Fréttablaðið - 12.01.2015, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 12. janúar 2015 | SKOÐUN | 13
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Miklar breyt-
ingar eru nú að
verða á mót-
t ö k u f y r i r
umsækjendur
um alþjóðlega
vernd. Töluverð-
ar breytingar
urðu á lögum
um útlendinga
síðastliðið vor.
Meðal þess sem
breyttist er að sérstök kærunefnd
útlendingamála sér nú um kæru-
mál flóttafólks og einnig á að
stefna að ekki taki lengur en 90
daga að úrskurða í hverju máli.
Það er von mín að þessar breyting-
ar reynist jákvæðar fyrir flótta-
fólk.
Mig langar hins vegar að benda
á þá staðreynd að það flóttafólk
sem kom hingað til lands áður en
lögin tóku gildi er í sömu stöðu og
áður og nýtur ekki nýjunganna í
kerfinu.
Meðal þess er fólk sem hefur
verið í biðstöðu í um tvö til þrjú ár.
Ég þekki til átta sem eru í þeirri
stöðu og þar af eru fimm þeirra
með mál sín fyrir héraðsdóm-
stóli en öll snúa þau að Dyflinnar-
reglugerðinni. Dómstóllinn dæmir
aðallega um hvort hælisumsóknir
hvers og eins þeirra eigi að vera
skoðaðar efnislega á Íslandi, eða
ekki – en ekki um hvort þeir eigi
að fá vernd. Dómar munu falla á
næstunni.
Ég veit ekki hvernig mál munu
ráðast en ég veit að þessi ár sem
fólkið bíður hér eru því tilgangs-
laus. Tvö til þrjú ár eru langur
tími í bið ef maður er hvorki án
vinnu og getur ekki farið í nám –
og getur í raun ekki aðhafst neitt.
Sumir hafa svo forsögu annars
staðar frá og hafa eytt tíma í öðru
landi, jafnvel lengri tíma en á
Íslandi. Einn af flóttamönnunum
sem hér dvelja eyddi t.d. níu árum
í landi þar sem hann hafði sótt um
vernd fyrst og annar fimm árum
– báðir án þess að geta orðið að
venjulegum borgurum. Myndir þú
vilja vera í þessum sporum?
Bjargræði
Eins og sést í hinni nýju stefnu
yfirvalda hérlendis efast enginn
um mikilvægi þess að umsókn
um alþjóðlega vernd skuli verða
afgreidd almennilega innan þol-
anlegs biðtíma. En ef yfirvöld við-
urkenna mikilvægi þess, hvernig
líta þau þá á manneskjur sem hafa
eytt tveimur til þremur árum hér
nú þegar og mál þeirra hafa ekki
einu sinni verið skoðuð efnislega?
Eiga þeir ekki skilið einhvers
konar bjargræði miðað við þenn-
an óvenjulega langa biðtíma?
Mér skilst að dómstóllinn sé
bundinn við lögin, að sjálfsögðu,
og réttlæti hans byggist fyrst og
fremst á lögfræði. Það er hins
vegar mín skoðun að framkvæmd-
arvaldið geti haft að leiðarljósi
mannúðleg sjónarmið. Það þýðir að
horfa á manneskjuna sem miðjuna
í hverju máli, hina lifandi mann-
eskju.
Þá finnst mér eðlilegt að líta
á mál þeirra í heild, aðstæður í
heimalandi þeirra, margra ára
óvissu í fyrsta komulandi og svo
biðtíma á Íslandi fremur en fyrst
og fremst á Dyflinnarreglugerð-
ina – sem er alls ekki kjarni mála
þeirra.
Ég vil skora á yfirvöld að skoða
mál þeirra með mannúð að leiðar-
ljósi og taka mál þeirra sem um
ræðir til efnislegrar meðferðar,
óháð hvernig dómar falla í hér-
aðsdómi.
