Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Blaðsíða 37
Á
rið 1986 voru Bandaríkin að
nálgast hátind valda sinna.
Þau höfðu jafnað sig eftir
áfallið í Víetnam, Gorbat-
sjoff kom í Höfða að gefast
upp fyrir Reagan og ári áður hafði
Rocky rotað Ivan Drago í bíó. Aðeins
fjórum árum síðar höfðu Sovétrík-
in hrunið til grunna og Bandaríkin
virtust allsráðandi. En í Kanada var
kvikmyndagerðarmaður á miðjum
aldri þegar farinn að spá fyrir um
hnignun þeirra.
Denys Arcand hafði fyrst vakið
athygli fyrir heimildamyndir, sem
gagnrýndu aðbúnað vinnandi fólks.
The Decline of the American Emp-
ire var fyrsta leikna mynd hans og
viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Myndin varð sú vinsælasta í sögu
Kanada og var tilnefnd til ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
mynd.
Þrátt fyrir að titillinn gefi ann-
að í skyn fjallar myndin fyrst og
fremst um samskipti kynjanna.
Fjórir karlmenn og fjórar konur,
öll sagnfræðikennarar, ræða ásta-
mál sín, fyrst í sitt hvoru lagi og síð-
an saman. Ýmis legt kemur í ljós og
ekki öll hjónaböndin lifa nóttina af.
En hvers vegna ber myndin þennan
stóra og mikla titil, fyrst hún er fyrst
og fremst ástardrama?
Ástamál Kennedys og Clintons
„Sagan er aðeins spurning um töl-
ur,“ segir ein persónanna í upphafi
myndarinnar. Hinir miklu yfirburð-
ir Vesturlanda almennt og Banda-
ríkjanna sérstaklega geta ekki staðið
til lengdar þegar hinar fjölmennari
þjóðir Asíu fara að tileinka sér nú-
tímatækni. Því er fall bandaríska
heimsveldisins varla mikið ann-
að en leiðrétting á óeðlilegu, og í
sögulegum skilningi skammvinnu,
ástandi.
Hvers vegna einbeitir Arcand sér
þá fyrst og fremst að ástamálunum
fyrst honum er svona mikið niðri
fyrir. Jú, þetta er einmitt það sem
siðmenning okkar gerir og þykir
táknrænt fyrir ástandið. Enginn
veit í raun hvers vegna Rómaveldi
féll, en við vitum að Sesar svaf hjá
Kleópötru og Caligula hjá systur
sinni á þeim tíma þegar lýðveldið
var að líða undir lok. Þegar Banda-
ríkin voru enn rísandi heimsveldi
hélt John F. Kennedy reglulega
framhjá konu sinni, en hvorki póli-
tískum andstæðingum né fjölmiðl-
um tímabilsins datt í hug að gera
sér mat úr þessu. Rúmum þrem
áratugum síðar varð stjórnmála-
umræðan hins vegar heltekin af því
að Bill Clinton hefði haldið fram-
hjá. Á tímum hnignunar færum við
okkur frá hinu pólitíska og yfir í hið
persónulega.
Frjálsar ástir eða frjáls verslun?
Árið 2003 gerði Arcand framhalds-
mynd sem nefndist The Barbarian
Invasions sem var ekki síður vel
tekið, vann sesarinn í Frakklandi og
var fyrsta fransk-kanadíska myndin
til að vinna óskarsverðlaun. Hún
var sýnd hér á degi franskrar tungu
árið 2004. Myndin tekur upp þráð-
inn 17 árum síðar og persónur fyrri
myndarinnar, sem þá voru mið-
aldra, eru hér farnar að reskjast
mjög. Ein þeirra, Remý, liggur við
dauðans dyr sökum krabbameins.
Arcand sýnir okkur að margt sem
hann hafði áður spáð fyrir um sé nú
að rætast. Remý sér tvíburaturnana
hrynja í sjónvarpi á dánarbeði sín-
um og líklega er þetta sú barbara-
innrás sem vísað er til og hlýtur að
fylgja hnignun heimsveldis. Róm
sjálf var brennd árið 410 af Vísi-
gotum, rúmri hálfri öld áður en
veldið leið endanlega undir lok.
Remý situr uppi einn og yfirgef-
inn, hjónabönd hans fóru í vaskinn
sökum framhjáhalds og sonur hans
vinnur hjá vogunarsjóði. Börn
hinna vinstrisinnuðu mennta-
manna virðast hafa meiri áhuga á
frjálsri verslun en frjálsum ástum.
