Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 200812 Fréttir
Mannaskítur á kornakra
Bændur eru farnir að nota skólp
sem áburð á meira en þrjú þúsund
akra í Bretlandi. Fram hefur kom-
ið í fjölmiðlum að eftirspurn eft-
ir úrganginum hefur stóraukist þar
sem hann kostar einungis fimmt-
ung á við áburð sem búinn er til
úr úrgangi dýra. Þegar skólpið hef-
ur verið unnið er það kallað „leðja“
og síðan notað á akra þar sem korn
og maís eru ræktuð. Verslanakeðj-
urnar Sainsbury’s og Waitrose hafa
viðurkennt að sumar vörur þeirra
innihaldi leðjuna en aðrar keðjur,
eins og Tesco og Asda, hafa bannað
vörur sem innihalda úrganginn af
heilsufarslegum ástæðum.
Mikil aukning á skólp sölu
Vatnsveitan Severn Trent er eitt
af þeim fyrirtækjum sem sjá um
sölu á úrganginum sem kemur úr
holræsakerfum Englands. Fyrir-
tækið nýtur stuðnings bresku rík-
isstjórnarinnar og kom talsmaður
fyrirtækisins, Sophie Jordan, fram
í fjölmiðlum og varði það að skólp-
ið væri notað til þess að rækta akra.
Hún segir fyrirtækið hafa séð mikla
aukningu á sölu leðjunnar eða um
25 prósent síðan í byrjun árs 2008.
Á ökrunum eru framleiddar mat-
jurtir til manneldis en einnig fóð-
ur fyrir dýr. Bent hefur verið á það
í fjölmiðlum í Bretlandi að þá inni-
haldi morgunkorn eins og kornflög-
ur korn sem ræktað er með áburði
sem búinn er til úr skólpi.
Neytendur ekki sáttir
Á sumum þessum ökrum er
grænmeti framleitt sem síðar er
selt í verslunum, eða notað sem
dýrafóður. En það þýðir að mjólkin
sem notuð er á morgunkornið gæti
hafa komið frá kú sem hefur lifað á
þessu sama fóðri. Fréttir þess efnis
að mannaskítur og hland sé notað í
sífellt meiri mæli af bændum á akra
sína koma illa við breska neytendur.
Þrátt fyrir að hafa verið leyft síðan
1998 hefur aðferðin aldrei verið vin-
sæl og aðeins verið notuð af örsmá-
um hluta bænda í landinu. Hækk-
andi olíuverð hefur sett sitt mark á
kostnað þess að búa til venjulegan
áburð og hefur gert það að verkum
að bændur snúa sér að vatnsveitum
í leit að unnum úrgangi frá mönn-
um. Severn Trent hefur í nógu að
snúast við sölu á leðjunni og selur
einungis til þeirra sem búa á svæði
þess. Fyrirtækið er með teymi sem
sér um sölu og skipulag á þeirri hlið
fyrirtækisins sem snýr að skólpsöl-
unni.
Skiptar skoðanir
En leðjan á sér sína andstæð-
inga. Sumir bændur í Bretlandi sem
hafa nær engöngu notað leðjuna á
túnin sín hafa fengið kvartanir frá
nágrönnum varðandi lyktina sem
þykir vægast sagt slæm. Stóru versl-
anakeðjurnar eru ósammála um
málið. Verslanakeðjurnar Sains-
bury’s og Waitrose hafa viðurkennt
Úrgangur frá mönnum er tekinn úr holræsakerfum Bretlands
og notaður til þess að búa til áburð. Bændur í landinu hafa í sí-
fellt meiri mæli notast við áburðinn til að rækta korn, maís og
grænmeti. Sumar verslanakeðjur landsins selja morgunkorn og
aðrar vörur sem búnar eru til úr hráefnum sem ræktuð voru
með þessum hætti. Aðrar keðjur neita að selja slíkar vörur af
heilsufarsástæðum.
JóN BJarki MagNúSSoN
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Holræsi Skólpi er nú dælt úr
holræsakerfum Bretlands í þeim
tilgangi að nota úrganginn í áburð sem
síðan er dreift á akra í sveitum landsins.