Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2008 7Fréttir
„Við afhentum honum lista með
130 undirskriftum leiðbeinenda
sem krefjast betri kjara,“ segir Dav-
íð Roach Gunnarsson, leiðbein-
andi í Vinnuskólanum í Reykjavík.
Í gær afhenti hann Halli Páli Jóns-
syni, mannauðsstjóra borgarinnar,
kröfulista í þremur liðum.
„Stærsta krafan er að við færumst
upp um 12 launaflokka til að fá sam-
bærileg laun og starfsmenn í félags-
miðstöðvum. Við teljum auk þess
mikilvægt að það fari fram starfsmat
á starfinu, því það mun örugglega
vera okkur í hag. Þriðja krafan snýst
um tækifæri til að verja rétt sumar-
starfsmanna með því að fá fulltrúa í
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborg-
ar,“ segir Davíð en mótmælin fóru
fram í Ráðhúsinu í Reykjavík.
Bíða átekta
„Við erum að berjast fyrir bættum
kjörum alls hópsins. Þeir sem starfa
sem aðstoðarleiðbeinendur og eru
undir tvítugu eru með 130.000 krón-
ur fyrir skatt, sem er sex þúsund
krónum minna en atvinnuleysis-
bætur. Þessir aðstoðarleiðbeinend-
ur þurfa svo að ganga tímabundið
í störf flokksstjóra vegna manneklu
en hækka ekki í launum,“ segir Dav-
íð en engin ákvörðun hefur verið
tekin um áframhaldandi mótmæli.
„Við ætlum að bíða og sjá hvað kem-
ur út úr fundunum í starfskjara-
nefnd en Hallur Páll sagði að þegar
væri farið að fjalla um málið,“ segir
hann.
Sömu laun fyrir sömu vinnu
Hjá Reykjavíkurborg fengust þær
upplýsingar að flestir yfir tvítugu
hefðu 150.000 krónur fyrir skatt og
málin væru komin í eðlilegan far-
veg hjá stéttarfélagi. „Launin eru
alls ekki lægri en atvinnuleysisbæt-
ur því ofan á þau reiknast orlof og í
mörgum tilfellum yfirvinna,“ segir
Hallur Páll, mannauðsstjóri borgar-
innar, en þau laun miðast við launa-
flokk 127. Davíð vill meina að það
sé rangur launaflokkur: „Ófaglærðir
leiðbeinendur í félagsmiðstöðvum
eru að vinna með unglinga á sama
aldri og við. Þau vinna meira að
segja við hlið okkar á sumrin. Það
er því ekkert annað en réttlátt að við
fáum sömu laun fyrir sömu vinnu.
Launin þeirra eru úr launaflokki
139 sem gera tæplega 180.000 krón-
ur á mánuði eða um þrjátíu þúsund
meira en það sem við fáum í dag,“
segir Davíð.
Lítill þrýstihópur
Laun leiðbeinenda Vinnuskól-
ans lækkuðu töluvert fyrir fjórum
árum þegar öll störf hjá borginni
fóru í starfsmat. Ekki var hægt að
meta sumarstörf svo ákveðið var
að reikna launin út frá tekjum frí-
stundaleiðbeinenda hjá ÍTR sem
vinna með 6 til 9 ára börn eftir skóla.
„Það er mjög ósambærilegt við það
sem við fáumst við,“ segir Davíð og
vísar þar til þess hlutverks sem þau
skipa hjá unglingunum, en starf
þeirra felst í því að kenna þeim að
vinna og ekki síst að vera góð fyr-
irmynd. „Við erum mjög lítill og
breytilegur þrýstihópur og því skil-
ar kvabbið oftast litlum árangri, það
var kominn tími til að gera eitthvað
í málunum,“ segir Davíð sem vonast
til að starfsmenn geti verið sáttir eft-
ir sumarið.