Fólk á fl ótta og í bið
FLÓTTAMENN
Toshiki Toma
prestur innfl ytjenda
Í leikritum Shakespeares kemur
stundum fyrir persóna sem nefnd
er fíflið og hefur það hlutverk að
segja alls konar hluti sem aðrir
myndu aldrei segja. Þetta er ekki
beint virðingarstaða – eiginlega
fremur óvirðingarstaða – viðkom-
andi þarf að sjá til þess að fram
komi sú hlið sannleikans sem
við veigrum okkur við að segja,
vegna meðvirkni eða út af sjálfs-
ritskoðun, tepruskap, alvörugefni,
eða bara af tillitssemi í garð
náungans. Fíflið segir meira að
segja hitt og þetta við grimman
kónginn og kemst upp með það
vegna þess að það nýtur griða í
mannfélaginu; það starfar á und-
anþágu; það er hláturleyfishafi.
Þessir persóna er ómetanlegur
partur af samfélagi okkar.
Og samt erum við líka Charlie
Í nútímasamfélögum gegna vissir
listamenn þessu hlutverki; ekki
síst skrípamyndateiknarar. Þeir
eru hluti af sameiginlegri sam-
félagsvitund okkar og í þeim
skilningi erum við öll Charlie,
hvað sem því líður að við mynd-
um ekki öll teikna svona dóna-
legar myndir af Múhameð spá-
manni eða vera svona gagntekin
af rössum. Þeir eru stundum eins
og hvatvís börn, teikna það sem
kemur í hugann og þeim finnst
sniðugt sjálfum en er auðvitað
misfyndið. En þegar fyndnin
lánast er í henni eitthvað óvænt,
jafnvel fáránlegt; hláturinn
ber einatt í sér eitthvað fjar-
stæðukennt og fráleitt – eitthvað
„rangt“ – eitthvað óskammfeil-
ið, sem hneykslar okkur en líka
um leið eitthvað tært og hreint,
jafnvel barnslegt sem kallar
fram bros. Skrípamyndin er ekki
beinlínis málefnaleg, hún starfar
á hvatasviðinu; við hlæjum að
henni eða yppum öxlum.
Þetta fífl hefur nú verið tekið
af lífi í Frakklandi fyrir þá sök að
vekja hlátur. Til þess að tjá ógeð
okkar og sorg yfir því og undir-
strika rétt okkar til að hlæja og
teikna og tala og tjá okkur segj-
umst við nú öll vera Charlie.
Við búum í opnu samfélagi. Hér
má segja og tjá næstum hvað sem
er, hvað sem líður fornfálegum
og óvirkum lagabókstaf um guð-
last. Á hinu opinbera svæði hefur
nánast allt verið afhelgað. Það
táknar að þótt einhverjum sé eitt-
hvað heilagt verður viðkomandi
að una því að öðrum þyki lítið til
þess helgidóms koma. Hið heilaga
nýtur ekki lengur friðhelgi í opin-
beru rými, heldur hefur færst á
svið hins einkalega. Franska bylt-
ingin snerist raunar ekki síst um
það. Hafi þessi afhelgun átt sér
stað í tilteknu rými er ekki hægt
að vernda fólk fyrir henni. Það
kann að vera erfitt fyrir suma að
sætta sig við slíkt en þeir verða
að læra það, ætli þeir að búa í
samfélagi við aðra. Fyrir vikið
má gera grín að trúarbrögðum,
líka islam. Öll trúarbrögð þurfa
á hlátrinum að halda. Raunar má
telja það til mannréttinda að til-
heyra mengi sem gert er grín að:
það táknar að maður sé fullgild-
ur meðlimur í samfélaginu; fyrir
utan það að öll höfum við gott af
því að horfa á sjálf okkur í spé-
spegli.
