Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2015, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 12.01.2015, Qupperneq 19
Neðstaleiti 9 - 2ja herbergja íbúð. Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 – 17.45 Góð 54,0 fm. 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með hellulagðri suðurverönd á frábærum stað í göngufæri við Kringluna. Þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla ca. 6 fm fylgir íbúðinni sem er ekki inni í fm. tölu íbúðarinnar. Sér stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Hús að utan er í mjög góðu standi og bílaplan steypt. Hellulagðar stéttar framan við hús með hitlögnum undir. Verð 22,9 millj. Íbúð merkt 0101. Verið velkomin. Kársnesbraut- Kópavogi. Endaraðhús. Glæsilegt og þó nokkuð endurnýjað 169,5 fm. að meðtöldum 22,8 fm. bílskúr endaraðhús á tveimur hæðum í vesturbæ Kópavogs. Eldhús var endur- nýjað fyrir tveimur árum og sett upp falleg hvít hág- lans innrétting. Rúmgóð stofa með útgangi á stóra suður verönd. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Hús sem hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina. Fallegur garður með miklum gróðri. Verð 49,9 millj. Langamýri 28- Garðabæ. 2ja herbergja íbúð með sérinngangi. Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 – 17.45 Falleg og þó nokkuð endurnýjuð 62,4 fm. íbúð á neðri hæð með sérinngangi og sér garði við Löngumýri í Garðabæ. Íbúðin skiptist í forstofu, hol/ vinnuaðstöðu, stofu og borðstofu með útgengi í garð, opið eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Búið er að endurnýja m.a. baðherbergi og gólfefni. Stutt í alla þjónustu m.a. verslanir, skóla og leik- skóla. Sér bílastæði Verð 21,9 millj. Verið velkomin. Baldursgata 9 - 3ja herbergja sérhæð. Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 – 17.45 Mjög góð 91,3 fm. sérhæð í miðborginni. Búið er að endurnýja íbúðina mjög mikið m.a. eldhús, baðher- bergi, gólfefni og skápa. Einnig er búið að endurnýja vatnslagnir ásamt ofnalögnum og rafmagn að hluta. Húsið er allt nýlega klætt að utan. Íbúðinni er í dag skipt í eitt herbergi og tvær stofur en lítið mál að bæta við herbergi í borðstofu. Gróin afgirt lóð. Verð 33,9 millj. Verið velkomin. VEGNA MIKILLAR SÖLU ÓSKUM EFTIR ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM EIGNA Á SÖLUSKRÁ. SKOÐUM OG METUM SAMDÆGURS - SANNGJÖRN SÖLUÞÓKNUN VESTURBRÚN. FRÁBÆR STAÐSETNING. Stórglæsilegt 273,2 fm. (skráð 259,2 fm) einstakt einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað við opna svæðið í Vesturbrún. Húsið er teiknað af Halldóri Gíslasyni að innan sem utan og er einstakt að allri gerð, frábærlega skipulagt og með miklum og vönduðum sérsmíðuðum innréttingum. Setustofa með arni og útbyggðum glugga til suðurs. Koníaksstofa með mikilli lofthæð. GRÆNLANDSLEIÐ- GRAFARHOLTI. Glæsilegt 166,2 fm. sérbýli á  tveimur hæðum í tvíbýlishúsi auk 38,8 fm bílskúrs, samtals 205 fm. að stærð. Stofa/borðstofa með stórum gluggum í þrjár áttir og frábæru útsýni. Úr stofum er útgengi á stóra þakverönd. Lóðin er mjög falleg og er að mestu leyti villt og þarfnast ekki vinnu við. Garðrýmið tengist stórri þakverönd með útsýni móti norðri og vestri. Stórt bílaplan fyrir framan bílskúr. MÓAFLÖT - GARÐABÆ 210,4 fm. einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 48,8 fm. innréttuðum bílskúr. Húsið var nánast allt endurnýjað hið innra og ytra fyrir ca. 5 árum síðan og er í mjög góðu ástandi. Gólfefni eru ný, allar innréttingar, eldhús og baðherbergi. Rúmgóð setustofa, borðstofa og stór skáli opinn við stofu. Hjónasvíta með miklum fataskápum. 