Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGUR 29.JÚLÍ 20082 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Ég er bara mjög sáttur við þessa
niðurstöðu,“ segir Þórhallur Gunn-
arsson, ritstjóri Kastljóssins, sem
í gær var sýknaður í Héraðsdómi
Reykjavíkur í meiðyrðamáli sem
Lucia Celeste Molina Sierra, tengda-
dóttir Jónínu Bjartmarz, og Birnir
Orri Pétursson, sonur Jónínu, höfð-
uðu gegn Kastljósinu.
Birnir Orri og Lucia höfðu kraf-
ist 3,5 milljóna króna í skaðabætur
vegna ærumeiðinga. Kastljós fjall-
aði á síðasta ári um mál Luciu, sem
fékk skjóta afgreiðslu á umsókn um
ríkisborgararétt, en Jónína, sem var
þá ráðherra í ríkisstjórn, neitaði því
staðfastlega að hafa komið nokkuð
nærri málinu.
Ásamt Þórhalli voru Helgi Selj-
an, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Páll
Magnússon og Sigmar Guðmunds-
son sýknuð í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að eðlilegt hefði verið
að fjalla um málið. Hins vegar hefði
ekki verið vandað nægilega til undir-
búnings umfjöllunarinnar og að ekki
hefði verið farið rétt með ákveðnar
staðreyndir.
Aðspurður hvaða þýðingu þessi
dómur kunni að hafa segist Þórhallur
ekki hafa lesið dóminn í heild sinni.
„Það hefði samt komið mér á óvart ef
niðurstaðan hefði orðið önnur,“ segir
Þórhallur.
Siðanefnd Blaðamannafélagsins
úrskurðaði að umfjöllun Kastljóssins
á sínum tíma hefði brotið gegn siða-
reglum félagsins, en Þórhallur var
ósammála því. „Það var í raun ann-
að mál, þar vorum við að fjalla um
vinnubrögð allsherjarnefndar Al-
þingis og þar komu þrír stjórnmála-
flokkar að. Í þessu máli voru það að-
ilar sem vildu fá miskabætur sem að
mínu mati hefði ekki verið eðlilegt að
dæma þeim,“ segir hann.
valgeir@dv.is
Umsjónarfólk Kastljóssins og útvarpsstjóri voru sýknuð í meiðyrðamáli:
Þórhallur fagnar sýknudóminum
Kastljósið fyrir rétti Sigmar Guðmunds-
son og Helgi Seljan mættu fyrir dóm fyrr í
sumar. Þeir hafa nú verið sýknaðir ásamt
samstarfsfélögum sínum í Kastljósinu.
Nagladekk
um hásumar
Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu hafði afskipti af
manni í Hafnarfirði er hafði
ekki sett bíl sinn á sumar-
dekk. Slíkt er með öllu
óheimilt á þessum tíma árs
en maðurinn hefur komið
við sögu lögreglu áður fyrir
að hafa verið með nagla-
dekk undir bíl sínum. Kvaðst
maðurinn vera með sumar-
dekkin í skottinu og væri að
fara að setja þau undir. Veski
mannsins léttist um 20 þús-
und krónur þar sem sekt fyrir
hvert nagladekk undir bíl er
5.000 krónur.
Réðst á
lögreglumann
Lögreglan í Vestmannaeyj-
um handtók og kærði mann fyrir
að hafa ráðist að lögreglumanni
er hafði afskipti af honum. Lög-
regla hafði haft afskipti af sama
manni fyrr um nóttina vegna
þess að hann var undir áhrifum
fíkniefna.
Maðurinn fékk að gista
fangageymslur um nóttina og
fór í skýrslutöku daginn eftir.
Þegar honum var runnin reiðin
viðurkenndi hann að hafa verið
undir áhrifum fíkniefna er hann
réðst á lögreglumanninn.
„Yfirleitt hefur verið talið að stjórnar-
sáttmáli eigi að endast út kjörtíma-
bilið. Þó einhverjar breytingar hafi
orðið síðan hann var gerður eru þær
ekki það miklar að ég sjái ástæðu til
að þær kalli á endurskoðun,“ seg-
ir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks og formaður efnahags-
og skattanefndar Alþingis.
Í gær birtist aðsend grein í Morg-
unblaðinu frá Ellerti B. Schram,
þingmanni Samfylkingar og vara-
formanni efnahags- og skattanefnd-
ar Alþingis, þar sem hann leggur til
að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinn-
ar verði endurskoðaður með tilliti til
breyttra efnahagsaðstæðna.
Hugleiðing Ellerts
Ellert bendir á að þegar stjórn-
arsáttmálinn var gerður hafi ver-
ið gríðarleg þensla á vinnumarkaði
og framkvæmdagleðin aldrei meiri
í byggingariðnaði og stjórvirkjun-
um. Á þeim tíma hafi engum dottið
í hug að skipta krónunni út fyrir evru
og fæstir höfðu áhyggjur af lausa-
fjárstöðu bankanna,
háu gengi krón-
unnar eða stýri-
vöxtum Seðla-
bankans.
