Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1952, Side 40
36*
MannfjÖldaskýrslur 1941—1950
Yfirlitið sýnir, að það er algengara, að menn búsettir í sýslunum
deyi í kaupstöðunum heldur en öfugt. Þegar mannslátin eru talin á
dánarstað, þá verður dánartala kaupstaðanna 1946—1950 8,1 á þús.
ibúa, en í sýslunum 7,8 á þús. Ef hins vegar er miðað við heimils-
fang, verður dánartala kaupstaðanna eklci nema 7,4 á þús., en sýsln-
anna 9,3 á þús. Að dánartalan er lægri í kaupstöðunum mun aðallega
stafa af því, að þar er tiltölulega meira af ungu fólki, en í sýslunum
aftur tiltölulega meira af eldra fólki.
I töflunum á bls. 34 og 100 eru taldir þeir, sem dáið hafa í stofn-
unum (sjúkrahúsum, berklahælum, elliheimilum og geðveikrahæli).
Voru það samtals 2047 árin 1941—1945 eða tæplega þriðjungur
(32,4%) af öllum dánum á þeim árum, en 2027 árin 1946—1950 eða
rúmlega þriðjungur (36,0%) af öllum dánum þá.
7. Dánarorsakir.
Causes of death.
Skýrslum um dánarorsakir almennt var byrjað að safna hér á landi
árið 1911. Um fyrirkomulag þeirra vísast til þess, sem sagt er í Mann-
fjöldaskýrslum 1911—1915, bls. 33*—35*. Skýrslurnar byggjast á dán-
arvottorðum læltna um mannalát í kauptúnum, þar sem læknir er bú-
settur, en að öðru leyli á upplýsingum frá prestunum, sem héraðslækn-
arnir eiga að yfirlíta og leiðrétta eftir beztu vitund. Skýrslurnar skipl-
ast því í 3 flokka eftir því, hvernig upplýsingarnar eru fengnar, og hafa
hlutföllin milli þessara flokka verið þannig síðustu árin:
1936—40 1941—45 194C—50
Dánarvottorð lœkna ......................... 63 °/o 67 °/o 77 °/o
Prestaskýrslur raeð leiðréttingum lækna ... 16 — 14 — 11 —
Prestaskýrsiur eingöngu ................... 21 —__19 —____12 —
100 °/o 100 °/o 100 °/o
I töflunum á bls. 38—51 og 104—117 (XXVI og XXV) eru taldar
allar dánarorsakir á ári hverju 1941—1950 og líka samtals á 5 ára bil-
unum 1941-—1945 og 1946—1950. Enn fremur er sýnt við hvert dánar-
mein, hverjar heimildir eru fyrir því, hvort heldur dánarvottorð lælcnis,
læknisskýrsla í ófullkomnara formi eða prestsslcýrsla eingöngu. Dánar-
meinaskráin, sem skipt er i 200 töluliði, er samhljóða liinni alþjóðlegu
dánarmeinaslcrá frá 1938. Allmörgum löluliðum er auk þess skipt i
stafliði og er það einnig samkvæmt sömu skrá, þótt því hafi ekki orðið
við komið að hafa þá sundurliðun jafnvíðtælca sem þar. Skrá þessi er
því allmiklu meir sundurliðuð heldur en sú, sem notuð hefur verið í
mannfjöldaskýrslunum islenzku 1911 —1940, og niðurröðunin er líka
nokkuð frábrugðin. Dánarmeinaskránni er skipt í 18 flokka eins og
skránni, sem hér var notuð áður, en flokkarnir falla ekki saman, nema
að nolckru leyti, og þeim er öðruvisi niðurraðað. Þetta sést við saman-