Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1952, Page 13
Inngangur.
Introduction.
A. Mannfjöldinn.
The populalion.
1. Stærð og vöxtur mannfjöldans.
Number and increase of population.
Mannfjöldaskýrslurnar eru teknar eftir skýrslum þeim, sem prest-
arnir gera um hver áramót, eftir að þeir hafa húsvitjað, nema i Reykja-
vik, Vestmannaeyjum og Hafnarfirði. í Reykjavík framkvæmir borgar-
sljóri manntalið í síðari hluta októbermánaðar, og i Vestmannaeyjum
og Hafnarfirði annast bæjarstjóri framkvæmd þess. Samkvæmt skýrsl-
um þessum var mannfjöldinn á öllu landinu í lok hvers árs
svo sem hér segir:
1931 .... 109 844 1941
1932 1942
1933 1943
1934 1944
1935 1945
1936 1946
1937 .... 117 692 1947
1938 1948
1939 . ... 120 264 1949
1940 .... 121579 1950 .... 144 293
Það hefur löngum verið álitið, að ársmanntölin sýndu heldur lægri
mannfjölda en vera ber, enda hafa aðalmanntölin allt fram til og með
1930 verið nokkru hærri heldur en ársmanntölin sama ár, og jnundi
þó munurinn liklega hafa verið töluvert meiri, ef ársmanntalið hefði
ekki haft stuðning af aðalmanntalinu og framtalið því verið betra mann-
talsárin heldur en endranær. Var það einkum i kaupstöðunum og stærri
kauptúnum, sem hætt var við, að fólk mundi falla undan við ársmann-
tölin. En á síðari árum virðist svo sem mjög hafi dregið úr ágöllum
ársmanntalanna, og að telja megi, að þau séu orðin svo ábyggileg sem
framast má búast við af slíkri skýrslusöfnun.
1. yfirlit (bls. 10*) sýnir meðalmannfjölda hvers árs siðustu
20 árin samkvæmt ársmanntölunum, en hann er fundinn með því að