„Ég hef
ekki rætt þetta við einn eða neinn,“
segir Ellert. „Þetta er bara mín eigin
hugleiðing í ljósi þeirra atburða og
þeirrar stöðu sem uppi er í þjóðfé-
laginu. Þetta á að vera jákvætt inn-
legg í umræðuna.“
Tvær hliðar á hverju máli
Pétur er ósammála þessu. Að-
spurður hvort honum finnist Ellert
vera að gera of mikið úr efnahags-
vandanum segir hann: „Það má vel
vera að hann líti aðeins á eina hlið-
ina. En til að átta sig á hvort farið er
að halla mikið á er nauðsynlegt að
líta á báðar hliðar medalíunnar. Við
erum í ákveðinni alþjóðlegri kreppu
sem ekki var séð fyrir í stjórnarsátt-
málanum en á margan hátt er ís-
lenskt þjóðarbú betur undir það
búið en mörg önnur að takast á við
kreppuna.“
Hann segir ýmis jákvæð teikn
vera á lofti. „Olíuverð fer lækkandi
og atvinnuleysi virðist ekki hafa auk-
ist neitt að ráði. Ég get ekki dregið
þá ályktun að breyta þurfi stjórnar-
sáttmálanum enda misvísandi teikn
frá efnahagslífinu.“ Í því sambandi
bendir Pétur á að í nýlegri könnun
Samtaka atvinnulífsins hafi komið
fram að tveir þriðju fyrirtækja hafi
ekki lent í vandræðum með lausa-
fjárstöðu.
Sáttmálinn þarf ekki uppskurð
Spurður hvort hann þekki dæmi
þess að stjórnarsáttmáli hafi verið
endurskoðaður á miðju kjörtímabili
svarar Ellert: „Ekki nema þá þegar
menn mynda ríkisstjórn upp á nýtt.
En ég er auðvitað ekki að leggja til
að sáttmálinn sé endurskoðaður í
heild sinni heldur aðeins ákveðin at-
riði,“ segir hann og vísar til efnahags-
ástandsins.
Ellerti finnst grundvöllur stjórn-
arsamstarfs Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks traustur og er ekki að
leggja til stjórnarslit. „Ég er mjög
ánægður með samstarfið og sé enga
aðra möguleika í stöðunni.“
Þegar DV náði tali af honum í
gær hafði hann ekki heyrt viðbrögð
samflokksmanna sinna við hug-
myndinni en vonar að forystumenn
flokkanna taki vel í hana. „Stjórn-
arsáttmáli er auðvitað bara plagg
sem er samið á ákveðnum tíma við
ákveðnar aðstæður. Hann er engin
heilög ritning.“
Pétur hafði heldur ekki rætt hug-
mynd Ellerts við flokksmenn sína í
gær en sagði eðlilegt að sífellt væri
unnið í sáttmálanum. „Hann setur
ákveðinn ramma sem að sjálfsögðu
þarf að fylla í miðað við aðstæður. Ég
sé ekki að það þurfi að gera á sátt-
málanum neinn uppskurð.“
Pétur Blöndal blæs á hugmyndir Ellerts B. Schram um að endurskoða þurfi stjórnar-
sáttmálann. Að mati Ellerts hafa geigvænlegar breytingar átt sér stað í efnahagsmál-
um frá því að sáttmálinn var gerður og því nauðsynlegt að leita nýrra leiða. Pétur
Blöndal segir fréttir af bágu efnahagsástandi misvísandi og að sáttmálinn þurfi ekki
á uppskurði að halda.
ÓSAMMÁLA UM
ENDURSKOÐUN
Erla HlynSdóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Stjórnarsáttmáli er
auðvitað bara plagg
sem er samið á ákveðn-
um tíma við ákveðnar
aðstæður. Hann er eng-
in heilög ritning.“
Góðærið liðið Geir Haarde
og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir tókust í hendur til
að innsigla stefnuyfirlýsingu
nýrrar ríkisstjórnar í maí
2007. Bjartir tímar virtust
fram undan og mikið góðæri.
Ofmat Ellerts Pétur Blöndal
telur að mögulega ofmeti Ellert
B. Schram efnahagsvandann.
Breytt ástand, nýjar leiðir Ellert
vill endurskoða stjórnarsáttmála
vegna breyttra aðstæðna.
DV myndir /Karl Petersson
Mikil óánægja
með vegakerfið
Meira en helmingur þeirra
sem starfa við flutninga á veg-
um landsins er óánægður með
íslenska vegakerfið. Þetta kemur
í ljós þegar skoðaðar eru niður-
stöður úr könnun á viðhorfum
25 flutningafyrirtækja sem eiga í
samskiptum við Vegagerðina.
36 prósent eru frekar óánægð
með vegakerfið og 20 prósent
mjög óánægð. Þetta er þó mun
betri niðurstaða en í könnun
frá í september í fyrra. Þá voru
52 prósent frekar óánægð með
vegakerfið og 24 prósent mjög
óánægð. Nú eru 24 prósent
frekar ánægð með vegakerfið en
voru átta prósent síðasta haust.
Enginn er mjög ánægður með
það.
Svikin loforð
Kínverja
„Leiðtogar heimsins sem
sækja leikana eiga ekki að
þegja um ástandið og sam-
þykkja að Ólympíuleikar fari
fram í skugga kúgunar og
ofsókna,“ segir í tilkynningu
frá Amnesty International á
Íslandi. Þeir benda á að kín-
versk stjórnvöld hafi lofað
mikilli bót og betrun í þeim
tilgangi að fá að halda leik-
ana. Við þau loforð hafi hins
vegar ekki verið staðið.
Bæði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, og
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
sækja Ólympíuleikana fyrir
hönd Íslands.