Fréttablaðið - 12.01.2015, Blaðsíða 4
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
advania.is/vinnufelagar
Hafðu samband í síma 440 9010
eða í tölvupósti á sala@advania.is
* Tilboð gilda til 31.01.2015 eða á meðan birgðir endast.
á nýju ári
Nýjar vélar
JANÚAR
TILBOÐ*
STJÓRNSÝSLA Enn liggur ekkert
fyrir um það hvenær Eygló Harð-
ardóttir, félags- og húsnæðismála-
ráðherra, kynnir ný þingmál um
endurbætur á húsnæðiskerfinu.
Sigurður Erlingsson, forstjóri
Íbúða lánasjóðs, sagði við Frétta-
blaðið á dögunum að óvissan um
framtíð sjóðsins yki á vanda hans.
„Ég vona sem fyrst. Þetta eru
nokkuð fjölbreytt mál og mörg.
Hér er ekki um að ræða eitt frum-
varp. Þetta snýr ekki bara að
einum þætti húsnæðiskerfisins,
heldur koma þarna fram mjög víð-
tækar tillögur sem snúa að nokkr-
um lagabálkum,“ segir Eygló.
Hún segir að stefnt sé á að þessi
mál verði kynnt vorþinginu. Meg-
ináherslan sé lögð á að vinna þau
frumvörp sem voru kynnt á þing-
málaskránni. Þar er boðað frum-
varp til laga um húsnæðismál,
frumvarp til laga um húsnæðis-
samvinnufélög og frumvarp til
laga um breytingu á húsaleigu-
lögum.
Eygló segir að ráðuneytið hafi
leitað eftir nánu samstarfi við
Samband íslenskra sveitarfélaga
og sveitarfélögin og sé að viða að
sér upplýsingum um áform sveit-
arfélaga varðandi uppbyggingu
á félagslegu húsnæði fyrir fólk í
félagslegum eða fjárhagslegum
vanda. „Að við fáum upplýsingar
um það hver sé þörfin fyrir fatlað
fólk, fyrir aldraða og fyrir náms-
menn. Ríkið hefur stutt sveitar-
félögin eða viðkomandi félaga-
samtök sérstaklega varðandi
uppbyggingu fyrir þessa hópa. Það
má segja að fyrsta skrefið að því
hafi verið tekið þegar Reykjavík-
urborg samþykkti sína áætlun, um
hvað byggt yrði upp á næstu fimm
árum,“ segir Eygló.
Hún segir að tölur sem þessar
frá sveitarfélögunum hafi ekki
legið fyrir. „Og það er rétt að
fara með það fyrir þingið og þing-
ið mun þá samþykkja húsnæð-
isáætlun um uppbyggingu þegar
kemur að félagslegu húsnæði.
Síðan erum við með tillögur sem
snúa að breytingu á húsnæðisbóta-
kerfinu. Að jafna stuðninginn við
þá sem búa í ólíkum búsetuform-
um og ólíkum fjölskyldugerðum,“
segir Eygló. Hún minnir á tillög-
ur frá verkefnastjórn um framtíð
húsnæðismála að vaxta- og húsa-
leigubótakerfið verði því samein-
að í eitt.
Aðspurð hvort sú óvissa sem er
uppi um framtíð Íbúðalánasjóðs
auki á vanda hans, segist hún telja
að það hafi allir áhyggjur af stöðu
sjóðsins. Nú sé verið að vinna að
skýrum tillögum um framtíðar-
skipulag. „Við höfum líka að sama
skapi lagt áherslu á það við Íbúða-
lánasjóð að sjóðurinn sinni við-
skiptavinum eins vel og hann
mögulega getur og þar af leiðandi
að það fólk sem á í viðskiptum við
íbúðalánasjóð finni fyrir því að
sjóðurinn er að huga að því,“ segir
Eygló.
jonhakon@frettabladid.is
Safna upplýsingum um
þörf á félagslegu húsnæði
Ekki liggur fyrir hvenær þingmál um endurbætur á húsnæðiskerfinu verða kynnt almenningi. Áhersla lögð á
að bæta félagslega kerfið, sameina húsnæðisbótakerfið og vinna að framtíðarskipulagi húsnæðislána.
MEÐ ÞRJÚ ÞINGMÁL Í SMÍÐUM Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra ætlar að
leggja húsnæðismálaáætlun fyrir Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félagsmálaráðherra segir mikilvægt að hafa yfirsýn yfir uppbyggingu
félagslegra íbúða. Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands og Félagsstofnun
stúdenta undirrituðu viljayfirlýsingu rétt fyrir jól um byggingu 650 nýrra
stúdentaíbúða á háskólasvæðinu á næstu fimm árum. Háskóli Íslands
og Reykjavíkurborg munu vinna að því að skipuleggja háskólasvæðið og
koma fyrir allt að 400 stúdentaíbúðum til viðbótar við þær sem þegar eru
á svæðinu. Þá lýsir Reykjavíkurborg yfir vilja sínum til að úthluta lóðum og
byggingarrétti fyrir 250 stúdentaíbúðir á vegum Félagsstofnunar stúdenta
á öðrum þéttingarreitum nálægt miðborginni og Háskóla Íslands. Þá
samþykkti borgarráð í nóvember að heimila Félagsbústöðum að fjölga
félagslegum leiguíbúðum borgarinnar um 500 á næstu fimm árum, árin
2015–2019.
Uppbygging í Reykjavík
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
FROST Á FRÓNI. Þótt frosttölur lækki á landinu í dag verður áframhaldandi frost
næstu daga. Það má búast við nokkuð stífri norðanátt um tíma með éljum norðan- og
austanlands en björtu veðri syðra.