Í mannfélaginu vekur allt and-
stæðu sína. Í opnu þjóðfélag heyr-
ast og sjást alls kyns tilbrigði
mannlegrar hugsunar þegar hún
er ekki reyrð í fjötra hugmynda-
fræði: hinu háleita fylgir lágkúra,
enda skerpir lágkúran næmi
okkar á hið háa; fegurð kallar
á ljótleika sem aftur vekur þrá
eftir fegurð; andlegri leit fylgir
áhugi á líkamsstarfseminni;
nautnin kemur í kjölfar meinlæt-
anna; guðstrúnni fylgir guðlast;
fólk sem sýslar með gömul hand-
rit þekkir klámfengið og ósæmi-
legt spássíukrotið hjá munkunum
sem sátu við skriftir og guðræki-
legar iðkanir. Á Íslandi tíðkaðist
slíkur orðaósómi í svokölluðum
beinakerlingavísum; sem voru
lagðar inn í vörður á afviknum
stöðum þar sem hægt var að lesa
þær, og hnussa hlæjandi.
Glæpir gegn mannkyni
Mennirnir sem réðust inn á skrif-
stofur franska skopmyndablaðs-
ins eru partur af heimshreyfingu
sem kennir sig við islam.
Þetta eru óvinir islams. Þeir
hafa raunar lagt sig sérstaklega
fram um að drepa múslima víða
um heim og saklausa borgara
sem ekki tengjast trúmálum sér-
staklega – þeir drápu um daginn
2000 manns í þorpinu Baga í Níg-
eríu í stríði sínu gegn þekkingu
og fræðslu. Verk þeirra koma
engum verr en múslimum í Evr-
ópu; skapar umsátursástand um
hvern einstakling úr þeim ranni.
Þessir menn hafa sjálfir fram-
leitt afkáralegri (og ófyndnari)
skrípamyndir af Múhammeð en
nokkrir skopteiknarar myndu
gera; fóru á sínum tíma frá Dan-
mörku um hinn múslimska heim
og dreifðu fölsuðum myndum af
spámanninum með svínshaus
og sögðu vera úr Jyllandspost-
en. Svona morðvargar hafa fylgt
mannkyni frá elstu tíð og eiga
eftir að gera það um aldur og
ævi. Þetta eru rauðu varðliðarnir
í menningarbyltingunni í Kína;
IRA á Írlandi; rauðir kmerar í
Kambódíu; serbneskir vígamenn
sem myrtu múslima í Bosníu og
nauðguðu konum kerfisbundið;
Baader-Meinhof í Þýskalandi;
rauðu herdeildirnar á Ítalíu:
Bandaríkjaher í Víetnam. Morð-
óðir hermenn sem æða fram
undir merkjum hugsjóna. Þetta
eru ekki valdalausir smælingjar,
olnbogabörn samfélagsins sem
leiðst hafa á villugötur vegna
vonsku samfélagsins, heldur
hópar trylltra einstaklinga sem
ánetjast hafa vímunni sem fæst
af morðum og illvirkjum, fara
um í nafni hreinleikans – og
drepa. Þeir eiga sér engar máls-
bætur og framferði þeirra víða
um heim eru glæpir gegn mann-
kyni.
Þeir ætla að stöðva það með
öllum ráðum að við blöndum geði.
Að kristnir menn og múslimar,
trúlausir, búddistar og leitandi
sálir með ólíkar lífsskoðanir,
hittist og horfist í augu, öðlist
jafnvel gagnkvæman skilning.
Þetta eru skoðanabræður Brei-
viks í Noregi og þeir eiga sín
skoðanasystkin hér á landi. Þetta
er fólkið sem berst gegn því sam-
býli sem nefnt hefur verið fjöl-
menning, og felst í því að við
sýnum hvert öðru umburðarlyndi
og velvild, tölum saman, hlæjum
saman.
Glæpir gegn mannkyni
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
8
-E
D
9
8
1
7
E
8
-E
C
5
C
1
7
E
8
-E
B
2
0
1
7
E
8
-E
9
E
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K