Fréttablaðið - 12.01.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.01.2015, Blaðsíða 48
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 20 BAKÞANKAR Hauks Viðars Alfreðssonar EKKI FYRIR ALLA Kourtney Kardashian elskar fylgjutöflurnar sínar. „Þetta er hljómsveit sem var stofn- uð í gamni síðasta vor, þar sem mig langaði að syngja þessi lög sem ég hef samið í gegnum tíðina í kántrístíl,“ segir tónlistarmaður- inn Guðmundur Jónsson. Hann er líklega best þekktur sem aðallagahöfundur og gítar- leikari í Sálinni hans Jóns míns en hefur nú stofnað hljómsveit- ina Vestanáttina. „Ég hafði sam- band við góða félaga og við tókum nokkra tónleika í bænum á meðan við vorum að koma okkur í gang. Síðan gekk þetta svo vel að við ákváðum að búa til hljómsveit úr þessu og erum að koma með nýtt frumsamið efni,“ útskýrir Guð- mundur. Í upphafi voru þekkt lög sem hann hefur samið sett í kántríbún- ing og segir Guðmundur að nokk- ur Sálar lög hafi komið sérlega vel út í kántríbúningi. „Sálarlag- ið Gefðu mér, sem var á plötunni Hvar er draumurinn? og var samið þegar ég var 23 ára. kom mjög vel út í kántrístíl og var upphaflega samið þannig en við reyndum að poppa það upp með Sálinni á sínum tíma. Neistinn er líka gamall hund- ur sem fer vel í kántrístíl,“ segir Guðmundur, sem er alinn upp við kántrítónlist. Vestanáttin er að leggja loka- hönd á sína fyrstu breiðskífu og stefnir á útgáfu í vor. „Á henni er bara nýtt efni og frumsamið, lög og texti eftir mig. Ég og Alma Rut syngjum svo saman eða sitt í hvoru lagi,“ bætir Guðmundur við. Hann hefur gefið út þrjár sólóplöt- ur, fyrir utan allar Sálarplöturn- ar, ásamt því að vera í rokkhljóm- sveitinni Nykri. „Það er einhver þráhyggja og geðveiki að vera lagasmiður, ekki eru það peningarnir sem maður er að eltast við. Svona er bara að vera listamaður, þú ert alltaf með eitthvert lag sem þér finnst vera besta lagið, óunnið verk í hausn- um,“ segir Guðmundur spurður út í lagasmíðarnar. Gummi Jóns í Sálinni stofnar kántrísveit Hljómsveitin Vestanáttin er ný hljómsveit sem Guðmundur Jónsson, gítarleikari Sálarinnar hans Jóns míns, hefur stofnað. Hann er hvergi nærri hættur að semja. KÁNTRÍUNNANDI Guðmundur Jónsson hefur stofnað hljómsveitina Vestanáttina, sem leikur að mestu kántrítónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/ FÉLAGAR VESTANÁTTARINNAR frá vinstri: Sigurgeir Sigmundsson, pedal steel gítar, Guðmundur Jónsson, gítar og söngur, Eysteinn Eysteinsson trommur, Alma Rut söngur, og Pétur Kolbeinsson bassi. MYND/JÓN ÖNFJÖRÐ ARNARSSON ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK o s.iSAM CHICAGO SUN TIMES LOS ANGELES TIMES WASHINGTON POST 8, 10:20 6, 9 7 5:50 10 TAKEN 3 KL. 5.30 - 8 - 10.30 UNBROKEN KL. 6 - 9 THE HOBBIT 3 3D KL. 6 – 9 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 - 8 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 10.15 TAKEN 3 KL. 5.30 - 8 - 10.30 THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 5 – 8 - 10 THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 4 - 7 - 10 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45 - 8 EXODUS KL. 7 MOCKINGJAY - PART 1 KL. 10.15 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 4.30 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Hljómsveitin ætlar að halda tón- leika í Salnum í Kópavogi 12. febrú- ar næstkomandi. „Við ætlum að flytja úr lagabálki mínum og einn- ig að segja sögurnar á bak við lögin og textana.