Fréttablaðið - 12.01.2015, Síða 16
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@365.is, s. 512 5429
HönnunarMars hefur farið stækk-andi með hverju árinu en hann verður nú haldinn í sjöunda sinn.
Skráning fyrir hönnuði til að taka þátt
lýkur 25. janúar og fólk er að taka við
sér af krafti eftir áramótin,“ segir Sara
Jónsdóttir, verkefnastjóri Hönnunar-
Mars en hátíðin fer fram dagana 12. til
15. mars.
„Dagskráin er í mótun en þetta lítur
mjög vel út,“ bætir hún við en meðal
annars er búið að bóka spennandi nöfn
á Design Talks, fyrirlestrardaginn. Þar
má nefna Jessicu Walsh sem Sara segir
skínandi stjörnu í hönnunarheiminum.
„Við erum mjög spennt að fá hana til
landsins en Jessica Walsh er ákveðið
sputnik á sínu sviði og var meðal annars
gerð að meðeiganda hjá Sagmeister fljót-
lega eftir að hún hóf þar störf, þá aðeins
25 ára gömul. Hlín Helga Guðlaugsdótt-
ir, listrænn stjórnandi DesignTalks setti
daginn saman út frá þemanu Play Away
og velur inn áhugaverð nöfn sem vinna
með leik í víðri merkingu og eftir óhefð-
bundnum leiðum. Þarna verður fólk sem
vinnur út fyrir boxið og ögrar norminu,“
segir Sara en meðal annarra fyrirles-
arar eru Anthony Dunne annar höfunda
Speculative Design aðferðafræðinnar og
Walter Van Beirendonck, tískufrömuður
frá Belgíu, en hann er einn úr „avant
garde“ hönnunargrúppunni Antwerp Six.
TÆKIFÆRI TIL VIÐSKIPTASAMBANDA
Kaupstefnan DesignMatch er hluti af
HönnunarMars en þar geta íslenskir
hönnuðir komið verkum sínum á fram-
færi við erlend fyrirtæki. Undanfarin ár
hafa nokkur íslensk verk komist inn í
framleiðslulínur fyrirtækja eins og Nor-
mann Copenhagen.
„Það nýjasta er samstarf vöruhönnuð-
arins Hafsteins Júlíussonar og hönnun-
arfyrirtækisins HEM,“ segir Sara.
„Í ár mæta norrænir kaupendur á
DesignMatch en einnig höfum við stað-
fest komu þýsku hönnunarverslunar-
innar Monoqi, Pop-Corn sem er frönsk
hönnunarvefverslun með innanstokks-
muni, og Paper Collective frá Danmörku
sem selur grafísk veggspjöld í takmörk-
uðu upplagi. Dagskránni er ekki læst og
fleiri fyrirtæki eru væntanleg.“
Sara stýrir HönnunarMars nú í fyrsta
sinn og leggst verkefnið vel í hana.
„Þetta er hressandi. Verkefnið er
stórt en HönnunarMars er með stærstu
hátíðunum sem haldnar eru í Reykjavík.
Við fáum fjölda gesta bæði íslenskra og
erlendra á hátíðina og einnig erlenda
fjölmiðla. Það er gaman að taka þátt í að
HÖNNUNARMARS
Í SJÖUNDA SINN
HÖNNUNARMARS Sara Jónsdóttir er verkefnastjóri HönnunarMars í ár. Und-
irbúningur er í fullum gangi og munu spennandi nöfn mæta bæði á fyrirlestra-
dag hátíðarinnar DesignTalks og á kaupstefnuna DesignMatch.
RÍSANDI STJARNA
Jessica Walsh mun
tala á DesignTalks á
HönnunarMars.
HRESSANDI VERKEFNI Sara Jónsdóttir stýrir HönnunarMars í ár en hátíðin
er ein sú stærsta sem haldin er í Reykjavík með þátttöku fjölda hönnuða og
heimsóknum erlendra gesta og fjölmiðla. Verkefnið leggst vel í hana. MYND/STEFÁN
SÓDABRAUÐ
4 bollar hveiti (mætti einnig
nota heilhveiti til hálfs á móti
hvítu hveiti)
4 msk. sykur
1 tsk. matarsódi
1 msk. lyfitduft
1 tsk. salt
½ bolli mjúkt smjör
1 bolli súrmjólk
1 egg
Til að pensla:
¼ bolli bráðið smjör
¼ bolli súrmjólk
FLJÓTLEGT MEÐ SÚPUNNI
Gott brauð sem ekki þarf að hefast fyrir bakstur
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
NÝTT – NÝTT
8 rétta
hlaðborð í
hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.590.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga.
ekki um helgar.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
Bifidobacteria & Fibre
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Hitið ofninn upp í 190 gráður. Leggið smjörpappír á
plötu. Blandið hveiti, sykri, matarsóda, lyftidufti, salti
og mjúku smjöri saman í stóra skál. Hrærið bolla af súr-
mjólk og eggi saman við.
Hvolfið deiginu á hveitistráð borð og hnoðið aðeins.
Formið deigið í kúlu eða kringlóttan hleif og komið því
yfir á bökunarplötuna.
Hrærið svo saman bráðnu smjöri og súrmjólk og penslið
hleifinn vel. Skerið svo stórt X í deigið með beittum hníf.
Bakið í 40 til 50 mínútur eða þar til tannstöngull kemur
hreinn út eftir að honum er stungið í brauðið. Eftir 30
mínútur má kíkja hvort brauðið er bakað.
Einnig má pensla það öðru hvoru með smjör/súrmjólk-
urblöndunni yfir bökunartímann.
wwww.allrecipes.com
styðja við grósku í greinunum. Íslenskir
hönnuðir búa yfir ákveðinni sérstöðu
vegna grasrótarstemningarinnar, sem
vert er að halda í. Hér er unnið faglegt
starf en sagan ekki ýkja löng og því lítið
um heftandi hefðir og hönnuðum frjálst
að leika sér og hugsa út fyrir boxið.“
■ heida@365.is
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
8
-8
A
D
8
1
7
E
8
-8
9
9
C
1
7
E
8
-8
8
6
0
1
7
E
8
-8
7
2
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K