Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Qupperneq 6
InnlendarfréttIr
ritstjorn@dv.is
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 20086 fréttir
Tónlistarmaðurinn Ragnar P.
Steinsson, eða Raggi í Botnleðju
eins og hann er oftast kallaður, varð
fyrir barðinu á heldur óprúttnum
þjófum í síðustu viku. Þeir bru-
tust inn á heimili hans við Njáls-
götuna á miðvikudagskvöldinu og
tóku þaðan ófrjálsri hendi fartölvu
í hans eigu. Skaðinn vegna þjófn-
aðarins er ekki síst tilfinningalegur
þar sem í tölvunni er myndband
af fæðingu dóttur hans auk ljós-
mynda. Sjálfur hefur Ragnar hafið
leiðangur í leit að tölvunni og biðl-
ar til þjófanna að skila honum efn-
inu sem á tölvunni er.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn á höfuðborgar-
svæðinu, segir þýfi oft flutt úr landi
auk þess sem því er komið á mark-
að hér á landi.
Tilfinningamál
„Þetta er í raun meira tilfinn-
ingamál en peningaspursmál,“
segir Ragnar sem saknar tölvunnar
sem stolið var af heimili hans síð-
astliðinn miðvikudag. Hann seg-
ir sárt að horfa á eftir myndbandi
af fæðingu dóttur sinnar í hendur
óprúttinna aðila, enda verður fæð-
ingin tæpast endurtekin. Sjálfur
kom hann heim á miðvikudags-
kvöldinu og áttaði sig þá á innbrot-
inu. Það voru þó lítil ummerki eft-
ir þjófana en Ragnar er ekki viss
hvernig þeir komust inn í íbúðina.
Að auki fóru þjófarnir hljóðlega
um en nágrannar urðu ekki var-
ir við grunsamlegar mannaferðir í
kringum íbúðina.
Reyndi allt
„Ég hef þegar farið helstu leið-
ir sem ég þekki innan undirheim-
anna, ef svo má kalla, en ég hef
ekki ennþá rekist á tölvuna,“ segir
Ragnar sem er tilbúinn að leggja
mikið á sig til þess að endurheimta
fæðingarmyndband af dóttur
sinni. Hann segist jafnframt hafa
farið inn á helstu knæpurnar þar
sem líklegt getur verið að einhver
hafi vitneskju um þýfið og þar veif-
aði hann peningum fyrir upplýs-
ingar. Að sögn Ragnars hefur það
ekki borið árangur heldur.
„Lögreglan er víst vonlítil um
að finna hana, þeir veðja helst á að
hún finnist í fórum einhvers sem
þeir handtaka,“ segir Ragnar sem
er ósáttur við að vera upp á tilvilj-
unina kominn.
Innbrotum fækkar
„Innbrotum hefur fækkað
á milli ára,“ segir Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á
höfuðborgarvæðinu. Hann segir
innbrotatíðni í ár um það bil 17 til
18 prósentum lægri það sem af er
ári miðað við síðasta ár. Hann seg-
ir engu að síður að meira hafi ver-
ið um innbrot í lok júní sé miðað
við aðra mánuði á árinu. Þá bendir
hann jafnframt á að lögreglan hafi
í haldi tvo menn af erlendu bergi
brotna sem hafa orðið uppvísir að
innbrotum. Heima hjá þeim fannst
talsvert þýfi, allt frá fartölvum upp
í skartgripi. Að sögn Björgvins þarf
ekki nema tvo öfluga innbrotsþjófa
til þess að skekkja innbrotatölfræð-
ina en ástandið hafi engu að síður
batnað.
Þýfi úr landi
„Það virðist alltaf vera markað-
ur fyrir svona góss og svo færist í
vöxt að þjófar flytja þýfið úr landi,“
svarar Björgvin spurður hvort það
sé almennur markaður fyrir þýfi
hér á landi. Hann segir ágætislík-
ur á að finna þýfi aftur og mörg
dæmi um að fólk hafi fengið eignir
til baka.
Hafi einhver orðið var við tölvu
Ragnars, sem er silfurgrá og af Mac
Powerbook-gerðinni, getur sá hinn
sami haft samband við DV í síma
515 7021. Ragnar heitir þeim sem
getur skilað vísbendingum eða
tölvunni sjálfri veglegum fundar-
launum.
„ég hef þegar farið
helstu leiðir sem ég
þekki innan undir-
heimanna, ef svo má
kalla, en ég hef ekki
ennþá rekist á tölv-
una.“
valuR gReTTIsson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Stálu myndbandi
af fæðingu barnS
Tónlistarmaðurinn Ragnar P. steinsson, bassaleikari Botnleðju, varð fyrir því óláni
á miðvikudaginn að óprúttnir náungar brutust inn til hans og stálu fartölvu. Í tölv-
unni er myndband af fæðingu dóttur hans en Ragnar heitir þeim sem getur komið
tölvunni aftur í hans hendur ríflegum fundarlaunum. Yfirlögregluþjónninn Friðrik
smári Björgvinsson segir þýfi oft flutt úr landi.