-1°
8
m/s
-3°
8
m/s
-4°
6
m/s
0°
6
m/s
Strekkingur
víða en
hvasst allra
vestast og
með SA-
ströndinni.
Strekkingur
með
ströndum
en hægari
vindur inn
til landsins.
Gildistími korta er um hádegi
3°
26°
-3°
10°
14°
3°
7°
7°
7°
21°
12°
17°
16°
15°
6°
7°
8°
7°
-5°
4
m/s
-1°
6
m/s
-2°
6
m/s
1°
9
m/s
-5°
6
m/s
-4°
10
m/s
-9°
8
m/s
-1°
-5°
-1°
-4°
-3°
-7°
-1°
-5°
-2°
-5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
Síðan erum við með
tillögur sem snúa að
breytingu á húsnæðisbóta-
kerfinu. Að jafna stuðn-
inginn við þá sem búa í
ólíkum búsetuformum og
ólíkum fjölskyldugerðum .
Eygló Harðardóttir,
húsnæðismálaráðherra.
107 karlar á Íslandi bera nafnið Níels sem fyrra
eiginnafn.
28 bera það sem annað eiginnafn.
Heimildir frá Þjóðskrá Íslands.
FJALLABYGGÐ Gunnar Birgisson,
fyrrverandi bæjarstjóri Kópa-
vogs og þingmaður SV-kjördæmis,
hefur verið ráðinn bæjarstjóri í
Fjallabyggð frá næstu mánaðar-
mótum. „Ég er mjög ánægð með
þessa ráðningu og tel þetta vera
bænum til hagsbóta,“ segir Sólrún
Júlíusdóttir, oddviti Framsóknar í
minnihluta sveitarstjórnarinnar.
Sigríður Guðrún Hauksdótt-
ir, oddviti Sjálfstæðisflokksins
í minnihlutanum, vildi ekki tjá
sig um málið þegar eftir því var
leitað en sagði ekkert samráð hafa
verið haft við minnihlutann. „Ég
las bara um þetta eins og flest-
allir landsmenn,“ sagði Sigríður
Guðrún. - sa
Nýr bæjarstjóri Fjallabyggðar:
Gunnar verður
bæjarstjóri
GUNNAR BIRGISSON nýráðinn bæjar-
stjóri Fjallabyggðar
AKUREYRI Íþróttaráð Akureyrar-
kaupstaðar samþykkti á síðasta
fundi sínum að hækka frístunda-
styrk ungmenna um tuttugu pró-
sent. Frístundastyrkurinn er því
12.000 krónur á árinu 2015.
Einnig var ákveðið að hækka
aldursviðmiðið um heil fjögur ár
og því geta öll börn á aldrinum
sex til sautján ára nýtt sér frí-
stundastyrkinn.
Frístundakort á Akureyri hefur
tíðkast frá árinu 2006 og var upp-
haflega aðeins fyrir börn á aldr-
inum sex til ellefu ára en var
hækkað í þrettán ár árið 2013. - sa
Styrkur og aldursbil stækka:
Frístundakort
hækkar um 20%
ÞÝSKALAND Kveikt var í ritstjórn-
arskrifstofum þýska dagblaðs-
ins Morgenpost í Hamborg um
helgina. Blaðið hafði endurbirt
myndir úr Charlie Hebdo.
Árásin varð til þess að áhyggj-
ur manna jukust af mótmælum í
Dresden þar sem íslam í landinu er
mótmælt. Þau mótmæli hafa farið
fram vikulega frá því í haust og er
óttast að átök geti brotist út vegna
þeirra.
Eftir að sautján manns féllu
fyrir hendi vígamanna í Frakk-
landi í síðustu viku hafa aftur
vaknað upp spurningar um örygg-
ismál á Vesturlöndunum.
„Ég hef miklar áhyggjur af því
að vel undirbúnir ódæðismenn,
eins og þeir í París, Brussel, Ástr-
alíu eða Kanada geti látið til skarar
skríða,“ sagði Thomas de Maiziere,
innanríkisráðherra Þýskalands, í
samtali við blaðið Bild am Sonntag
í gær. Hann segir að í Þýskalandi
séu um 260 múslimar sem séu tald-
ir hættulegir.
- jhh
Kveikt í ritstjórnarskrifstofum þýska dagblaðsins Morgenpost í Hamborg:
Áhyggjur af öryggi hafa aukist
ELDURINN SLÖKKTUR Slökkviliðs-
menn voru fljótir að húsinu sem hýsir
ritstjórnarskrifstofur Morgenpost í
Hamborg. NORDICPHOTOS/AFP
FJÖLMIÐLAR Ingi Freyr Vilhjálms-
son blaðamaður hefur sagt starfi
sínu lausu á DV. Bætist hann því
í hóp blaðamanna sem hafa hætt
störfum þar síðustu vikurnar.
Í desember tóku nýir eigendur
við stjórnartaumum á DV og réðu
til sín nýja ritstjóra, þá Eggert
Skúlason og Kolbrúnu Bergþórs-
dóttur.
Ingi hefur verið áberandi und-
anfarið og skrifaði bókina Ham-
skiptin, þegar allt verður falt á
Íslandi, sem kom út árið 2014. - sa
Fleiri blaðamenn segja upp:
Ingi Freyr segir
starfi sínu lausu
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
8
-E
D
9
8
1
7
E
8
-E
C
5
C
1
7
E
8
-E
B
2
0
1
7
E
8
-E
9
E
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K