Flókið launakerfi
Samkvæmt kjarasamningum hjá
Kópavogi og Hafnarfirði eru grunn-
laun óreynds leiðbeinanda í vinnu-
skóla 136.418 krónur á mánuði en
atvinnuleysisbætur eru 136.000
krónur. „Það er ýmislegt sem hækkar
grunnlaunin, svo sem stúdentspróf,
reynsla og orlof auk þess sem flestir
hafa möguleika á yfirvinnu. Yfirleitt
ná flokksstjórar hjá okkur launun-
um upp í tæpar 180.000 krónur fyr-
ir skatt,“ segir Sigurður Grétar Ólafs-
son, forstöðumaður Vinnuskólans í
Kópavogi, og bætir því við að launa-
kerfið sé frekar flókið. „Flest þeirra
sem vinna hjá okkur eru til dæm-
is með stúdentspróf og þá hækka
launin um 4%,“ segir hann og hefur
ekki orðið var við auknar launakröf-
ur í sínum herbúðum.
LiLja guðmundSdóttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Leiðbeinendur Vinnuskólans í Reykjavík lögðu niður vinnu á hádegi í gær til að mótmæla slökum kjörum. Þeir
segja lægstu launin vera undir atvinnuleysisbótum. Mannauðsstjóri borgarinnar neitar þeirri fullyrðingu og
segir að yfirvinna og fleiri þættir geti hækkað launin. Leiðbeinendur standa við sitt og krefjast kjarabóta.
LAUNIN LÆGRI
EN BÆTURNAR
mynDIR RAkeL Ósk sIGURÐARDÓttIR
Leiðbeinendur söfnuðust saman
Vilja sambærileg kjör og starfsmenn
félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar.
davíð mótmælti í ráðhúsinu
Berst fyrir betri kjörum leiðbein-
enda Vinnuskólans í Reykjavík.
„Þeir sem starfa sem
aðstoðarleiðbeinend-
ur og eru undir t��tugu
eru með 130.000 krón-
ur fyrir skatt, sem er
sex þúsund krónum
minna en at�innuleys-
isbætur.“
Félagar í Saving Iceland létu
veðrið ekki stöðva sig þegar þeir
mótmæltu við eina borholuna við
Hellisheiðarvirkjun. Með því vildu
þeir mótmæla starfsemi Orkuveitu
Reykjavíkur á Hellisheiði og tengsl-
um hennar við Jemen í gegnum REI.
Að sögn Miriam Rose voru upp-
haflega 20 mótmælendur á staðn-
um en þegar blaðamaður DV kom
á staðinn voru margir þeirra farnir.
Mótmælendur klifruðu upp í borinn
og hlekkjuðu sig við vinnuvélar. Mir-
iam Rose sagði að veðrið hefði verið
ágætt þegar mótmælendur mættu á
staðinn. „Þetta er Hellisheiði þannig
ég bjóst alveg við þessu,“ sagði hún.
Snorri Páll Úlfhildarson Jónsson
sagði einfaldlega: „Það er verið að
vinna í vondu veðri þannig við lát-
um það ekki stoppa okkur. Skítt með
veðrið.“ Einn mótmælandinn hlekkj-
aði sig við lyftara á svæðinu. Lögregl-
an losaði hann en hann neitaði að
færa sig. Meðan lögregla talaði við
verktaka á svæðinu lét mótmæland-
inn lítið fyrir sér fara og hljóp svo eins
og fætur toguðu út í þétta þokuna.
Lögreglan var alveg ráðþrota um
stund og virtist ekki vita hvað átti
að gera. Svo barst liðsauki og var þá
gripið til þess ráðs að sækja þann
sem hafði komið sér upp á borinn.
Hann vildi ekkert fara og lagðist nið-
ur. Þar lét hann fara vel um sig þang-
að til lögregla kom og bar hann niður
af bornum. Eftir það var hann settur
inn í lögreglubíl. Alls voru sjö hand-
teknir við mótmælin að sögn lög-
reglu.
olivalur@dv.is
Lögregla var ráðþrota um hvað ætti að gera í mótmælum Saving Iceland:
Skítt með veðrið
Var hlekkjaður við lyftara
mótmælandinn tók til fótanna út í
þokuna þegar lögregla horfði í aðra átt.
mótmælandi Saving iceland
Lögreglan þurfti að bera hann
niður úr bornum.