Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1959, Blaðsíða 18
16
Sem rimfn um það, hve misháar tekjur manna í einstökum sveitarfélögum eru, má geta þess,
að meðalnettótekjur á íbúa 1952 samkvæmt skattskrám 1953 voru 13.600 kr. í Reykjavík og
11.500 kr. á Akureyri, en 7.400 á Olafsfirði, 8.800 á Húsavík, 9.500 kr. á Sauðárkróki
og 9.900 þús. á Siglufirði. Þessir 4 kaupstaðir eru taldir hafa lægstar tekjur á íbúa
1952, og þeir eru jafnframt með lægst útsvar á íbúa samkvæmt yfirliti B. I sýslum eru
la3gstar tekjur á íbúa 1952 samkvæmt skattskrám 1953 í Dalasýslu (6,600 kr.), Stranda-
sýslu (6.600 kr.), Skagafjarðarsýslu (6.700 kr.), N-Pingeyjarsýslu (6.500 kr.) og N-
Múlasýslu (6.400 kr.). I yfirliti B eru þessar sýslur allar með lægra útsvar á íbúa
en meðaltalið. Þess er að gæta í þessu sambandi, að ákveðinn miBmunur á meðaltekjum á
íbúa milli sveitarfélaga leiðir til tiltölulega miklu meiri mismunar á útsvarstekjum
miðað við sama álagningarstiga, vegna þess að útsvör eru stighækkandi á tekjur. Og jafn-
vel þótt um sé að ræða líkar tekjur á íbúa í tveimur sveitarfélögum, getur tekjuþörf ann-
ars þeirra verið meiri en hins vegna víðtækari þjónustu í þágu íbúanna, eins og áður
segir. Ymis önnur atriði skipta máli í þessu sambandi, en þau verða ekki rakin frekar
hér.
Til skýringar því, hvað felst í tölum hvers dálks i yfirliti B, vísast til töflu
IV í þessu hefti. Að öðru leyti þarfnast yfirlitið ekki frekari skýringa.