„Árið 1986 sigldi Norræna milli
lands og Eyja um verslunarmanna-
helgina. Það var stærsta Þjóðhátíð frá
upphafi en hátíðin í ár verður heldur
enginn aukvisi, þetta stefnir í næsts-
tærstu Þjóðhátíð frá upphafi,“ segir
Heiða Ingólfsdóttir, sölumaður hjá
Herjólfi, en farþegar skipsins verða
4.800 þessa vikuna.
„Margir fyrrverandi Vestmanna-
eyingar dvelja í Eyjum vikuna fyrir
Þjóðhátíð. Reyndar eru sölumenn
sammála um að aldurshópurinn
sé breiðari en vanalega því krakk-
ar fæddir 1993 bóka grimmt,“ segir
hún. Það er þegar orðið fullt í Herj-
ólf á föstudeginum og einungis örfá
sæti laus á fimmtudeginum. „Það er
ómögulegt fyrir okkur að bæta við
siglingum því sólarhringurinn er al-
veg fullbókaður,“ segir Heiða, en það
stefnir einnig í metsölu hjá flugfélög-
unum.
Stjörnuveðurfræðingurinn Siggi
stormur spáir góðu veðri í Eyjum
um helgina: „Seinnipartur helgar-
innar er betri en sá fyrri því það gætu
fallið einhverjir dropar á fimmtu-
dag og föstudag. Þó veðrið verði að
mestu leyti gott er nauðsynlegt að
hafa regnfötin með sér, það er óþarfi
að vökna að utan líka,“ segir hann og
hlær, en hiti verður á bilinu 10 til 15
stig og eykst eftir því sem líður á helg-
ina. „Þetta verður fínt sjóveður fyrir
Herjólf. Það gæti orðið smá vindur af
austri sem heggur svolítið á báruna
en það er ekkert til að hafa áhyggjur
af. Það verður ágætis ferðaveður um
land allt og alveg tilvalið að skella sér
til Eyja,“ segir Sigurður.
liljag@dv.is
Spáir blíðu í Eyjum um verslunarmannahelgina:
Næststærsta Þjóðhátíð frá upphafi
spáir góðu ferðaveðri um
helgina Það verður enginn
stormur á Þjóðhátíð í Eyjum.
mynD GUnnAR GUnnARsson
Raggi í Botnleðju Ragnar heitir
fundarlaunum hverjum þeim sem
getur bent honum á tölvuna sem
stolið var en á henni var meðal annars
myndband af fæðingu dóttur hans.
Stórlaxasumar
Stórlaxar virðast ganga af
meiri krafti í íslenskar ár þetta
sumarið en oft áður. Þröstur
Elliðason, leigutaki Breiðdalsár,
greinir frá viðureign Konráðs
Lúðvíkssonar læknis við einn
slíkan, síðastliðinn fimmtudag.
Laxinn reyndist hængur, tut-
tugu punda þungur. Laxinum
var landað eftir snarpa baráttu
og hann færður í klakaðstöðu
Þrastar í Breiðdalnum.
Fréttir af stórlöxum berast
víðar að, einkum úr Blöndu og
Vatnsdalsá í Húnaþingi, sem
báðar eru frægar stórlaxaár.
Nokkuð af stórlaxi hefur einnig
komið á land úr Skjálfandafljóti.
Einmuna
veðurblíða
Veðurstofan gerir ráð fyrir
fyrirtaks veðri næstu daga. Veð-
urfræðingar gera ráð fyrir hita
á bilinu fimmtán til tuttugu stig
víða um land, í dag og næstu
daga. Einhverjar rigningarskúr-
ir kunna að verða á suðvest-
urhorninu. Heiðríkjan verður
fremur á Norður- og Norðaust-
urlandi.
Um verslunarmannahelgina
er svo gert ráð fyrir áframhald-
andi hlýindum víða um land,
þótt eitthvað muni þykkna upp.
Sjá nánar veðurspá og veðurlýs-
ingu á baksíðu.
Óvissa um
lækjartorg
Enn hefur ekkert verið látið
uppi um hugsanlegar fram-
kvæmdir á brunareitnum að
Lækjargötu 2 og Austurstræti 22,
þar sem brann í apríl fyrir rúmu
ári. Fulltrúi Reykjavíkurborgar á
framkvæmdasviði sagði í samtali
við blaðið að hann vissi ekk-
ert hvernig málin stæðu og að
óvissa ríkti enn um reitinn.
Skipulag að Laugavegi 4 til
6 hefur hins vegar verið kynnt
borgarbúum og verður tekið til
framkvæmda ef nýtt deiliskipu-
lag verður samþykkt.
Lögregla leitar
tjónvalds
Ökumaður keyrði utan í
kyrrstæðan bíl á bílastæði í
Vestmannaeyjum um helg-
ina. Í stað þess að stöðva og
skilja eftir upplýsingar um
sig keyrði tjónvaldurinn á
brott án þess að tilkynna eig-
anda bílsins eða lögreglu um
óhappið. Lögregla leitar tjón-
valdsins nú.
Einn ökumaður var tek-
inn vegna gruns um ölvun
við akstur í Vestmannaeyj-
um um síðustu helgi og voru
sex kærðir fyrir að leggja
ólöglega. Þá voru fimm aðr-
ir ökumenn kærðir fyrir að
virða ekki stöðvunarskyldu
á gatnamótum Illugagötu og
Höfðavegs.