Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Qupperneq 17
mánudagur 28. júlí 2008 17Umræða Einkavæðing heilbrigðisþjónustu fer mörgum fyrir brjóst, talin koma úr neðra og byggð á hugmyndafræði andskotans. Efnuðum mun einum heilsast en nef hinna fletjast út. Þetta gæti hinsvegar orðið raunin ef við einkavæðum ekki. Af hverju? Til ein- földunar er ágætt að flokka heilsu- vanda í þrennt: Kvilla sem ganga yfir, sjúkdóma sem skerða lífsgæði og þá sem ógna lífi. Vaxandi heilsufarsleg meðvitund hefur aukið mjög fram- boð og eftirspurn sjúkdóma í fyrst- nefndu flokkunum. Kynstur kvilla og/ eða sjúkdóma sem áður voru varla á blaði eru nú meðhöndlaðir í gríð og erg, nefni tannskekkjur, ofnæmi, kvef, bólur, brjóst, kvíða, depurð, ofvirkni, vanvirkni, vöðvabólgur, liðverki, hrot- ur, hrukkur og freknur. Kröfurnar eru kollhnís og hljóða á lausnir við öllu, núna strax. Dekurkynslóðirnar sem nú aka úti munu ekki sætta sig við liðverki ef nýir limir bjóðast. Heldur ekki hjart- verki eða vindverki. Endurvinnsla framtíðarinnar verður því almenn, mikil og rándýr. Þetta er þegar í deig- lunni og innreiðin hafin. Ráðamenn hafa því tvo kosti: Afneitun á aug- ljósri staðreynd sem þýðir krass heil- brigðisþjónustunnar og hún öll ónýt. Hinn, að reka einungis heilbrigðis- þjónustu sem miðar að lögbundnu eftirliti og alvarlegri sjúkdómum. Með þessu yrði öllum landsmönn- um tryggð grunn- og neyðarþjón- usta óháð efnahag. Efnahagsreikningur Íslendinga sýnir best þær ógöngur sem þessi málaflokkur er í. Útgjöldin vaxa ár frá ári, aðgengið versnar og skamm- tímalausnir ryðja sér til rúms. Í of- análag bætist við öldrun þjóðarinn- ar sem kallar á nýjar áherslur, nýja hugsun og stefnumörkun. Að ætla hinu opinbera hlutdeild í öllum pakkanum er ófær leið, hún er ein- faldlega of dýr. Aukinni sjálfsábyrgð á eigin heilsufari fylgir meiri kostnaðarvit- und sem okkur svo sárlega vantar. Oftar en ekki veljum við dýra leið að markmiði sem hægt er að ná jafn- vel án tilkostnaðar. Ástæðan er lít- il kostnaðarvitund og/eða andvara- leysi því aðrir borga. Annar fylgikvilli er svo ofnotkun þjónustunnar. Kostnaðarhlutdeild almennings í eigin heilsu verður að aukast með nýjum áherslum, það er lykilforsenda þess að hægt sé að reka hér almenni- legt heilbrigðiskerfi óháð efnahag. Verði þetta vanrækt bitnar það fyrst og fremst á þeim sem síst skyldi. Góð heilbrigðisþjónusta óháð efnahag er því ekki andstæð einkavæðingu heldur óhugsandi án hennar. Sandkassinn Afneitun er hugtak sem maður heyrir endrum og sinnum. Það er sjaldan eða aldrei notað í jákvæðu samhengi. Svo virðist líka sem til afneitunarinnar grípi sindrandi syndugir einstaklingar. Afneitun gæti því kannski kallast öðru nafni málsvörn hins miskunnarlausa. Haldreipi hins huglausa. Skálka- skjól skrímslanna. Mér vArð hugsað til afneit- ana í síðustu viku vegna tveggja manna, „slátrarans“ frá Bosn- íu og „skrímslisins“ í Austurríki. Eftir að tilkynnt hafði verið um handtöku Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba í stríðinu á Balkanskaga á tíunda ára- tugnum, sýndi Kastljósið viðtal við hann sem Ólafur Sigurðs- son, þáverandi fréttamaður Ríkissjónvarps- ins, tók við hann í Leifsstöð árið 1993. Þar vall upp úr manninum afneitunin. Manni sem seinna var ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð og er talinn hafa á samviskunni líf tugþúsunda manna. „Margir fjölmiðlar sverta og brengla sann- leikann,“ sagði Karadzic meðal annars í viðtalinu. Hvað er sú full- yrðing annað en afneitun nú þeg- ar staðreyndirnar tala sínu máli, fimmtán árum síðar? Í sÍðustu viku var einnig sýnd heimildamynd á RÚV um Jós- ef Fritzl, ómennið sem komst í heimsfréttirnar fyrr á árinu fyrir að hafa haldið dóttur sinni fang- inni í dýflissu í litlum bæ í Aust- urríki í tæpan aldarfjórðung. Þar voru rifjuð upp orð Fritzl sem hann viðhafði skömmu eftir að upp komst um ódæðisverkin: Að hann þurfti að halda dóttur sinni frá umheiminum því hún hafi verið farin að drekka og reykja á táningsaldri. Jæja. Mér dettur í hug einn einstakl- ingur í viðbót, en held að það sé ekki alveg við hæfi að nefna þann peyja í sömu andrá og Karadzic og Fritzl. ÞessA dAgAnA er ég nú bara í bullandi afneitun gagnvart því að að litla Toyota-bílalánið mitt í erlendri mynt lítur út fyrir að vera lán fyrir limmósínuhummer með öllum fáanlegum aukahlutum. Kristján Hrafn Guðmundsson er í afneitun Óumflýjanlega einkavæðingin Hundar á kaffihúsi Eigandi þessara litlu hunda gaf þeim skinku að éta á meðan hann sat í makindum á kaffihúsinu Segafredo á lækjartorgi í gær. DV-MYND Ásgeirmyndin P lús eð a m ínu s Spurningin Er vandamálið mEð markvörslunua að lagast? Bolli Thoroddsen, varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fær plúsinn en hann gaf 250 þúsund krónur í söfnun fanganna á Litla- Hrauni fyrir gróðurhúsi. Bolli er fyrrverandi starfsmaður Litla-Hrauns. LÝÐUR ÁRNASON heilbrigðisstarfsmaður skrifar „„Dekurkyn- slóðirnar sem nú aka úti munu ekki sætta sig við lið- verki ef nýir limir bjóðast.“ -hvað er að frétta? „nú erum við með þrjá markverði sem eru nokkuð jafnir en því hefur ekki verið að fagna undanfarin ár,“ segir guð- mundur Þórður guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, sem undirbýr landsliðið undir Ólympíuleik- ana í Peking. „Það er ekkert nema jákvætt vandamál,“ segir guðmundur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.