1.046 fm. gróin lóð með verönd til suðurs. ARNARÁS – GARÐABÆ. EFRI SÉRHÆÐ. Mjög falleg 5 herbergja 134,6 fm. efri sérhæð með fallegu útsýni í Ásahverfinu. Mikl- ar innréttingar úr kirsuberjaviði eru í eldhúsi og útsýni er að Esjunni, yfir Garðabæ að Kópavogi og víðar. Skjólsælar svalir til suðvesturs út af stofu. Sjónvarpshol og þrjú rúmgóð svefnherbergi. Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða er á lóð. RITUHÓLAR – FRÁBÆR ÚTSÝNISSTAÐUR Vel skipulagt um 450 fm. einbýlishús með auka 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð hússins.  Frábær útsýnisstaður við Elliðaárdal. Þrjár samliggjandi stofur með mikilli lofthæð. Fallegur arinn er í arinstofu. Eldhús með nýlegum innréttingum. Stórt fjölskyldurými. Auðvelt að sameina aukaíbúðina húsinu ef vill. Tvöfaldur bílskúr. Lóðin er 850,0 fm að stærð með steyptum bomanite veröndum. REYNIBERG - HAFNARFIRÐI 221,4 fm. einbýlishús að meðtöldum 43,0 fm. bílskúr á einni hæð á frábærum stað í Setbergslandinu í Hafnarfirði. Fimm rúmgóð herbergi. Rúmgóð stofa. Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu og góðum borðkrók. Falleg ræktuð lóð með afgirtri viðar- verönd með heitum potti. Hellulögð innkeyrsla. Stutt í alla þjónustu og skóla. BLIKANES – GARÐABÆ Glæsilegt og vel staðsett um 265 fm. einbýlishús á tveimur pöllum á sunnanverðu Arnarnesi. Húsið var allt innréttað uppá nýtt árið 2006 m.a. voru bæði baðherbergi endurnýjuð, lagður gólfhiti í allt húsið og skipt um raflagnir og neysluvatnslagnir. Rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur, vandað eldhús með hvítum sprautulökk- uðum innréttingum. Um 50 fm. hjónah. og fjögur barnaherbergi. STRANDVEGUR – SJÁLANDI GARÐABÆ. Glæsileg 131,3 fm. endaíbúð á 2. hæð með gluggum í 3 áttir auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. Samliggjandi stofur með útbyggðum glugga til suðurs og útsýni til sjávar. Útgengi er úr stofu á skjólsælar svalir til suðurs. Eldhús með fallegum eikarinnréttingum. Fjögur herbergi. Húsið er álklætt að utan og því viðhaldslítið. NAUSTABRYGGJA – 7 HERBERGJA ÍBÚÐ Glæsileg 210,6 fm. 7 herbergja íbúð á tveimur efstu hæðum hússins auk sér stæðis í bílageymslu. Íbúðin er öll hin glæsilegasta. Ljóst parket er á gólfum og innihurðir og innréttingar eru úr ljósum viði.Verulega aukin lofthæð er á efri hæð íbúðarinnar eða allt að 5,0 metrar og innbyggð lýsing er í flestum loftum. Rúmgóðar stofur. Tvö baðherbergi. Flísalagðar svalir til vesturs. 95,0 millj. 52,9 millj. 99,0 millj. 43,7 millj. 52,9 millj. 42,9 millj. 64,9 millj. 74,9 millj. SÉRBÝLI SÉRBÝLI 4RA - 6 HERBERGJA OP IÐ HÚ S MI ÐV IKU DA G OP IÐ HÚ S Í D AG OP IÐ HÚ S ÞR IÐJ UD AG 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E 9 -D F 8 8 1 7 E 9 -D E 4 C 1 7 E 9 -D D 1 0 1 7 E 9 -D B D 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.