Enn verra er að hann var of upp-
tekinn af að eltast við ástkonur sín-
ar til að skrifa bók eða vinna raun-
verulegar rannsóknir. Remý finnst
því sem hann hafi skilið lítið eftir
sig þegar gömlu vinirnir úr fyrri
myndinni hittast loks til að kveðja
hann.
Síðasti söngur
68-kynslóðarinnar
Hnignunin og fallið eru því ekki síð-
ur hnignun og fall 68-kynslóðarinn-
ar sem Arcand sjálfur tilheyrir. Árið
1986 eru upparnir í þann mund að
taka yfir heiminn á meðan gömlu
hipparnir eru enn uppteknir af að
sofa hjá. Árið 2003 hafa fjármála-
mennirnir endanlega tekið yfir,
og eina leiðin til þess að Remý fái
alvöru læknisþjónustu er með því
að sonur hans borgi fyrir hann.
Hingað til hafa aðeins tveir for-
setar Bandaríkjanna tilheyrt þessari
kynslóð og koma frá sitthvorum
armi hennar. Bill Clinton skoraðist
undan herskyldu og reykti hass á
yngri árum en forsetatíð hans var
mjög mörkuð af kynlífshneyksli.
Bush yngri gerði síðustu tilraun til
að þenja heimsveldið út með stríðs-
rekstri sínum, en báðir trúðu þeir
á frjálst flæði fjármagns. Þeirri trú
tókst ekki að bjarga heimsveldinu,
ekki frekar en hin nýja trú sinna
tíma, kristninni, tókst að bjarga
Rómaveldi, þó trúin hafi reyndar
lifað lengur en keisararnir.
Myndin The Decline of the
American Empire verður sýnd í Bíó
Paradís laugardaginn 9. nóvember
kl. 18. n
Menning 37Helgarblað 8.–10. nóvember 2013
„Allt í lagi að kíkja á hana“
Pollock
Leikstjóri: Hilmar Snær
Guðnason
„Leiksýning sem flýgur hátt“
Hús
Bernhörðu Alba
Leikstjóri:
Kristín Jóhannesdóttir
„Einstaklega ánægjulegt að
fylgjast með barnaskaranum“
Óvitar
Leikstjóri: Gunnar Helgason
Sofið hjá meðan
Bandaríkin hrynja
n Frá hinu pólitíska og yfir í hið persónulega
Kvikmyndir
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Upparnir tóku yfir heiminn Árið 1986
eru upparnir í þann mund að taka yfir
heiminn á meðan gömlu hipparnir eru enn
uppteknir af að sofa hjá. Árið 2003 hafa
fjármálamennirnir endanlega tekið yfir.
„Börn hinna
vinstrisinnuðu
menntamanna virðast
hafa meiri áhuga á frjálsri
verslun en frjálsum ástum.
Sleppir öllum hömlum
n Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýninguna Sköpunarverk á föstudaginn í Listasafni Íslands
til kynsystra sinna með því að
nota garn og striga. „Það hef-
ur verið gert svo lítið úr hann-
yrðum kvenna, það hefur verið
álitið dundur og ég sé fyrir mér
bogið bak. Klukkustrengir voru
svona hógvært bil á milli hurða,
skreyttir fuglum og blómum.
Myndefni mitt hefði ekki þótt við
hæfi. Ég er svolítið að kalla fram
þetta hógværa handverk kvenna
í verkum mínum.“
Kristín hefur fengið nóg af
kjamsi á líkama kvenna og sú
beitta ádeila skilar sér sannar-
lega á sýningunni. Hún segir
karlmenn lengi vel hafa átt við-
fangsefnið kvenmaður og þá
hefð styðji klámvæðingin. „Út-
lits- og æskudýrkun samtímans
er þarft viðfangsefni, ekki síst þar
sem konur taka þátt sjálfar. Það
er ekki hægt að flýja sjálfan sig,
það er kannski inntakið.“
Í nóvember og desember
verður Kristín með leiðsögn um
sýninguna og á undan því verður
sýnd heimildamynd sem Guð-
bergur Davíðsson og Hákon Már
Oddsson hafa gert um Kristínu
og listheim hennar. Myndin, sem
sýnd verður í Ríkissjónvarpinu í
janúar, er ein af fjórum um ís-
lenska myndlistarmenn. n
Heimsókn á vinnustofuna Blaðamaður heimsótti Kristínu á vinnustofuna fyrir
ári og þá var eitt aðalverka sýningarinnar í vinnslu eins og hér sést. Mynd EyþÓr ÁrnASon