n Irina Gaidamachuk Komst upp með óhæfu- verk sín í rúm átta ár. Á vettvangi Vodkaþyrsta morðkvendið sýnir lögreglu vinnubrögðin. „Irina klofaði yfir lík konunnar, lokaði dyr- unum og hófst síðan handa við að rannsaka íbúðina hátt og lágt í leit að peningum Eista til söluBandaríkjamaðurinn Mark Parisi er, að eigin sögn, svo nískur að hann er reiðubúinn að selja ann- að eista sitt fyrir þrjátíu og fimm þúsund dollara – tæpar fjór- ar milljónir króna. Hann segist ósmeykur við aðgerðina þar sem aðeins annað eistað sé til sölu og hann muni fá gervieista í stað þess gamla. Parisi, sem starfar sem markaðsmaður og hefur ágætis tekjur af, segist hafa haft búbót af því að taka þátt í lækna- rannsóknum síðastliðin ár. Hann telur að í gegnum árin hafi hann grætt milljónir vegna slíkra rann- sókna. Járnsjeikinn skorar borgar- stjóra á hólm Glímukappinn Járnsjeikinn hef- ur skorað á Rob Ford, borgar- stjóra Toronto, að keppa við sig í sjómanni. Ford, sem hefur ver- ið heldur umdeildur í valdatíð sinni, viðurkenndi í vikunni að hafa reykt krakk. „Það sem ég vil vita er hvort hann sé sannur karlmaður eður ei,“ sagði áttræð- ur glímukappinn sem átti sínar bestu stundir á níunda áratug seinustu aldar. Sjeikinn bætti því við að ef hann hefði tækifæri myndi hann tvímælalaust snúa borgarstjórann niður, en þess má geta að Járnsjeikinn er bund- inn við hjólastól. Ford hefur ekki svarað áskoruninni enn. Leit að Stórfæti endar illa Leit að Stórfæti (e. Bigfoot) end- aði með harmleik í Oklahoma í Bandaríkjunum síðastliðna helgi þegar rúmlega tvítugur mað- ur skaut félaga sinn í bakið, sem hann taldi vera hið alræmda skrímsli. Að sögn höfðu þeir skipt liði til að auka líkur á því að finna ókindina. Eftir nokkurn tíma taldi skyttan sig hafa Stór- fót í miðinu og hleypti af. Veiði- félaginn sem varð fyrir skottinu komst lífs af en skyttan hefur verið ákærð fyrir gáleysislega meðhöndlun á skotvopni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.