Fréttablaðið - 12.01.2015, Blaðsíða 8
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Hrafnkell Á. Proppé
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
stendur fyrir fundaröð um þróun og mótun
borgarinnar með Hjálmari Sveinssyni, formanni
ráðsins. Fundunum er ætlað að víkka og dýpka
umræðu um skipulagsmál. Yfirskrift raðarinnar
er Heimkynni okkar, borgin.
Þriðjudaginn 13. janúar verður fundur með yfirskriftinni
„Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu?“.
Þar verður spurt hvort samkeppni sveitarfélaganna sé
góð, hver áhrif sameiningar yrðu á almenningssamgöngur,
stjórnsýslu og skipulags-, umhverfismál. Einnig verður
fjallað um hvað það myndi þýða fyrir ríki og landsbyggðina
ef 65% landsmanna tilheyrðu einu og sama sveitarfélagi.
Framsögu hafa, auk Hjálmars, þau Svandís Svavarsdóttir
alþingismaður, Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í
Mosfellsbæ og formaður Strætó bs. og Hrafnkell Á.
Proppé, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins.
Skemmtileg stemning mun skapast á kaffihúsinu
á Kjarvalsstöðum við Klambratún klukkan 20.00–21.30.
Allir velkomnir.
Svandís SvavarsdóttirHjálmar Sveinsson
Bryndís Haraldsdóttir
Á AÐ SAMEINA SVEITARFÉLÖGIN
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU?
1
5
-0
0
6
1
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
RENAULT MEGANE SPORT T.
Nýskr. 06/13, ekinn 55 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr. 142531.
KIA Sorento III EX
Nýskr. 07/13, ekinn 70 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.690 þús.
Rnr. 282258.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
BMW X5 xDrive
Nýskr. 01/12, ekinn 81 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 120533.
LAND ROVER FREELANDER 2S
Nýskr. 05/13, ekinn 18 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 6.590 þús.
Rnr. 102384.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 36 þús km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.990 þús.
Rnr. 142580.
HYUNDAI i20 CLASSIC
Nýskr. 06/13, ekinn 58 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr. 310108.
DACIA DUSTER 4x4
Nýskr. 04/13, ekinn 82 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.880 þús.
Rnr. 120499.
Frábært verð!
9.900 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
NÍGERÍA Voðaverk Boko Haram
halda áfram en talið er að yfir
2.000 manns hafi fallið í árásum
samtakanna í liðinni viku.
Nýjasta útspil þeirra hefur
vakið upp mikinn óhug. Á laugar-
dag varð markaður í borginni Mai-
duguri fyrir sjálfsmorðsspreng-
juárás en árásarmaðurinn var
tíu ára gömul stúlka. Vitni segja
að allar líkur séu á því að stúlkan
hafi ekki haft nokkra hugmynd um
hvað það var sem hún bar með sér
innan klæða. Yfir tuttugu létust og
fjöldi særðra er álíka. Vitað er að
samtökin hafi beitt konum sem þau
hafa rænt í þessum tilgangi áður
en kenningar eru uppi um að þær
séu neyddar til verksins.
Árásin var gerð strax í kjölfar
þess að íbúar fiskiþorpsins Baga
voru stráfelldir í miðri viku. Tölur
um mannfall hafa ekki fengist
staðfestar þar sem illa hefur geng-
ið að komast að bænum en talið er
að um 2.000 manns liggi í valnum.
Einn eftirlifenda heimsótti þorp-
ið, eða réttar sagt leifar þess, eftir
árásina. Hann hafi gengið gegnum
þorpið og nær alla leiðina hafi vart
verið þverfótað fyrir líkum. Íbúar
Baga voru um 10.000 en þeir sem
lifðu árásina af hafa lagt á flótta.
Óttast er að einhverjir þeirra
hafi flúið í átt að Tsjad-vatni og
drukknað þar í kjölfarið.
Bæði Baga og Maiduguri eru í
Borno, næststærsta héraði lands-
ins, í norðausturhluta Nígeríu við
Tsjad. Íbúar landsins eru um 175
milljónir en fimm milljónir búa
í Borno. Núna er stór hluti hér-
aðsins, álíka stór að flatarmáli
og Belgía, undir yfirráðum Boko
Haram. Að auki hafa samtökin
borgina Gulani og nærliggjandi
svæði í nágrannahéraðinu Yobe
undir sínum fæti.
Boko Haram eru súnní-íslömsk
samtök sem, líkt og ISIS, hafa
það að markmiði að koma á fót
Óttast að yfir 2.000
hafi fallið í vikunni
Liðsmenn Boko Haram lögðu fiskiþorp við Tsjad-vatn í rúst og stráfelldu íbúa þess.
Landsvæði á stærð við Belgíu í norðaustur Nígeríu er nú undir yfirráðum sam-
takanna. Nýjar árásaraðferðir hafa vakið mikinn óhug víða um veröldina.
2002 Stofnuð af Mohamed Yusuf til að skóla fólk í íslam.
2009 Liðsmenn hófust handa við að vígbúast.
2010 Í september réðust liðsmenn á fangelsi og frelsuðu 721 fanga.
2011 til 2013 Fjöldi sprengjuárása víðsvegar um landið. Fjöldi fallinna
nam hundruðum ef ekki þúsundum.
2014 Í apríl var ráðist á skóla í Chikbok og námu á brott um 300 stúlkur
námu við skólann. Í maí voru 336 almennir borgarar myrtir í bænum
Gamboru í Borno-héraði. Árásir héldu áfram um allt land allt árið.
2015 Yfir 2.000 látast er bærinn Baga er jafnaður við jörðu.
SAGA BOKO HARAM HREYFINGARINNAR
íslömsku ríki með sjaríalögum.
Fjöldi liðsmanna er á reiki en talið
er að minnst tíu þúsund manns
berjist fyrir þau nú en talan gæti
verið tvöfalt hærri. Liðsmenn eru
flestir frá Nígeríu en hluti þeirra
kemur frá nágrannaríkjunum
Tsjad, Níger og Kamerún.
Opinbert nafn samtakanna
myndi útleggjast á íslensku sem
„Fólk skuldbundið útbreiðslu
kenninga spámannsins og heil-
ögu stríði“ en styttra nafnið, Boko
Haram, þýðir að vestræn áhrif séu
bönnuð. Meðal þess sem felst í því
er að lýðræðislegar kosningar eru
úti í kuldanum sem og hvers kyns
vestrænn klæðnaður og menntun
sem ekki tengist íslam.
Boko Haram voru stofnuð árið
2002 af Mohammed Yousuf. Í upp-
hafi voru samtökin nokkuð friðsæl
en róttæk. Það breyttist árið 2009
er stofnandi þeirra lést og Abu-
bakar Shekau tók við. Árásir eru
komnar yfir sjötíu og hafa um sjö
þúsund manns fallið í þeim
. johannoli@frettabladid.is
Yfirráðasvæði Boko Haram
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
A
-6
9
C
8
1
7
E
A
-6
8
8
C
1
7
E
A
-6
7
5
0
1
7
E
A
-6
6
1
4
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K