“ gunnarleo@frettabladid.is Það er einhver þráhyggja og geðveiki að vera lagasmiður, ekki eru það peningarnir … Það er sjaldan lognmolla í kring- um Kardashian-fjölskylduna og er svo sannarlega ekki undan- tekning núna. Elsta systirin, Kourtney, sem eignaðist sitt þriðja barn skömmu fyrir jól, birti umdeilda mynd á Insta- gram-síðu sinni á laugardag. Á henni voru tvær töflur á diski og undir myndinni stóð „Placenta pills“ eða fylgjutöflur. Kourt- ney hefur því látið þurrka fylgju þriðja barnsins, mylja niður og gera úr henni töflur. Við mynd- ina skrifaði hún einnig að þessar töflur hefðu breytt lífi hennar og hún kviði fyrir því þegar þær kláruðust. Eiga töflurnar að bæta mjólkurframleiðslu og almenna líðan hinnar nýbökuðu móður. Tekur fylgjuna inn í töfl uformi Bandaríski lúxusskartgriparisinn Tiffany & Co, sem einna þekktast er fyrir trúlofunarhringana sína og túrkisbláu pakkningarnar, var í vikunni fyrsta skartgripamerk- ið til þess að sýna samkynhneigt par í auglýsingum um trúlofun- arhringa. Í auglýsingunni, sem sýnir tvo karlmenn sitja saman í stiga og haldast í hendur, eru ekki notaðar fyrirsætur heldur eru mennirnir par í alvörunni. Linda Buckley, sem sér um kynningar- mál fyrir Tiffany & Co, sagðist í tilkynningu frá fyrirtækinu vona að fleiri framleiðendur tækju þau sér til fyrirmyndar. Tímamót hjá Tiff any’s TIFFANY & CO Það þekkja allir Tiffany & Co á bláa litnum. Sómakærir Íslendingar signdu sig þegar fregnir bárust í síðustu viku af Snap- chat–reikningnum Saurlífi. Þar deildi aragrúi ungs fólks vafasömum ljósmynd- um og myndskeiðum af sér og sínum nán- ustu með umheiminum. Fyrirbærið rataði í fréttir og forvitni ég ákvað að sjálfsögðu að skoða hvað um var rætt. Eftir dágóðan skammt af krumpuðum kynfærum og lögu- legum lortum í klósettskálum lokaði ég for- ritinu og hugsaði með mér að líklega væri Saurlífi síðasti naglinn í líkkistu klámkyn- slóðarinnar. EN AUÐVITAÐ opnaði ég Saurlífið aftur seinna sama dag. Reyndar undir því yfirskini að ég væri að sýna vinum mínum það og við okkur blöstu margfalt grófari hlutir en ég nefndi hér áður. En var þetta virkilega svona slæmt? Á tímum þar sem netníð- ingar herja á hvert það ungmenni sem vogar sér að vera öðruvísi er ég ekki svo viss. Á Saurlífinu virtist sem sumir væru hreinlega að keppast við að vera öðruvísi. OG ÞARNA kenndi ýmissa grasa. Feitir og mjóir með stór typpi og lítil, fallegt fólk og forljótt, misstór brjóst, ör, bólur og slit, ófríðir peppaðir upp og fólk í sjálfsvígs- hugleiðingum hvatt til að leita sér hjálpar. Eiginlega allt nema „eðlilegheit“ rataði inn á Saurlífi. Auðvitað er erfitt að taka upp hanskann fyrir framtakið þegar ólögráða ungmenni geta með örfáum fingrahreyf- ingum fengið að sjá meira af kynlífi og fíkniefnaneyslu en frægustu rokksveitir heims hafa séð baksviðs yfir ævina. En ég ætla samt að gera það. KANNSKI er Snapchat ekki besti vett- vangurinn. Til þess er aðgengið of auðvelt fyrir smáfólk. En konseftið sem slíkt er ekki svo galið. En hvað veit ég? Kannski misstu ungmennin áhuga á þessu um leið og þetta kom í fréttunum og varð „main- stream“. Miðaldra sleðar farnir að tala um Saurlífi á kaffistofum, haldandi að þeir séu með puttann á púlsinum. Ungu fólki finnst ekkert gaman þegar fullorðna fólkið andar ofan í hálsmálið á því. Og þess vegna spái ég Facebook–grúppunni Sjomlatips engu sérstöku langlífi. Það er nefnilega búið að samþykkja mig. Ungt og leikur sér 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E A -6 9 C 8 1 7 E A -6 8 8 C 1 7 E A -6 7 5 0 1 7 E A -6 6 1 4 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.